Tölvumál - 01.01.2017, Síða 37
37
og var engin rannsókn framkvæmd í tengslum við greinina. Samt er talin
ástæða til að vitna í þessa skýringu á ráðstefnu Bugl24.
O‘KEEFFE OG ÖRUGG NETNOTKUN
O‘Keeffe26 tekur allt annan pól í hæðina en hinar þrjár. Hún einblínir á
örugga notkun en ekki fíkn eða heilkenni. O‘Keeffe notar heimildir aðallega
til að sýna fram á hvað börn og ungmenni eru að gera á netinu. Fullyrðingar
hennar eru hógværar. Hún segir að samfélagsmiðlar séu tæki og séu
aðeins hættulegir ef þeir eru notaðir hættulega. Ég hef heldur ekki fundið
nein dæmi um ranga eða vafasama meðhöndlun á heimildum hjá henni.
Hún virðist til dæmis ekki nota fylgnirannsóknir til að sýna fram á orsakir.
Hér virðist því vera allt önnur og betri vinnubrögð á ferðinni. Því er ljóst
að hægt er að fara á ábyrgan hátt með heimildir í þessum málaflokki.
SANNLÍKI
Spurningin sem vaknar hjá mér eftir að hafa skoðað frumheimildir og
heimildanotkun þriggja þessara kvenna er hversu mikið er að marka
málflutning þeirra. Við lifum á upplýsingaöld en líka á öld sannlíkis (e.
alternative truth). Hver sem er getur sett fram fullyrðingar og stundum
verður til sannlíki á netinu – eitthvað sem auðvelt er að finna og fletta upp
en á sér litla eða enga stoð í raunveruleikanum. Að vera með menntun
á ákveðnu sviði þýðir ekki sjálfkrafa að viðkomandi fari rétt með heimildir.
Þegar um er að ræða sérfræðinga sem tjá sig á vefnum eða í eigin bókum
er enginn sem athugar heimildirnar. Vissulega eru til sérfræðingar eins
og O‘Keeffe sem stunda ábyrga meðhöndlun heimilda en það er bara
alls ekki algilt að svo sé. Lesandinn þarf að skoða hvort eitthvað sé að
marka fullyrðingarnar. Sé það ekki gert ferðast sannlíkið áfram. Eins og
ég hef sýnt með dæmum þá enda sannlíki á ráðstefnum hérlendis og
fara þaðan út í samfélagið þar sem það lifir væntanlega sjálfstæðu lífi
óháð rannsóknum og fræðimennsku.
Lesendum er bent á að Tölvumál er ekki fræðitímarit og greinar eru ekki
ritrýndar. Lesendur eru því hvattir til að kynna sér heimildir sem vísað er
á í greininni til að meta sjálfir sannleiksgildi þess sem fram kemur. Höfundur
hefur lagt mikla áherslur á að nota heimildir sem eru aðgengilegar og
lesendur geta sannreynt. Hægt er að fara á síðuna notendur.hi.is/asb23/
heimildir.html. Þar eru beinir tenglar á allt aðgengilegt efni sem vitnað er
til.
(ENDNOTES)
1 O’Keeffe, G. S., & ClarkePearson, K. (2011). The impact of social
media on children, adolescents, and families. Pediatrics, 127(4), 800
804.
2 O’Keeffe, G. S. (2012). Overview:: New Media. Pediatric Clinics of
North America, 59(3), 589600.
3 SteinerAdair, C. (2015). The Big Disconnect: Your Student in Class
vs. Your Student Online. Independent School, 74(2), n2.
4 Sjostrom, L. A., & SteinerAdair, C. (2005). Full of ourselves: A wellness
program to advance girl power, health & leadership: An eating disorders
prevention program that works. Journal of nutrition education and
behavior, 37, S141S144.
5 SteinerAdair, C., & Barker, T. H. (2013). The big disconnect: Protecting
childhood and family relationships in the digital age. Harper Business.
6 Dunckley, V. L. (2015). Reset Your Child’s Brain: A FourWeek Plan to
End Meltdowns, Raise Grades, and Boost Social Skills by Reversing
the Effects of Electronic ScreenTime. New World Library.
7 O’Keeffe, G. S. (2005). CyberSafe. Elk Grove Village, IL: AAP Books,
2479.
