Morgunblaðið - 09.12.2020, Side 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
Jón Daði Böðvarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, tryggði Millwall
stig í Lundúnaslag gegn QPR í ensku
B-deildinni í gærkvöld. Jón Daði kom
inn á sem varamaður um miðjan síðari
hálfleik og sjö mínútum síðar jafnaði
hann metin í 1:1 með góðu skoti. Þetta
er fyrsta mark Jóns í deildinni á þessu
tímabili en Millwall gerði sitt níunda
jafntefli í sautján leikjum og er í 14.
sæti af 24 liðum.
Grindvíkingar hafa samið við portú-
galska knattspyrnumanninn Tiago
Fernandes um að leika með þeim
næstu tvö keppnistímabil. Tiago er 25
ára miðjumaður sem lék með Fram í
tvö ár, 2018 og 2019, og skoraði sex
mörk í 42 leikjum fyrir Safamýrarliðið í
1. deildinni. Hann lék ekki með neinu
félagi á þessu ári og kemur því í raun
til Grindavíkur frá Fram. Grindavík
hafnaði í fjórða sæti 1. deildar í ár eftir
að hafa fallið úr úrvalsdeildinni haust-
ið 2019.
Raúl Jiménez, mexíkóski knatt-
spyrnumaðurinn sem leikur með Wolv-
es á Englandi, hefur verið útskrifaður
af sjúkrahúsi eftir að hafa höf-
uðkúpubrotnað í leik gegn Arsenal 29.
nóvember. Félag hans skýrði frá þessu
í gær og segir að hann sé kominn heim
til hvíldar hjá fjölskyldu sinni. Sky
Sports hefur eftir lækni Wolves, Matt
Perry, að Jiménez hafi tekið stór-
stígum framförum eftir aðgerðina sem
hann þurfti að gangast undir. Hins
vegar er viðbúið að langur tími líði þar
til framherjinn fái að stíga aftur inn á
knattspyrnuvöllinn. Hann hefur skorað
21 mark í 48 leikjum með Wolves í úr-
valsdeildinni og 27 mörk í 86 lands-
leikjum fyrir Mexíkó.
Írinn Caoimhin Kelleher verður að
óbreyttu áfram í marki Liverpool í
kvöld þegar ensku meistararnir sækja
heim Mikael Anderson og samherja
hans í danska meistaraliðinu Midtjyll-
and. Leikurinn er í lokaumferð riðla-
keppninnar þar sem Liverpool er þeg-
ar komið í 16-liða úrslit en Midtjylland
verður í neðsta sæti. Alisson Becker
markvörður hefur misst úr tvo síðustu
leiki en verður
mögulega leik-
fær á sunnu-
dag þegar Liv-
erpool mætir
Fulham. Kelleher,
sem er 22 ára, hef-
ur haldið hreinu og
staðið sig vel í
tveimur síðustu
leikjum, gegn
Ajax og
Wolves, en
þetta voru
fyrstu leikir
hans með að-
alliði félagsins.
Eitt
ogannað
MEISTARADEILDIN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þrátt fyrir að hafa náð í 9 stig í
fyrstu þremur leikjunum í Meist-
aradeild Evrópu í knattspyrnu tókst
Manchester United ekki að komast
áfram í 16-liða úrslit keppninnar.
RB Leipzig vann United 3:2 í
Þýskalandi í gær og fer áfram ásamt
París St. Germain. United tapaði því
þremur síðustu leikjunum og þarf að
gera sérð að góðu að færa sig yfir í
Evrópudeild UEFA.
Þegar ljóst var að þessi þrjú lið
yrðu saman í riðli var ekki hægt að
bóka að enska liðið væri áfram en
allt benti þó til þess eftir fyrstu um-
ferðirnar því United vann fyrsta
leikinn í París og í framhaldinu
burstaði United lið Leipzig 5:0. Tap
í Tyrklandi í fjórða leiknum gegn
Istanbul Basaksehir hafði heldur
betur áhrif á gang mála hjá United.
Angelino, Amadou Haidara og
Justin Kluivert komu Leipzig í 3:0
en leikmenn United tóku við sér á
lokakaflanum. Bruno Fernandes og
Paul Pogba hleyptu spennu í leikinn
þar sem United dugði jafntefli til að
komast áfram. Pogba kom inn á sem
varamaður í gær.
París St. Germain er öruggt um
sæti í 16-liða úrslitum með betri inn-
byrðisárangur gegn United en ekki
tókst að ljúka leik Parísarliðsins og
Istanbul Basaksehir í gær. Leik-
menn tyrkneska liðsins gengu af
velli í gær og sökuðu fjórða dómara
leiksins, Sebastian Coltescu frá
Rúmeníu, um kynþáttaníð. Leik-
menn liðsins neituðu að snúa aftur
út á völlinn en staðan var markalaus
þegar leikurinn var stöðvaður á 23.
mínútu. Þegar leið á kvöldið sendu
leikmenn Basaksehir frá sér yfirlýs-
ingu um að þeir ætluðu ekki að
halda leiknum áfram. Ekki er úti-
lokað að leikurinn haldi áfram í dag.
Eins og áður segir liggur þrátt fyrir
þetta fyrir hvaða lið fara áfram og
Basaksehir gat ekki lyft sér frá
botninum.
Setti met á söguslóðum
Youssoufa Moukoko varð í gær
yngsti leikmaðurinn til að leika í
Meistaradeild Evrópu karla í knatt-
spyrnu þegar hann lék fyrir Dort-
mund í 2:1 sigrinum á Zenit í St.
