Lögmannablaðið - 2016, Síða 12

Lögmannablaðið - 2016, Síða 12
UMFJÖLLUN 12 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16 eins og við þekkjum að getur gerst, þá getur stjórnarandstaðan átt erfiðara með að fóta sig í andstöðu sinni því að stjórnarmeirihlutinn hefur þingmenn sína plús ráðherrana og minnihlutinn ætti þá jafnvel við ofurefli að etja. Ég hef áhyggjur af þessu valdahlutfalli og það er klárt mál að þetta myndi skekkja umræðuna. Hinn kosturinn væri e.t.v. að ráðherrar veljist utan hóps þingmanna og muni þá ekki taka mikinn þátt í þingstörfum, en ég er ekki hrifin af því heldur. Það verður aldrei hægt að hefta málfrelsi ráðherra á þinginu en ekki síður finnst mér skipta miklu máli að kjósendur hafi með það að gera hverjir verði ráðherrar. Þetta er ekki venjulegt starf því ráðherrar eru trúnaðarmenn almennings. Alþingi þarf að gæta að sér við lagasetningu Í nýjum dómi Hæstaréttar virðist því slegið föstu að ákvæði laga um meðferð sakamála um endur upptöku­ nefnd séu andstæð stjórnarskrá, þ.e. að ekki sé hægt að veita stjórn­ sýslu nefnd, sem heyri undir fram­ kvæmdavaldið, það hlutverk að fella úr gildi úrlausnir dómstóla. Er áætlað að grípa til einhverra aðgerða varð­ andi störf endurupptökunefndar vegna þessarar niðurstöðu? Mér finnst óhjákvæmilegt að bregð­ ast við dómnum með laga setningu og á von á því að frumvarp komi fram á næstu vikum en ég get ekki tjáð mig að svo stöddu um efnis lega þætti þess. Alþingi þarf að hafa frelsi til laga setningar eins og því ber sem löggjafarsamkunda og grund vallar­ stofnun, en það er kannski gömul saga og ný að að það þarf að gæta að sér. Skipun dómara Í svo til hvert skipti sem dómari er skipaður við Hæstarétt fer af stað umræða í samfélaginu um hvað eigi að liggja til grundvallar við skipan hans. Hvað á að þínu mati að liggja til grundvallar? Á dómarastéttin að endurspegla t.d. kynjasjónarmið? Auðvitað á ávallt að velja hæfasta einstaklinginn, það er ekki nokkur spurning. Það þarf þó að vera jafn­ vægi og við finnum það sjálf þegar kynin tala saman um tiltekin mál að þau koma með sitt hvora hluti að borðinu sem skipta verulega miklu máli. Konum hefur fjölgað mikið í lögfræðingastétt og þær eru að kveða sér meira hljóðs. Ég er sannfærð um að það muni skila sér í Hæstarétt. Mun fleiri konur eru núna dómarar í héraðsdómi en áður og þessi þróun mun halda áfram. Svo finnst mér vægast sagt skjóta skökku við að nefnd sem að hefur með skipan dómara að gera sé eingöngu skipuð öðru kyninu. Mér finnst það bara ekki hægt. Ráðuneytið hefur skrifað ótal bréf og farið fram á það að menn litu til kynjasjónarmiða við val í þessa nefnd en því hefur ekki verið sinnt. Því munum við koma með frumvarp um breytingar á. Við eigum von á að drög að frumvarpinu verði sett í umsagnarferli innan tíðar og er það minn vilji að þær breytingar sem þar verða lagðar til taki strax gildi. Gjafsóknarmál Það hefur verið gagnrýnt að ekki sé nægilegt fjármagn sett í gjafsóknarmál og m.a. mega einstaklingar ekki hafa meira en tvær milljónir í árstekjur á meðan mörkin eru fimm milljónir í Danmörku. Hefur þú sem ráðherra hug á að beita þér í gjafsóknarmálum? Gjafsóknarmál eru í ákveðnu ferli og það er ekki stefnumarkandi ákvörðun í farvatninu vegna þeirra. Þetta er auðvitað eitt af þeim málum sem við þurfum að líta til en við erum með það stór mál í gangi í ráðuneytinu í augnablikinu sem ganga fyrir. Nú fer að styttast í þinglok og framundan er kosningavetur. Ég hugsa að Ljósmynd: Ernir Eyjólfsson

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.