8 Rowan, C. (2010). Virtual Child: The terrifying truth about what
technology is doing to children. Sunshine Coast Occupational Therapy
Incorporated.
9 Pediatrics Now (e.d). Pediatrics Now. Sótt 13. maí 2017 af http://www.
pediatricsnow.com/.
10 SteinerAdair (e.d.). Catherine SteinerAdair. Sótt 13. maí 2017 af http://
catherinesteineradair.com/.
11 Dunckley, V.L. (e.d.). Victoria L. Duncley, M.D.. Sótt 13. maí 2017 af
http://drdunckley.com/.
12 Zone in Workshops (e.d). Zone in Workshops. Sótt 13. maí 2017 af
http://www.pediatricsnow.com/.
13 NBC Wasington (2011, 12. september). Study says SpongeBob bad
for kid‘s mental function. Sótt 12. maí 2017 af http://www.
nbcwashington.com/news/local/DCStudySaysSpongeBobBad
ForKidsMentalFunction129641993.html.
14 Worthen, B. (2012, 29. September) The Perils of Texting While Parenting.
Wall Street Journal. Sótt 12. maí af 2017 https://www.wsj.com/articles/
SB10000872396390444772404577589683644202996.
15 Rowan, C. (e.d.). Mixed Signals. Sótt 15. maí 2017 af http://
leikskolaborn.is/wpcontent/uploads/2017/03/CrisRowanReykjavik
Conference2017Presentation.pdf.
16 Tick, B., Bolton, P., Happé, F., Rutter, M., & Rijsdijk, F. (2015). Heritability
of autism spectrum disorders: a metaanalysis of twin studies. Journal
of Child Psychology and Psychiatry.
17 Phelan, J (2015, 24. Febrúar). Monsanto Glyphosate Roundup Herbicide
Triggers Autism in Children. MIT Scientist. Global Reasearch. Sótt 15.
maí 2017 af http://www.globalresearch.ca/monsantoglyphosate
roundupherbicidetriggersautisminchildrenmitscientist/5433023.
18 Beecham, J. E., & Seneff, S. (2016). Is there a link between autism and
glyphosateformulated herbicides? Journal of Autism, 3(1), 1.
19 Wolak, J., Mitchell, K., & Finkelhor, D. (2007). Unwanted and wanted
exposure to online pornography in a national sample of youth Internet
users. Pediatrics, 119(2), 247257.
20 Dunkley, V.L. (2014, 27. febrúar). Gray matters: Too much screen time
damages the brain. Psychology Today. Sótt 15. maí 2017 af https://
www.psychologytoday.com/blog/mentalwealth/201402/graymatters
toomuchscreentimedamagesthebrain.
21 Dunkley, V.L. (2016, 31. desember). Autism and screen time: Special
brains, special risks. Psychology Today. Sótt 12. maí 2017 af https://
www.psychologytoday.com/blog/mentalwealth/201612/autismand
screentimespecialbrainsspecialrisks.
22 Theoharides, T. C., Asadi, S., & Patel, A. B. (2013). Focal brain
inflammation and autism. Journal of neuroinflammation, 10(1), 46.
23 Ranjbaran, Z., Keeffer, L., Stepanski, E., Farhadi, A., & Keshavarzian,
A. (2007). The relevance of sleep abnormalities to chronic inflammatory
conditions. Inflammation Research, 56(2), 5157.
24 Björn Hjálmarsson (e.d.). Rafrænt skjáheilkenn – staðreynd eða mýta?
Landspítalinn. Sótt 15. maí 2017 af http://www.landspitali.is/library/
Sameiginlegarskrar/Gagnasafn/Klinisksvidogdeildir/Kvennaog
barnasvid/Gognfyrirradstefnur/HinngullnimedalvegurFyrir
lestrar2017/bjornhjalmarsson.pdf.
25 Herbert, M. R., & Sage, C. (2013). Autism and EMF? Plausibility of a
pathophysiological link–Part I. Pathophysiology, 20(3), 191209.
26 O’Keeffe, G. S. (e.d). Teen Issues and Social Media: Which came first:
the issues or the Apps? Landspítalinn. Sótt 15. maí 2017 af http://
www.landspitali.is/default.aspx?pageid=00790bd941134429b2f3
c0e6cd3e21d5