Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 ✝ Valur Pálssonfæddist á Siglu- firði 2. september 1932, sonur hjónanna Páls Ein- arssonar, f. 1901, d. 1965, frá Geirakoti í Flóa og Hermínu Halldórsdóttur, f. 1905, d. 1984, frá Seyðisfirði. Valur lést á Landspít- alanum 23. nóv- ember 2020. Valur ólst upp á Siglufirði í miðju síldarævintýrinu, en flutt- ist ungur til Reykjavíkur þar sem faðir hans opnaði rakara- stofu og síðar raftækjaversl- unina Luktina á horni Njálsgötu og Snorrabrautar. Árið 1953, að loknu námi í Verslunarskóla Ís- lands, hélt Valur til framhalds- náms í viðskiptafræðum við Col- umbia-háskólann í New York þar sem hann lauk námi 1957. Heim kominn rak hann Luktina í samstarfi við föður sinn, og sjálf- ur eftir hans dag. Síðan söðlaði hann um og vann um árabil fyrir Jóhann Ólafsson og co. Valur hóf svo störf hjá Hafskip 1982 og síð- Grími Stígssyni og eiga þau dótt- urina Áshildi; og Steinunn Vala, f. 1992, í sambúð með Jakobi van Oosterhout. 2) Karl Steinar, f. 1963, yfirlögregluþjónn, kvænt- ur Erlu Dögg Guðmundsdóttur, f. 1982. Dætur hans og Gyðu Ol- geirsdóttur eru Sigríður Bára og Auður Edda. 3) Hermann, f. 1965, lýðheilsufræðingur, kvæntur Þóru Magneu Magn- úsdóttur, f. 1966. Börn þeirra eru Erna Hrund, í sambúð með Jóni Kristófer Sturlusyni, synir hennar og Aðalsteins Kjart- anssonar eru Tinni og Tumi; og Magnús Valur, í sambúð með Rannveigu Hafsteinsdóttur. 4) Sigurður Valur, f. 1973. Valur og Erna reistu sér hús í Álftamýri 29 og bjuggu þar frá 1966 allt fram til ársins 2006 er þau fluttu á Strandveg í Garða- bæ. Síðan 2018 hafa þau búið í Mörkinni við Suðurlandsbraut. Útför Vals fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 9. des- ember 2020, klukkan 13. Vegna sóttvarnareglna er athöfnin ein- ungis opin nánustu aðstand- endum en streymt verður frá henni á slóðinni https://tinyurl.com/y6kcurur Virkan hlekk á streymi má nálgast á https://www.mbl.is/andlat ar Eimskip og vann þar fram á eft- irlaunaaldur. Þá settist hann aftur á skólabekk og lauk prófi frá Leiðsögu- mannaskólanum og starfaði svo við leiðsögn allt fram á allra síðustu ár, mest fyrir Guð- mund Jónasson. Valur var virkur í ýmsum félagsmálum og var m.a. formaður skíðadeildar ÍR í áratug, meðan uppbygging fé- lagsins í Hamragili stóð sem hæst. Valur kvæntist árið 1960 Ernu Maríusdóttur, f. 1941, dótt- ur Maríusar Helgasonar, f. 1905, d. 1985, og Sigríðar Carlsdóttur Berndsen, f. 1910, d. 1978, og eignuðust þau fjóra syni: 1) Páll, f. 1960, rithöfundur og útgáfu- stjóri, kvæntur Nönnu Hlíf Ingvadóttur, f. 1970. Dætur hans og Höllu Kjartansdóttur eru Álf- rún, f. 1983, gift Viktori Bjarka Arnarsyni og eiga þau tvö börn, Höllu Elísabetu og Arnar Pál; Védís, f. 1990, í sambúð með Mig langar með þessum orðum að minnast pabba og þakka hon- um fyrir allt sem hann var mér. Hann var mín aðalfyrirmynd, kenndi mér og sýndi í verki hvað það skipti miklu máli að sýna öll- um virðingu, kurteisi og hjálp- semi. Pabbi var alltaf til staðar þeg- ar eitthvað kom upp á hjá mér eða mínum. Í uppvextinum áttu íþróttir hug minn allan. Ég fékk alltaf að vera ég sjálfur og hann og mamma sáu til þess að ekkert skorti. Góð skíði og bestu fótbolta- skórnir. Eina skilyrðið var að ég ætti að hugsa vel um búnaðinn – maður minn