Morgunblaðið - 09.12.2020, Page 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta eru mikil uppáhaldslög í bland
við frumsamið efni,“ segir söngkonan
Stína Ágústsdóttir sem nýverið sendi
frá sér stuttskífu sem nefnist The
Whale. Flytjendur með Stínu eru
Mikael Máni Ásmundsson gítar-
leikari og Anna Gréta Sigurðardóttir
píanóleikari, sem spiluðu fyrst saman
sem tríó á tónleikum í Hannesarholti
fyrir um tveimur árum. Platan er
þegar aðgengileg á Íslandi á
streymisveitum, en kemur ekki form-
lega út í öðrum löndum heims fyrr en
í febrúar 2021.
Platan inniheldur túlkun þeirra á
„Buckets of Rain“ eftir Bob Dylan,
„Dogs“ eftir Damien Rice, „Both Si-
des Now“ eftir Joni Mitchell ásamt
frumsömdu lögunum „I Don’t Want
to Sleep“ eftir Mikael Mána og titil-
lagið „The Whale“ eftir Stínu og
Önnu Grétu. Auk þess spunnu þau
lagið „After the Rain“ út frá sólói úr
lagi eftir gítarleikarann Nir Felder.
Árið byrjaði með stæl
Aðspurð segir Stína breytta tón-
listarneyslu fólks, sem hætt sé að
kaupa plötur í föstu formi, kalla á
breytt útgáfuform. „Þegar tónlistar-
neyslan fer fram í gegnum streymis-
veitur er rökréttara að senda oftar
frá sér efni og þá færri lög í einu,“
segir Stína og tekur fram að eftir
sem áður kalli sum konsept á meiri
úrvinnslu. „Ég er til dæmis að vinna
að næstu sólóplötu með Mikael Mána
og fleirum sem við munum taka upp
á næsta ári. Hún verður að minnsta
kosti 10 laga, af því að efniviðurinn
kallar á það,“ segir Stína og tekur
fram að furðulegt ár sé að baki út af
faraldrinum.
„Árið byrjaði með stæl þar sem ég
söng með Stórsveit Reykjavíkur í
Eldborg Hörpu. Í framhaldinu tók-
um við Mikael Máni og Anna Gréta
upp plötuna í Sundlauginni, eftir að
hafa hlotið til þess hljóðritastyrk
Rannís. Stuttu síðar var landamær-
um heims lokað með tiheyrandi raski
á öllu tónleikahaldi,“ segir Stína og
tekur sem dæmi að hún hafi ekki get-
að sungið á tónleikum á Jómfrúnni í
ágúst eins og til stóð og einnig hafi
hún átt að vera á Íslandi núna í des-
ember að halda tónleika með Eyþóri
Gunnarssyni píanista, Einari Schev-
ing trommuleikara og Henrik Linder
bassaleikara. „Vonandi náum við að
halda tónleikana á vegum djass-
klúbbsins Múlans með vorinu, enda
er þetta þrusuband,“ segir Stína og
tekur fram að á venjulegu ári komi
hún mörgun sinnum til Íslands að
halda tónleika.
Fólk grét af geðshræringu
„Hér í Stokkhólmi hefur einn
djassklúbbur fengið að hafa opið síð-
ustu marga mánuði. Fyrir um tveim-
ur vikum var ég svo heppin að fá að
spila fyrir fullu húsi, sem þá var um
tuttugu manns, ásamt geggjuðu
bandi þar sem bassaundrið Henrik
Linder spilaði með,“ segir Stína og
rifjar upp að áhorfendur hafi grátið
af geðshræringu.
