Tölvumál - 01.01.2018, Síða 12
12
ákveðna breytingu. Við förum á dýptina og reynum að skila hvaðan
starfsmaðurinn er að koma. Niðurstaðan er að við höfum þroskast í að
skilja fólk betur og hvernig það vinnur saman í svona verkefnum.
HVERNIG SÉRÐU FYRIR ÞÉR STAFRÆNA
ÞRÓUN FYRIRTÆKJA OG STOFNANA Á
ÍSLANDI Á NÆSTU 5-10 ÁRUM OG HVAR
SÉRÐU MESTU OG EÐA MINNSTU
UMBREYTINGUNA OG AF HVERJU.
Ef síðustu tvö ár hafa eitthvað forspárgildi fyrir það sem koma skal þá
hefur verið alger sprengja í verkefnum. Fyrir ári síðan var til dæmis ekkert
tryggingafélag komið af stað í rafræna umbreytingu en nú eru þrjú félög
farin af stað. Ég held að þetta komi bara til með að aukast og það eru
en þá fullt af brönsum sem eiga eftir að fara í gegnum þessa umbreytingu.
Hið opinbera er aðeins komið af stað en er samt talsvert langt á eftir. Við
sjáum að Reykjavíkurborg er búið að stofna einingu sem heitir rafræn
þjónustumiðstöð og á spítölunum er mikil vinna í kringum „lean“ í gangi
sem tengist oft mjög mikið hugbúnaðarþróun. Hjá þjóðskrá er verið að
rafvæða þinglýsingarnar og svo er það skatturinn sem er komin býsna
langt og búinn að vera 10-15 ár með rafrænar skattskýrslur. Það er svona
tilgáta hjá mér að eldri stjórnendur hjá rótgrónum fyrirtækjum hafi vonast
til að þurfa ekki að takast á við þetta og að bylgjan myndi koma svona
eftir þeirra síðasta dag en ég held að þetta fari ekki almennilega af stað
fyrr en við sjáum næstu kynslóðaskiptingu stjórnenda í íslenskum
fyrirtækjum í dag. Stjórnendur sem eru að byrja að leiða fyrirtæki í dag,
hafandi sjálfir verið í umbreytingu og hluti af henni á meðan hún stóð yfir.
Hluti af því sem er að gerast er eitthvað sem fólk að fást við í fyrsta sinn,
þú finnur ekki marga stjórnendur sem eru með margra ára reynslu af
stafrænni umbreytingu. Stjórnendur hafa sumir verið að bíða eftir næstu
niðursveiflu og talið var að hún kæmi 2017, nú er hins vegar komið 2018
og hún er ennþá ókomin en við erum að nálgast það að vera á toppnum
í hagsveiflunni. Ég hef ekki miklar áhyggjur af niðursveiflunni í tengslum
við Kolibri þar sem mig grunar að verði af henni þá muni hún hraða
umbreytingunni vegna hagræðingarpressu innan fyrirtækja. [Innskot
blm: við vitum að eftirspurnin eftir þessari þjónustu mun bara
aukast en spurningin er þá, verður nógu og mikið af færni og
þekkingu til staðar til að sinna henni?]. Ég er ekki viss um það
og eitt af því sem gerir okkar módel ákjósanlegt er að stórum rótgrónum
fyrirtækjum tekst ekki alltaf að halda í rétta fólkið, fólk sem það þarf í
þessar breytingar, sem eru ekki hefðbundnir forritarar eða hugbúnaðar-
sérfræðingar. Við höfum lagt gífurlega mikið á okkur til að byggja upp
menningu til að halda í rétta fólkið.
HVERNIG STENDUR ÍSLAND SIG Í ÞESSARI
ÞRÓUN MIÐAÐA VIÐ OKKAR HELSTU
SAMKEPPNISLÖND? (STYRKLEIKAR
VEIKLEIKAR).
Ef ég horfi út á landslagið út frá mínu sjónarhorni sem þjónustufyrirtæki
á Íslandi þá er Ísland ekki samkeppnishæft í launum, við erum of há.
Kolibri er alltaf svona að gjóa augunum erlendis og við erum klár að við
eigum erindi þangað líka en launakostnaðurinn er erfiður í því samhengi
og þau tímaverð sem við erum að selja þjónustuna okkar á eru ekki
samkeppnishæf við það sem er í gangi í nágrannalöndunum okkar eins
og Danmörku og Bretlandi. Ef þú horfir á það sem er að gerast þá er
verið að auka framleiðni í fyrirtækjum með tækni og maður myndi ætla
að sökum smæðar að það myndi vinna með okkur, minni fyrirtæki, minni
pólitík og auðveldara að koma breytingum í gegn heldur en þegar þú ert
með mörg þúsund manna fyrirtæki. Ef við horfum á framleiðni á Íslandi
í sögulegu tilliti þá stöndumst við ekki erlendan samanburð en við náum
því fram með því að vinna meira en nágrannaþjóðir okkar. Það er mjög
erfitt að spá fyrir um þetta en ég myndi halda að við værum með eiginleika
sem þjóð sem gerir okkur kleift í að fara hraðar í breytingar en aðrir. Það
sem vinnur gegn okkur er þessi einangrun en það er í raun samkeppnin
erlendis sem neyðir fyrirtæki út umbreytinguna, íslensk fyrirtæki komast
í raun upp með að fara að eins hægar í sakirnar.
Í lokin vill Ólafur Örn beina því til fyrirtækja að byrja einhversstaðar, byrja
bara smátt og gera tilraunir en umfram allt bara að byrja.
GAMLAR
MYNDIR