hvað skórnir og skíð- in voru vel pússuð. Þau mamma fóru með okkur bræður út um allt land og það er varla til sá staður á landinu sem ég hef ekki komið með þeim á. Í þeim ferðum fékk ég sýnikennslu í hvernig ganga skal um landið. Pabbi lagði ríka áherslu á að við myndum skila staðnum í betra ástandi en þegar við komum að. Sá sem á eftir kemur á líka að fá að njóta. Þetta er eitt af því sem ég hef tileinkað mér frá pabba. Pabbi var alltaf að og þegar hann komst á eftirlaun dreif hann sig aftur í skóla. Hann skellti sér í Leið- söguskólann og byrjaði að leið- segja erlendum gestum um land- ið okkar. Í því, eins og í öllu öðru, varð hann mjög eftirsóttur og fékk að velja sínar ferðir hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jón- assonar. Pabbi hvatti okkur bræður til að fara í þetta sama nám og auðvitað gerði ég það. Líklega hefur hann sjaldan verið jafn stoltur af mér og daginn sem ég útskrifaðist úr Leiðsöguskól- anum. Leiðsögnina áttum við saman og ég naut þess að tala við pabba um landið okkar; hvað það er einstakt, skrítið og stórkost- legt. Við hittumst nokkrum sín- um með hópa í ferðum okkar um landið og ég fann hvað hann var vel liðinn alls staðar. Ég fékk gjarnan að heyra: „Nú, ert þú sonur Vals? Það er nú góður mað- ur.“ Ég er konunni minni óendan- lega þakklátur fyrir að breyta fyrirhuguðu nafni sonar okkar þar sem hún lá á skurðarborðinu í október árið 1991. Við vorum fyr- ir löngu búin að ákveða nafn ef barnið yrði drengur. Þóra mín skipti um skoðun um leið og barnið kom í heiminn og tilkynnti mér að sonur okkar ætti að fá nafnið Valur. Því varð úr að ný- fæddi drengurinn okkar var skírður Magnús Valur. Þeir fé- lagarnir áttu eftir að verða mjög nánir vinir enda var pabbi mikill barnakarl; barnabörnin og lang- afabörnin voru hans ríkidæmi. Af þeim var hann stoltastur. Góða ferð pabbi minn. Takk fyrir mig og mína. Við sjáumst aftur síðar. Hermann B. Valsson. Elsku faðir minn og bræðra minna. Við söknum þín alltaf og hugsum til þín og við vitum að þú hugsar til okkar allra og mömmu. Pabbi minn var góður alltaf, hann stríddi aldrei eða það sagði hann alla vega. Hann ólst upp á Siglufirði, hann var fyrsta barn ömmu og afa og fæddist 1932. Kallinn hann var frábær. Ég man eftir því að við fórum í fiskbúðina Hafið og þá sagði pabbi: Ég ætla að fá 800 grömm af gellum og saltfiski, – mér fannst það gott, alla vega stundum. Þegar ég var heima hjá mömmu og pabba fengum við okkur alltaf koníak á morgnana um helgar, ég, kallinn og frúin. Alltaf á sumrin þá var pabbi dug- legur að grilla fyrir okkur kjöt, svo fengum við okkur smá í glas. Við áttum góðar stundir saman þegar ég var lítill í Stóra-Langa- dal og seinna í Suðursveit. Svo fórum við oft saman til útlanda, síðast til Kanaríeyja. Þegar við vorum þar vorum við duglegir að borða, við fengum okkur brunch og eitthvað gott, svo á kvöldin klæddum við okkur upp fyrir kvöldmatinn. Elsku pabbi, takk fyrir allt og allar gömlu og góðu minningarn- ar. Ég vona að þér líði vel og ég bið að heilsa Helga pabba, ömmu Sí, ömmu Hermínu og afa Páli. Guð geymi þig og ég vona að þið passið okkur öll. Þinn sonur, Sigurður Valur (Siggi Valur). Elsku pabbi, það er óraun- verulegt og sárt að hugsa til þess að geta ekki lengur átt skemmti- leg samtöl við þig um