Morgunblaðið - 09.12.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
Löggiltur heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Hljóðmagnarar
Hljóðmagnari hentar vel þeim sem
þurfa að heyra betur og er einfaldur í
notkun. Þægilegt samskiptatæki. Með
margmiðlunarstreymi tengist hann
þráðlaust við sjónvarp og önnur tæki.
Vekjaraklukka
fyrir þá sem sofa fast eða heyra illa
Að vakna á réttum tíma hefur aldrei
verið auðveldara
Vekur með ljósi, hjóði og/eða tirtingi
svo að maður þarf ekki að sofa yfir sig.
Verð frá
kr. 19.800
Verð frá
kr. 58.800
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Bretar urðu í gær fyrsta vestræna
þjóð heimsins til að hefja fjöldabólu-
setningar gegn kórónuveirunni. Ní-
ræð langamma að nafni Margaret
Keenan, upprunnin á Norður-
Írlandi, fékk fyrstu sprautuna af Pfi-
zer-BioNTech-bóluefninu. Hún lýsti
því sem forréttindum að fá spraut-
una fyrst milljóna manna sem bólu-
settar verða á næstu vikum og mán-
uðum í Bretlandi.
„Ég ráðlegg hverjum þeim sem
býðst bólusetning að þiggja hana.
Fyrst ég níræð konan get fengið
sprautuna þá getið þið öll hin það
líka,“ sagði frú Keenan, sem var
bólusett klukkan 6:31 í gærmorgun
að íslenskum tíma á háskólasjúkra-
húsinu í Coventry. Um 800.000
manns verða sprautaðir með Pfizer-
BioNTech-bóluefninu í fyrstu lotu
og áætlað er að um komandi áramót
verði fjöldinn kominn í fjórar millj-
ónir. Keenan verður 91 árs í næstu
viku og sagðist hún ekki geta hugsað
sér betri afmælisgjöf en bólusetn-
inguna gegn kórónuveirunni. „Þetta
þýðir að ég get loksins hlakkað til að
sjá fjölskyldu mína og verja tíma
með henni og vinum á nýju ári,“
sagði Keenan sem búið hefur ein
meira og minna allt árið vegna far-
aldursins.
Boris Johnson forsætisráðherra
Bretlands sagði upphaf bólusetning-
arinnar vera eins og vítamínsprautu
fyrir bresku þjóðina alla í stríðinu
við kórónuveiruna. Þar sem ekki
yrði byrjað að bólusetja þorra þjóð-
arinnar fyrr en á nýju ári yrði fólk
áfram að fara gætilega og fylgja ráð-
leggingum til að takmarka sem mest
útbreiðslu kórónuveirunnar. „Við
getum ekki slakað á verðinum,“
sagði Johnson í heimsókn á spítala í
London í tilefni „veirudagsins“.
Fylgdist hann þar með bólusetningu
nokkurra landa sinna.
Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa
pantað 40 milljónir skammta af Pfi-
zer-bóluefninu sem duga eiga til að
mynda mótefni í blóði 20 milljóna
manna en hver og einn verður að fá
tvær sprautur með þriggja vikna
millibili til þess að hljóta fullt ónæmi
við veirunni.
Miðstöðvar í Bretlandi munu í
fyrstu atrennu bólusetja 80 ára og
eldri auk starfsmanna heilbrigð-
iskerfisins. Sjötíu sjúkrahús eru að
búa sig undir að hefja bólusetningu í
þessari viku. Bólusetningarherferð-
inni er í fyrstu beint að þeim sem eru
í mestri hættu á að sýkjast og veikj-
ast. Heilbrigðisráðherrann Matt
Hancock lýsti ánægju sinni með
undirtektir við verkefnið, en hvatti
fólk til að hafa varann á sér gagnvart
kórónuveirunni næstu mánuðina.
Sagði hann „langa göngu“ fram und-
an uns kórónuveiran yrði lögð að
velli en bóluefnið vísaði veginn út úr
kreppunni. „Veiran er dauðans al-
vara en við verðum að fara að leik-
reglum.“
Sá er hlaut skammt númer tvö af
bóluefninu í Englandi er alnafni hins
fræga rithöfundar William Shake-
speare. Systir Joanna Sloan, nunna í
Belfast, var bólusett fyrst allra á
Norður-Írlandi eða klukkan 8:00 að
morgni á Viktoríuspítalanum í Bel-
fast. Í Wales var fyrstu nálinni
stungið í öxl hins 48 ára gamla Craig
Atkins, sem skalf af kvíða. „Hún var
ógnvekjandi,“ sagði hann um spraut-
una en jafnaði sig fljótt.
Svæfingarlæknirinn Katie Stew-
art var meðal fyrstu Skota til að fá
bóluefnið. Hún sagði að eiginlega
þyrfti að halda upp á bólusetninguna
eftir „mjög langt þjáningaár“.
Breskir embættismenn hafa lofað
bóluefni Pfizer-BioNTech sem tíma-
hvörf í glímunni við kórónuveiru-
faraldurinn. Bretland er fyrsta land-
ið í veröldinni til að hefja bólu-
setningu með Pfizer-bóluefninu, sem
samþykkt var til notkunar í landinu í
fyrri viku. Gögn frá 38.000 þátttak-
endum í prófunum á bóluefninu
„sýna ekkert sem varðar getur ör-
yggi þeirra,“ segir í skýrslu banda-
ríska lyfjaeftirlitsins (FDA) um
bóluefnið, sem skýrt var frá í gær.