„Það er eins og að komast í mikinn
fjársjóð að fá að syngja og spila fyrir
áhorfendur í sal. Þetta voru síðustu
tónleikar ársins hjá okkur og því sér-
lega dýrmætir. Henrik hefði átt að
vera á tónleikaferðalagi allt þetta ár
á risastórum tónleikastöðum, enda
stórstjarna. Tónleikar okkar um dag-
inn voru einir af mjög fáum tón-
leikum sem hann hefur getað haldið í
ár og honum fannst geggjað að fá aft-
ur að mæta áhorfendum.“
Spurð hvernig sé fyrir Stínu sem
tónlistarmann að þreyja þorrann í
núverandi ástandi svarar hún um hæl
að hún sé svo heppin að vera vel gift.
„Maðurinn minn vinnur í upplýsinga-
tæknigeiranum og hefur því allt of
mikið að gera í núverandi ástandi. Ég
hef í raun enga vinnu í augnablikinu
þar sem tónleikahald hefur dregist
mjög mikið saman, en á móti hef ég
aldrei samið jafnmikið af tónlist eins
og á þessu ári sem fer senn að ljúka.
Þegar ég sá í hvað stefndi fór ég
strax í það að finna mér samstarfs-
félaga, því mér finnst alltaf best að
semja tónlist í samstarfi við aðra,“
segir Stína sem hefur verið að vinna
m.a. með kanadísku danstónlistar-
dúói, sænskum píanóleikara í Stokk-
hólmi og íslenska rapparanum Kíló.
Svo mikill sveimhugi
„Mér finnst gaman að gera alls
konar tónlist, en það helst líka í hend-
ur við það hversu mikill sveimhugi ég
er. Ég get ekki einbeitt mér að ein-
hverju einu allt of lengi í einu,“ segir
Stína og rifjar í því samhengi upp
fremur krókótta leið sína að tón-
listarbransanum. „Ég byrjaði sem
dansari áður en ég kláraði síðan
verkfræðina, en komst að því að það
var ekki nógu skemmtilegt starf,“
segir Stína og rifjar upp að hún hafi
gefið sjálfri sér það í útskriftargjöf
þegar hún kláraði vélaverkfræðina á
sínum tíma að hefja söngnám.
„Smám saman tók tónlistin hins veg-
ar yfir, þegar ég fann að hún fyllti
hjarta mitt meiri gleði en verkfræðin
var fær um,“ segir Stína sem stund-
aði framhaldsnám í djasssöng í
Montreal í Kanada.
Tríó Anna Gréta Sigurðardóttir, Stína Ágústsdóttir og Mikael Máni Ásmundsson ná vel saman í tónlistinni.
Dýrmætt að spila fyrir fólk
Tríó Stínu Ágústsdóttur sendir frá sér plötuna The Whale Blanda af uppá-
haldslögum og frumsömdu efni Fann ekki gleðina í verkfræði og fór í tónlist
Fjölskylda rithöf-
undarins Roalds
Dahls hefur beð-
ist afsökunar á
neikvæðum um-
mælum hans um
gyðinga. Í frétt
The Guardian um
málið er rifjað
upp að Dahl, sem
lést fyrir um 30
árum, hafi í viðtali við New States-
man 1983 m.a. sagt að það væri eitt-
hvað í eðli fólks af gyðingaættum
sem leiddi til andúðar gegn því.
„Hugsanlega er það skorturinn á
göfuglyndi við þá sem ekki eru gyð-
ingar. Ég meina það er alltaf ástæða
fyrir því að andstaða við eitthvað
kemur upp,“ sagði Dahl og bætti við:
„Jafnvel óféti á borð við Hitler var
ekki að níðast á þeim að tilefnis-
lausu.“ Í yfirlýsingu fjölskyldunnar,
sem birt er á opinberum vef Dahls,
segir að hún biðjist afsökunar á
þeim harmi sem orð hans hafi eðli-
lega valdið. „Þessi fordómafullu um-
mæli eru okkur óskiljanleg og ósam-
ræmanleg manninum sem við
þekktum og þeim gildum sem birtast
í sögum Dahls, sem hafa haft jákvæð
áhrif á ungt fólk kynslóðum saman.“
Fjölskylda Dahls
biðst afsökunar
Roald Dahl
Viðtökurnar við
nýrri streymis-
veitu kvikmynda-
hússins Bíós
Paradísar,
Heimabíó Para-
dís, hafa verið
vonum framar,
að því er fram
kemur í tilkynn-
ingu, og til að
gleðja velunnara sína hefur kvik-
myndahúsið nú kynnt til sögunnar
jóladagatal. Í því verður ein sér-
valin kvikmynd á dag sýnd ókeypis
í sólarhring.
