Lögmannablaðið - 2016, Page 28

Lögmannablaðið - 2016, Page 28
UMFJÖLLUN ákvörð un refsingar kemur skýrt fram að Hæstiréttur lítur háttsemina alvar­ legum augum. Vísað er til þess að brotin hafi verið mjög umfangsmikil, þaulskipulögð og staðið yfir í langan tíma. Rétturinn vísar til þess að brotin hafi leitt til alvarlegrar röskunar á verðbréfamarkaði með víðtækum afleið ingum fyrir fjármálamarkaðinn hér á landi og allan almenning. Tjónið, sem af brotunum hlaust, telur Hæstiréttur ekki verða metið til fjár.“ Hæstiréttur leiðir fram bannreglu með gagnályktun Helga Melkorka Óttarsdóttir fór þá leið að ræða þau atriði sem hún sagðist staldra við við lestur dómsins, án þess þó að sögn að ætla sér að draga af þeim sérstakar ályktanir um hvað væri í sjálfu sér rétt eða rangt í málinu. Það fyrsta sem Helga Melkorka sá ástæðu til að ræða var að í málinu sá Hæstiréttur ástæðu til að túlka ákvæði verðbréfaviðskiptalaga um markaðsmisnotkun með gagnályktun þannig að fjármálafyrirtækjum væri óheimilt að greiða fyrir viðskiptum á skipulögðum verðbréfamarkaði með bréf í sjálfum sér í því skyni að markaður skapaðist. „Það er ekkert ákvæði í lögunum sem segir að það sé óheimilt fyrir fjármálafyrirtæki að vera sjálft viðskiptavaki með eigin bréf en Hæstiréttur gagnályktar og segir að það sé óheimilt“, sagði Helga Melkorka. „Þetta er ekki eina atriðið sem ræður þeirri niðurstöðu að um mark aðs misnotkun hafi verið að ræða, en þetta klárlega vegur tölu­ vert þungt í þeirri niðurstöðu og þeirri röksemdafærslu,“ sagði Helga Melkorka enn fremur. „Brot á þessari bann reglu, sem leidd er fram með gagn ályktun, er svo grundvöllur sak­ fell ingar og refsingar“. Helga Melkorka taldi umhugsunar­ vert að þetta væri hluti af heimfærslu og niðurstöðu Hæstaréttar og sagði: „Það er miðað við það í okkar réttar­ kerfi að refsiheimildir séu lögbundnar og við höfum lagt áherslu á að refsi­ heimildir séu lögbundnar. Ef vafi er á því hvort að háttsemi sé refsiverð eða hvort hún fellur undir refsiákvæði ber að skýra þann vafa sakborningi í hag.“ Ólögmætar hlustanir geti haft áhrif á rannsókn Helga Melkorka gerði þessu næst að umtalsefni að það kæmi fram í dómnum að símtöl sakborninga við verjendur væru hlustuð og þeim ekki eytt, þrátt fyrir ákvæði sakamálalaga um að eyða skuli slíkum upptökum þegar í stað. Þessi símtöl hafi þó ekki verið lögð fram. „Af því að þessar upptökur voru ekki lagðar fram í málinu þá var þetta bara allt í lagi. Það hlýtur að skilja mann eftir með það að það hlýtur að hafa áhrif inn í málið ef að búið er að hlusta einu sinni. Þá mögulega er sá sem er að rannsaka með tiltekin atriði í huga, jafnvel þó að símtalið sé ekki lagt fram í málinu,“ sagði Helga Melkorka. Hins vegar hafi símtöl sem sak­ borningar áttu við aðra en verjendur, skömmu eftir skýrslutöku, verið meðal gagna málsins og Hæstiréttur gert við Litlaprent ehf. | Miðaprent ehf. | Skemmuvegi 4 | 200 Kópavogi Sími 540 1800 | Fax 540 1801 | litlaprent@litlaprent.is | midaprent@midaprent.is Stórt verk lítið mál Flestar gerðir límmiðaFORVINNSLA PRENTUN FRÁGANGUR

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.