lífið og til- veruna. Þú varst svo skemmtileg- ur viðmælandi. Þú elskaðir að heyra hvað væri að gerast og kynnast nýjum hlutum, sérstak- lega ef það tengdist ferðalögum og náttúru. Það er því ekki að undra að svo margar góðar minn- ingar eru því tengdar. Minningar um fjölmargar ferðir okkar fjöl- skyldunnar um landið og síðar ut- anlands. Sammerkt þeim öllum hvað þær voru skemmtilegar, þú dug- legur að fræða okkur um stað- hætti, menningu og fróðlega hluti. Þið mamma svo samrýnd og elskuðuð hvort annað og nutuð þess að vera saman og í hópi góðra vina. Það er líka svo margt sem þú kenndir mér og leiðbeindir. Þú hafðir unun af því að veiða og varst fyrirtaks veiðimaður, þolin- móðari en flestir og því fiskinn með afbrigðum. Kenndir okkur að lesa ána og skilja hvernig fisk- urinn hegðar sér í straumvötnum og hvar hann gæti legið. Eða þeg- ar við nenntum ekki að veiða og lögðumst í grasbala, tókum strá í munn, horfðum upp í himininn og töldum fugla. Í Stóra-Langadal, sem var auðvitað uppáhaldsstað- urinn okkar, urðu líka til margar góðar minningar. Skíðamennskan var fyrirferð- armikil hjá okkur og þú vannst af mikilli hugsjón við að byggja upp skemmtilegt svæði til að skíða á og njóta skemmtilegrar útiveru og smá keppni í bland. Minningin er sú að það boðaði gott skíðaár ef hægt væri að fara fyrir áramót í fjallið, helst fyrir jól. Lögleg af- sökun frá jólaboðum og jólastússi var að fara á skíði í desember, af- sökun frá öllum boðum nema á annan í jólum því þá var gleði með Glaðheimum og það var að- alheimboð ársins, ekki spurning. Eftir áramót voru svo allar helg- ar nýttar í fjallinu, líka þegar nær glórulaust veður var úti því aldrei var útilokað að logn væri í Hamragili, að minnsta kosti væri þess virði að kanna það. Það var líka ökuferðin sjálf sem var gæðastund, yfirleitt öll fjölskyld- an með nesti og samverunnar notið í botn. Það var mikil hvatning frá þér þegar ég fór fyrst utan í nám, þú studdir mig með ráðum og dáð og talaðir skemmtilega um þinn námstíma í New York. Það hefur svo sannarlega verið ævintýri lík- ast og ég var svo heppinn að fá að ganga með þér um borgina 40 ár- um síðar, sem þá var í fyrsta skipti sem þú komst aftur þangað eftir útskrift. Það var hreint magnað hvað þú rataðir og mundir af sögum og lýsingum frá eftirminnilegum tíma í þínu lífi. Mér er ofarlega í huga gleðin og virðingin sem þú sýndir öllum og komst alltaf til dyra með bros á vör og tilbúinn að hjálpa ef þess væri nokkur kostur. Þú varst líka góður í að finna lausn á deilum eða vandamálum; lausnamiðaður mannasættir væri líklega góð lýsing. Þú kenndir mér nefnilega það mikilvægasta og það er að sýna ávallt virðingu fyrir mönnum og málefnum. Þú varst svo fordómalaus og svo langt á undan þinni samtíð. Það er svo margt sem ég vil þakka þér fyrir að hafa sýnt mér og kennt. Far í friði elsku pabbi. Þinn sonur, Meira: mbl.is/andlat Karl Steinar. Elsku afi, ég viðurkenni það að ég var ekki undirbúin undir það að skrifa um þig minningargrein alveg strax. Hvernig skrifar mað- ur minningarorð um mann sem maður er ekki tilbúinn að kveðja, mann sem var alltaf til staðar, sem ég gat alltaf hlegið með, rök- rætt við og átt svo skemmtilegar stundir með? Ég er svo þakklát fyrir lífið með þér, ég er svo þakklát fyrir að þú hafir