Petersburg. Moukoko var aðeins 16
ára og 18 daga gamall og sló 26 ára
gamalt met sem Céléstine Babayaro
setti þegar hann lék fyrir And-
erslecht gegn Steaua Búkarest, 16
ára og 87 daga gamall.
United tapaði þremur í röð
Leipzig og París St. Germain komast áfram Leikmenn gengu af velli í París
AFP
Úr leik Ole Gunnar Solskjær knattspyrnustjóri Manchester United gengur af velli í gær.
Knattspyrnumaðurinn Eiður Aron
Sigurbjörnsson er genginn til liðs
við uppeldisfélag sitt ÍBV eftir að
hafa leikið með Val undanfarin ár
og leikur með því í 1. deildinni á
næsta ári. Hann hefur skrifað undir
þriggja ára samning. Þetta er gríð-
arlegur liðsstyrkur fyrir ÍBV en
Eiður, sem er þrítugur, hefur leikið
155 leiki í úrvalsdeildinni með ÍBV
og Val, 87 þeirra fyrir ÍBV á ár-
unum 2008 til 2014. Þá hefur hann
leikið með Örgryte í Svíþjóð, Sand-
nes Ulf í Noregi og Holstein Kiel í
Þýskalandi.
Eiður Aron kom-
inn aftur til Eyja
Ljósmynd/ÍBV
Heimkoma Eiður Aron Sigur-
björnsson samdi við ÍBV til 3ja ára.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lands-
liðskona í knattspyrnu er á leið frá
Salt Lake City til Kansas City en lið
hennar, Utah Royals, hefur verið
lagt niður og Kansas City fær
keppnisréttindi þess og leikmanna-
hópinn. Kansas City lék í atvinnu-
deildinni, NWSL, til 2017 en þá var
starfsemi félagsins lögð niður og
Utah Royals stofnað í staðinn.
Gunnhildur hefur leikið með liðinu
öll þrjú árin sem það var starfrækt
en kom til Vals í láni í ágúst á þessu
ári, enda hefur keppni í NWSL al-
veg legið niðri í ár.
Gunnhildur Yrsa
fer til Kansas
Morgunblaðið/Eggert
Flytur Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
var í láni hjá Val í haust.
Evrópudeildin
Valencia – Zenit Pétursborg.............. 72:85
Martin Hermannsson lék í 22 mínútur
með Valencia, skoraði 6 stig og átti 3 stoð-
sendingar.
Staðan: Barcelona 9/3, CSKA Moskva
9/3, Bayern München 8/4, Zenit Pétursborg
7/3, Olimpia Mílanó 7/4, Real Madrid 7/5,
Anadolu Efes 7/5, Valencia 7/5, Baskonia
6/5, Olympiacos 6/5, Zalgiris Kaunas 5/7,
Fenerbahce 5/7, Panathinaikos 4/7, Alba
Berlín 4/7, Maccabi Tel Aviv 4/8, Rauða
stjarnan 4/8, Lyon-Villeurbanne 8/7,
Khimki Moskva 2/10.
Frönsku Evrópumeistararnir
sýndu í gær að þær eru til alls lík-
legar á EM í Danmörku og unnu
gestgjafana Dani 23:20 í A-riðlinum
í Herning. Frakkar og Rússar fara
með 4 stig í milliriðil 1 og þessi lið
virðast vera mjög sterk miðað við
riðlakeppnina. Þau eiga eftir að
mætast í milliriðlinum. Danir eru
með 2 stig og hafa örugglega ekki
sagt sitt síðasta orð en gætu þurft
að vinna Rússa í milliriðlinum til að
komast í undanúrslit. Danir gera
væntanlega þá kröfu til liðsins að
það leiki um verðlaun á heimavelli
enda handboltahefðin töluverð í
Danmörku. Svíþjóð og Spánn eru
með 1 stig í milliriðli 1 og Svart-
fjallaland 0. Svartfjallaland vann
Slóveníu í gær 26:25 og tryggði sér
þar með sæti í milliriðlinum.
Grace Zaadi Deuna og Orlane
Kanor skoruðu 5 mörk hvor fyrir
Frakka en hjá Dönum var Anne
Mette Hansen atkvæðamest með 5
mörk.
Heimsmeistararnir tóku við sér
Hollensku heimsmeistararnir í
sneru blaðinu við í gær og tryggðu
sér sæti í milliriðli 2 með því að
sigra Ungverja, 28:24, í lokaumferð
C-riðils keppninnar í Kolding.
Holland hafði tapað fyrir bæði
Króatíu og Serbíu og varð að vinna
leikinn til að enda ekki í neðsta sæti
og fara heim.
Ungverjar voru lengi yfir en hol-
lenska liðið sneri leiknum sér í hag
þegar leið á seinni hálfleikinn.
Kelly Dulfer skoraði 8 mörk fyrir
Hollendinga og Antje Angela Mal-
enstein 5.
Króatar unnu riðilinn með 6 stig
og Ungverjaland og Holland með 2
stig halda einnig áfram keppni.
Serbar fengu 2 stig en eru úr leik
vegna innbyrðis úrslita.
Króatía fer þar með í milliriðilinn
með 4 stig, Holland með 2 stig en
Ungverjar fara stigalausir áfram.
Þar sem Serbía fer ekki áfram í
milliriðilinn skipta þau úrslit ekki
lengur máli fyrir Holland. Heims-
meistararnir eiga því enn fína
möguleika á því að komast í undan-
úrslit. Noregur, undir stjórn Þóris
Hergeirssonar, er með 4 stig í milli-
riðli 2 eins og Króatía. Þýskaland
er með 2 stig og Rúmenía 0.
AFP
EM Pauline Coatanea og liðsfélagar í franska liðinu stöðvuðu þær dönsku.
Þær frönsku til
alls líklegar á EM