Frekari upplýsingar um dagatal-
ið og Heimabíó Paradís má finna á
vefslóðinni heima.bioparadis.is/is.
Hrönn Sveinsdóttir er fram-
kvæmdastjóri sjálfseignarstofn-
unarinnar Heimilis kvikmyndanna
sem rekur Bíó Paradís.
Ókeypis bíómyndir
í jóladagatali
Hrönn Sveinsdóttir
Warner Bros. til-
kynnti á dögun-
um að allar þær
kvikmyndir sem
fyrirtækið fram-
leiðir og mun
frumsýna á
næsta ári verði
samtímis gerðar
aðgengilegar á
streymisveitunni
HBO Max sem er
í eigu þess.
Sambíóin eiga sýningarréttinn að
kvikmyndum Warner Bros. hér á
landi og segir Þorvaldur Árnason,
framkvæmdastjóri Samfilm sem er
dreifingarhluti Sambíóanna, að
þessi ákvörðun komi ekki til með að
hafa áhrif á dreifingu myndanna
hér á landi þar sem HBO Max sé að-
eins í boði í Bandaríkjunum. „Það
sem er jákvætt fyrir bíóin í Evrópu
er að við erum alla vega að fá stað-
festingu á því að við fáum þessar
myndir, að þeim sé ekki bara frest-
að út af ástandinu í Bandaríkj-
unum. Warner-menn eru að stað-
festa að þessar myndir muni koma
og það kæmi ekki á óvart að í mörg-
um tilvikum fengjum við að byrja á
undan Bandaríkjunum eins og núna
með Wonder Woman, við erum tíu
dögum á undan þeim að opna
myndina,“ segir Þorvaldur og á þar
við Wonder Woman 1984 sem frum-
sýnd verður hér á landi 16. desem-
ber.
Barist í bökkum
Þorvaldur segir að auðvitað séu
þetta skrítnir tímar, allir í kvik-
myndabransanum að berjast í
bökkum og leita leiða til að koma
sínu efni út. Hann segir þó hafa
komið á óvart að þessi ákvörðun
Warner Bros. ætti við allt árið 2021.
„Við sem umboðsaðilar Warner
verðum að vinna með þetta og vit-
um ekki nákvæmlega hvernig þetta
spilast en það sem er jákvætt fyrir
okkur er að við getum farið að
plana eitthvað, vitum að þessar
myndir eru að fara að koma,“ segir
Þorvaldur. Wonder Woman 1984
verði fyrsta stóra kvikmyndin sem
bíóin fái til sýninga frá því Tenet
var frumsýnd í sumarlok.
Degi eftir að rætt var við Þorvald
kom í ljós að frá og með morgun-
deginum, 10. desember, verður
heimilt að taka á móti allt að 50 sitj-
andi gestum og þeim skylt að nota
grímu og allt að 100 börnum fædd-
um 2005 og síðar.
helgisnaer@mbl.is
Ákvörðun Warner
hefur ekki áhrif hér
Þorvaldur
Árnason
Undrakonan mætir í bíó eftir viku
FM 89
,5
FM 10
1,9
(Akurey
ri)
OG Á
JOLA
RETRO
.IS
Jóladagatal
jólalögin á JólaRetró og
heppnin gæti verið með þér.
u þig tann á
e.is, hlusta u á bestu