síðasta árið gefið smá skít í kórónuveir- una og stolist til að faðma mig af og til þegar það mátti. Afafaðmur var engum líkur; bumban beint út í loftið og faðmlagið svo þétt- ingsfast að maður missti smá andann en það var allt í góðu því afaknús var það allra besta. Börnin mín munu alltaf muna eftir afa La, sem var fyrsta gælu- nafnið sem ég man eftir að litlu krakkarnir hafi gefið þér. Þetta nafn á sér sögu í fjölskyldunni nema nú var það Tumi sem átti erfitt með að segja r og kallaði þig bara afa La. Það er voða skrítið að koma heim í Mörkina og sjá afa La ekki í dyragættinni, það er voða tómlegt án tuðandi afans, laukilmsins í loftinu frá eldamennskunni þinni og grjóna- grautnum sem mun alltaf vera sá allra besti, bara að standa nógu lengi yfir honum og hræra eins mikið og þú getur og hræra svo aðeins meira, það var þitt ráð. Ég held því fram að það hafi líka ver- ið þolinmæðin þín sem var lykill- inn að þessum dásamlegu kræs- ingum sem þú reiddir fram, fyrir utan kakósúpuna í Álftamýrinni þarna um árið, ég mun seint gleyma henni. Allar minningarnar sem ég á með ykkur ömmu í Álftamýrinni, á Strandveginum og nú í Mörk- inni, nú geymi ég þær í hjartanu og held fast utan um þær á erf- iðum tímum. Nú þarf ég að læra að lifa lífinu án afa sem er frekar tómlegt og ég þekki ekki það líf en ég veit að þú vakir yfir mér og passar upp á mig, Tinna og Tuma sem elskuðu afa sinn svo heitt. Tinni er nú búinn að útbúa minn- ingarkassa um afa La og Tumi vinnur hart að því að verða töfra- maður svo hann geti töfrað afa La aftur heim til okkar. Þú varst og verður alltaf kletturinn okkar sem var alltaf til staðar, sama hvað gekk á. Það síðasta sem ég sagði við þig nokkrum tímum áður en þú kvaddir þennan heim var að þú þyrftir engar áhyggjur að hafa af ömmu, ég myndi passa upp á hana fyrir þig. Svo lofaði ég að taka til í geymslunni líka, þá óm- aði fallegi hláturinn og þú sagðir að ég fengi leyfi til að gera allt sem ég vildi við geymsluna og innihald hennar. Ég lofa að standa við mitt alltaf, ég sé um ömmu og geymsluna. Takk fyrir allt elsku afi minn, ég elska þig alltaf. Þín afadóttir, Erna Hrund. „Ertu ekki hress?“ Svona byrjuðu öll símtöl og samtöl við afa. Það skipti afa nefnilega mjög miklu máli að allir væru hressir. Afi var alltaf hress. Bjartur, blíður og góður. Það voru engir staðir betri að kúra á en bumban hans afa, sem ég átti alveg út af fyrir mig fyrstu sex ár lífs míns. Svo fór hann að safna til að koma okkur öllum fyrir. Afaknús voru bestu knúsin, löng og þétt. Ég mun sakna þess að sjá þig taka á móti mér og mínu fólki með út- breiddan faðminn. Það er sárt að syrgja einhvern sem maður þekkir ekki tilveruna án. Landslag lífsins breytist mik- ið þegar heilt fjall hverfur. Það er einmitt raunin með afa Val sem var kletturinn í lífi okkar allra. Alltaf til staðar. Alltaf traustur. Afi kenndi mér margt og mik- ið. Besta ráðið var samt að njóta lífsins. Skíði á veturna og golf á sumrin. Dýrmætar stundir í Hamragili og á ferðalögum, þar sem ferðabarinn góði var aldrei langt undan. Meira að segja í ítölsku ölpunum þegar ég fór óharðnaður unglingur í mann- dómsvígsluferð og naut mín í botn í brekkunum með ömmu og afa og vinum þeirra. „Ánægður með þig!