Segir enn fremur að eftir tveggja
mánaða eftirfylgni eftir seinni
sprautuna virðist sem engar áhyggj-
ur þurfi af bóluefninu að hafa sem
koma ættu í veg fyrir að gefið yrði út
bráðaleyfi fyrir notkun þess í
Bandaríkjunum. Fundar FDA um
það mál á fimmtudag og þykja yfir-
lýsingar stofnunarinnar benda til
þess að grænt ljós fáist á bráðaleyf-
ið.
Rússar hófu sína herferð sl. laug-
ardag er fólk í áhættusömum störf-
um innan heilbrigðiskerfisins var
sprautað. Kínverjar hófu sömuleiðis
að gefa stungulyf.
Á sama tíma versnar ástandið í
mörgum löndum sem eru að grípa til
hertra takmarkana á athafna- og
ferðafrelsi fólks. Þannig var 30 millj-
ónum íbúa Kaliforníuríkis í Banda-
ríkjunum í gær fyrirskipað að halda
sig innan dyra á heimilum sínum í
glímunni við skæða sókn veirunnar í
Bandaríkjunum.
Snúa vörn í sókn gegn veirunni
Níræð langamma sprautuð fyrst allra utan tilrauna Á sama tíma og Bretar, Rússar og Kínverjar
hefja sókn gegn veirunni með bóluefni að vopni versnar ástandið í mörgum löndum Vítamínsprauta
AFP
Tímamót Klappað fyrir Margaret Keenan er hún snýr aftur til deildar sinn-
ar á spítalanum í Coventry eftir bólusetningu við kórónuveirunni.
AFP
Þökkuðu fyrir Vilhjálmur prins og Katrín kona hans heimsóttu Berkshire-
spítalann í Reading í gær og komu á framfæri þökkum bresku þjóðarinnar.
Vísbendingar um örplast hafa fundist
rétt fyrir neðan tind Everestfjallsins.
Uppruni þessarar mengunar er tal-
inn vera í tjöldum og klifurköðlum
sem hundruð fjallgöngumanna hafa
ár hvert skilið eftir á fjallinu.
Við rannsóknir í leiðangri á Eve-
rest í fyrra hefur örplastið fundist í
allt að 8.440 metra hæð yfir sjávar-
máli. Magn þess var þó mun meira í
og við grunnbúðir Everest. Kom
mengunin vísindamönnunum mög
svo í opna skjöldu, að finna örplast í
hverju einasta snjósýni sem tekið
var. „Ég hef alltaf talið fjallið af-
skekkt og óspillt,“ sagði einn vísinda-
mannanna.
Everest telst nú hærra en áður var
talið, eða sem nemur 86 sentimetrum,
að sögn yfirvalda í Nepal og Kína sem
fylgjast reglulega með hæð fjallsins.
Nepalar og Kínverjar eru sammála
um nýju mælinguna en hingað til
höfðu þeir verið ósammála um hvort
taka ætti snjóhettuna á tindinum með
í reikninginn.
Með samkomulaginu telst hin nýja
hæð Everest vera 8.848,86 metrar,
eða 29.032 fet. Með fyrri mælingu
sinni fengu Kínverjar út að fjallið
væri 8.844,43 metrar, eða tæpum
fjórum metrum lægra en það var að
mati Nepala.
Everest er á landamærum Kína og
Nepals og gengið er á fjallið frá báð-
um hliðum. agas@mbl.is
AFP
Everest Hærra en áður var talið og getur það skýrst af flekahreyfingum.
Örplast á Everest
Sammála um nýja hæðarmælingu
Breskir vísindamenn áforma að
prófa hvort það myndi veita öfl-
ugra ónæmi gegn kórónveirunni
að sprauta fólk tveimur bóluefn-
um, öðru við fyrri gjöf og hinu í
seinni sprautun.
Þessar tilraunir er ekki hægt að
hefja fyrr en gefið hefur verið út
leyfi til notkunar fleiri bóluefna,
en aðeins efni Pfizer/BioNTech
hefur öðlast notkunarleyfi.
Fyrirsvarsmaður tilraunarinnar,
Kate Bingham, segir að verið sé
að framleiða prófunarútgáfur
annarra bóluefna. Þetta sé þekkt
ferli við lyfjaþróun og hafi ekkert
að gera með skort á nýtanlegum
birgðum. Áhugi sé á því að leiða í
ljós hvort blönduð bóluefnisgjöf
geti styrkt ónæmiskerfið enn bet-
ur en þau bóluefni sem fyrir
liggja.
Talið er að stutt sé í leyfisveit-
ingu vegna bóluefnisins Oxford/
AstraZeneca. Það virkar ögn öðru-
vísi en Pfizer-sprautan og er því
talið geta orðið góður förunautur
hennar, að sögn vísindamanna.
Prófa blandað bóluefni
ÞEKKT FERLI VIÐ LYFJAÞRÓUN