“ var líka setning sem ósjaldan kom fram í okkar samtölum. Hann var stolt- ur af öllum okkar afrekum, stórum sem smáum, og naut sín best þegar hann var umvafinn fólkinu sínu. Glettnin, sumir vilja kalla það stríðni, var aldrei langt undan og þreyttist hann ekki á að fussa yfir nýjustu tískustraumum í fata- og hárvali okkar barna- barnanna, alltaf með glettið blik í augunum. „Á ég að kaupa handa þér nýjar buxur?“ sagði hann brosandi og benti á glænýjar göt- óttar gallabuxur barnabarnsins sem ranghvolfdi augunum yfir tískublindu afa síns. Afi var til fyrirmyndar í svo mörgu. Hann var til dæmis eini langafinn sem leikskólakennar- arnir vissu til að sækti barna- barnabarnið sitt reglulega í leik- skólann. „Nei“ var ekki til í orðabókinni hans þegar kom að okkur barnabörnum og barna- barnabörnum. Á hans mæli- kvarða var enginn ísskammtur of stór og komumst við afkomendur smáir sem stórir fljótt upp á lag með það. Ég mun sakna þess að fá bestu gúllassúpu í heimi og spagettí með kjötsósu sem allt annað bliknar í samanburði við. Afi var mikill ástríðukokkur og fór mik- inn í eldhúsinu þegar þannig lá á honum. Vikulegur kvöldmatur hjá ömmu og afa var ávallt til- hlökkunarefni, kræsingar á borð- um og góður skammtur af hress- leika í hversdeginum. Elsku afi. Afi sem leyfði alltaf öllum öðrum að eiga sviðið. Hóg- vær, stríðinn, ljúfur, greiðvikinn, ráðagóður og kunni að hlusta. Það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja þig elsku afi. Við Viktor Bjarki og krakkarnir pössum ömmu og Sigga Val og biðjum fyrir kveðju í drauma- landið fagra. Þín Álfrún. Afi sagði oft að hann hefði fengið mig í sextugsafmælisgjöf en ég fæðist tveimur dögum eftir sextugsafmælið hans þegar hann er að jafna sig eftir hjartaaðgerð. Hefði ég fæðst strákur hefðum við verið alnafnar. Samband okk- ar byrjaði þó brösuglega. Ég flutti fjögurra ára til Íslands frá Svíþjóð og þekkti lítið þá stóru fjölskyldu sem beið eftir okkur hér með eftirvæntingu. Ég fór í baklás þegar ég hitti fyrst afa Val og neitaði að tala við hann, gat varla horft framan í hann ef hann ávarpaði mig. Ekki veit ég hvers vegna en líklega fannst mér eitt- hvað óþægilegt við alla þessa at- hygli sem hann sýndi mér. Mig minnir að ég hafi verið sjö ára þegar hann spurði mig einhverr- ar hversdagslegrar spurningar sem ég svaraði loksins ómerki- lega stutt og man hversu ánægð- ur hann var að hafa loksins fengið eitthvað upp úr mér. Sambandið styrktist eftir það og ég var farin að leggja mig á stóru bumbunni hans, sem var betri en nokkur koddi, stuttu seinna. Ég er þakk- lát fyrir að hann lét mig aldrei líða fyrir að hafa verið svona erf- ið. Afi Valur var maður sem var óhræddur við að sýna tilfinningar sínar. Hann var óendanlega stolt- ur af niðjum sínum og sýndi öllu því sem maður tók sér fyrir hend- ur áhuga og stuðning. Ég man hvað það var gaman að fá afa á tónleika. Sama hversu vel það gekk eða á hversu háu stigi spilamennskan var þá var hann fyrstur til þess að knúsa mann, svo fast að maður fann fyrir faðmlaginu lengi á eft- ir, og lét manni líða eins og maður hefði sigrað heiminn í örstutta stund. Það var mikilvægt fyrir unga feimna manneskju sem átti erfitt með að koma fram að finna fyrir þeim stuðningi og því mun ég aldrei gleyma. Hann varð oft meyr við minnstu hluti sem sneru að barnabörnum hans og manni fannst það stundum furðulegt hvað það var stutt í tárin, hann var einlæglega stoltur og þakk- látur fyrir það sem lífið hafði gef- ið honum. Hann hafði mikinn og einlægan áhuga á barnabörnum sínum og gekk í öll verk. Hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa þeim ef á þurfti að halda, sama hvort það var að sækja eða skutla í tónlistarskóla, hjálpa til við flutninga eða kenna manni á skíði. Hann hafði alltaf tíma og naut þess að hjálpa til. Það var alltaf stutt í grínið og háværan dillandi hláturinn sem endaði oftast með tárum. Hann var maður sem smitaði út frá sér með gleði, var vinmargur og kunni að njóta lífsins. Maður sér það greinilega þegar maður flett- ir í gegnum myndaalbúm þeirra ömmu hvað þau nutu alls þess sem lífið hafði upp á að bjóða. Vinahóparnir óteljandi og ferða- lögin fjöldamörgu eru vel skjal- fest og minna mann á hvað hann átti gleðiríkt líf. Ég mun alltaf sakna afa Vals en er full þakklætis fyrir að hafa haft slíkan stólpa og hjartahlýjan mann í lífi mínu. Steinunn Vala Pálsdóttir. Afi Valur var einn af þeim sem eru alltaf með bros í auga. Hann var mikill húmoristi og fljótur að sjá spaugilegu hliðarnar á öllum málum. Þegar ég hugsa um afa kemur fyrst upp í hugann hlát- urinn hans og flissið í ömmu sem fylgdi. Amma og afi kunnu að skemmta sér og sínum. Þau voru höfðingjar heim að sækja og vin- mörg alla tíð. Afi var einn af þess- um öfum sem gera allt fyrir barnabörnin. Mér er mjög minn- isstætt þegar afi var einu sinni mættur upp í listaháskóla með bíl fullan af efni og verkfærum fyrir barnabarnið og samnemendur mínir áttu varla til orð yfir þess- um frábæra afa. Þannig var afi, alltaf til staðar fyrir alla og sér- staklega fyrir okkur barnabörn- in. Afi gat allt, hann kenndi okkur á skíði og golf, fór með okkur á hestbak og í veiði. Afi og amma nutu þess að ferðast og voru dug- leg að bjóða okkur barnabörnun- um með sér. Þær eru ótalmargar minningarnar af ferðalögum með ömmu og afa, með smurt tómata- og eggjabrauð og flatkökur með hangikjöti og nóg af smjöri í nesti. Þær eru eftirminnilegar bíl- ferðirnar austur á Reynivelli í Suðursveit, ró yfir öllum, nóg af nesti og regluleg stopp til að skoða náttúruperlurnar og fá sér einn ís eða tvo. Í Suðursveitinni var síðan eins og tíminn stæði kyrr, við fórum í berjamó, böð- uðum dúkkur í læknum og æfð- um okkur í púttinu með ömmu á meðan afi bakaði lummur og und- irbjó kvöldmatinn. Eins og ég nefndi áðan gat afi nefnilega allt og samvinna ömmu og afa í eldhúsinu var til fyrir- myndar og örugglega einn lyk- ilþáttur í þeirra farsæla hjóna- bandi. Minningarnar úr bústaðnum í Suðursveit eru minningar sem ylja manni innst að hjartarótum en við barnabörn- in töldum alltaf niður dagana að komast í sveitina með afa og ömmu. Síðasta ferðalagið sem við fór- um í með afa var á Siglufjörð í sumar, á æskuslóðir afa til að fagna 60 ára brúðkaupsafmæli hans og ömmu. Og þar sat afi við borðsendann, á sínum stað, með öllu fólkinu sínu, rjóður með sitt bros og blik í auga. Einn daginn sest ég aftur við veisluborðið hjá þér afi. Þangað til verður tómlegt við borðsendann. Védís Pálsdóttir. Móðurbróðir okkar hann Val- ur er látinn. Fjölskylduminning- ar birtast okkur ljóslifandi. Álfta- Valur Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.