Tölvumál - 01.01.2018, Side 31
31
flæðirit og skrifað eitthvað sniðugt fyrir ómennið að segja. Og svo ákváðum
við bara að stinga vélinni í samband í staðinn fyrir að liggja yfir þessu of
lengi. Aðeins þannig, með spjalli við notendur og rýni í gögn, getum við
bætt lausnina og þróað hana áfram. Þannig er þetta auðvitað stöðugt
verkefni, en með tímanum verður utanumhaldið minna og minna. Það
er jú einmitt af mistökunum sem við lærum.
Ég hvet ykkur eindregið til að heimsækja síðuna og rabba aðeins við
bottann okkar. Hann er nú hálfgerður óviti ennþá, enda bara nokkurra
vikna. Vinna við útgáfu 2.0. er þó hafin og það lítur út fyrir að skipt verði
um bakenda og snjallari gervigreind nýtt í þeirri útgáfu.
GETUR MEÐFERÐ Í GEGNUM
VEFINN LAGAÐ SVEFNLEYSI
Á ÁRANGURSRÍKAN HÁTT?
Flestir kannast við að fara í fjarnám, jafnvel fjarþjálfun, en hvað með að
fara í fjarmeðferð við sálrænum og/eða líkamlegum vandamálum? Hér
á landi er boðið uppá fjarmeðferð við svefnleysi inná vefnum www.
betrisvefn.is.
Svefnleysi er algengt vandamál sem hefur gjarnan neikvæð áhrif á heilsu,
líðan og lífsgæði þeirra sem af því þjást. Alþjóða heilbrigðisstofnunin og
klínískar leiðbeiningar mæla með hugrænni atferlismeðferð sem fyrsta
úrræði við langvarandi svefnleysi. Aðgengi að slíkri meðferð er hins vegar
afar takmarkað hér á landi þar sem fáir hafa sérhæft sig á þessu sviði,
meðferðin er dýr, biðlistar langir og eingöngu er hægt að nálgast
meðferðina á höfuðborgarsvæðinu. Þessar staðreyndir eru ef til vill hluti
af ástæðu þess að Íslendingar nota margfalt meira af svefnlyfjum en
þekkist hjá nágrannaþjóðum okkar. Svefnlyf eru hugsuð sem skammtíma
lausn og séu þau notuð í meira en 6 vikur samfellt geta ýmsar neikvæðar
afleiðingar fylgt notkuninni.
Vegna þessa ákváðu tveir læknar og einn sálfræðingur með sérhæfingu
á þessu sviði að bjóða uppá netmeðferð við svefnleysi inná vefnum www.
betrisvefn.is. Hugmyndin var að bjóða öllum landsmönnum aðgengi að
hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi á hagkvæmari hátt en áður hafi
þekkst og á þann máta að fólk gæti sinnt þessari meðferð á þeim stað
og á þeirri stund sem hentar hverjum og einum best. Meðferðin inná
vefnum var opnuð árið 2013 og var fyrsta sinnar tegundar á Norður-
löndunum en sambærileg meðferð hafði verið til í Bretlandi. Kerfið er
skrifað í Java og notar Spring Framework, keyrir í Spring Boot (embedded
tomcat container) á MySQL gagnagrunni. Vefþjónninn er hýstur í Azure
skýinu.
Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi er formföst meðferð sem tekur um
6 vikur og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að slík meðferð er árangursríkasta
úrræði sem völ er á við langvarandi svefnleysi. Meiri hluti sjúklinga nær
góðum árangri sem helst til lengri tíma. Í þessari meðferð halda skjól-
stæðingar nákvæma svefndagbók og fá viðeigandi fræðslu um svefn,
svefnleysi, svefnvenjur og fleira sem snertir vandann. Út frá svefndagbók
skjólstæðinga eru svo meðferðarinngrip ákvörðuð.
Sökum þess hversu formföst meðferðin er hentaði vel að koma henni
yfir á annað form og veita meðferð í gegnum vef. Þegar skjólstæðingar
hefja meðferð fá þeir aðgang að sínu heimasvæði þar sem þeir svara
spurningum um svefnvenjur, heilsu og lífsstíl. Inná þeirra svæði birtast
ný fræðslumyndbönd í hverri viku og dagleg svefnskráning fer einnig
fram inná svæðinu. Fólk getur sett sér persónuleg markmið er snerta
svefn, heilsu og lífsstíl og fá í hverri viku einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar
um breytingar á eigin svefnvenjum.
Þó svo að meðferð fari fram í gegnum vef stendur fólki til boða að hafa
samband við sálfræðing síðunnar ef einhverjar spurningar vakna eða ef
fólk þarf frekari aðstoð. Þessi samskipti fara fram í gegnum tölvupóst og
reynt er að svara fyrirspurnum innan 24 klukkustunda. Flestir fara í gegnum
meðferð án þess að þurfa á þessari auka hjálp að halda en mikilvægt er
þó að hún sé í boði.
Áður en meðferð hefst svarar fólk stuttum spurningalista sem metur hvort
að þetta form meðferðar henti viðkomandi. Ef annar alvarlegur vandi er
til staðar meðfram svefnleysinu er fólki oft vísað í einstaklingsmeðferð
hjá sálfræðingi með sérhæfingu í svefni eða í annars konar meðferð,
annað hvort hjá lækni eða sálfræðingi eftir því sem við á.
Nú þegar hafa verið gerðar rannsóknir á árangri þessarar meðferðar og
niðurstöðurnar sem lofuðu mjög góðu, voru birtar í Læknablaði Íslands
árið 2015. Nú stendur yfir rannsókn í samstarfi við Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins þar sem verið er að kanna hvort að þessi meðferð
gagnist skjólstæðingum heilsugæslunnar sem glíma við svefnvanda og
hvort draga megi úr ávísunum á svefnlyf ef fólki stendur þessi meðferð
til boða.
Það er ljóst að eins og staðan er í dag er ekki unnt að fylgja opinberum
leiðbeiningum um meðhöndlun langvarandi svefnleysis á Íslandi þar sem
Hugræn atferlismeðferð ætti að vera fyrsti kostur. Með því að nýta tæknina
og koma þessari meðferð á það form að hægt sé að veita hana yfir vef
ætti að vera mun auðveldara að framfylgja þessum leiðbeiningum. Vonandi
verður hægt í náinni framtíð að bjóða öllum þeim er þjást af langvarandi
svefnleysi uppá það val að fara í gegnum hugræna atferlismeðferð áður
en svefnlyf eru gefin.
Í raun mætti nýta fjarmeðferð á svipaðan hátt gegn mörgum öðrum
heilsufarslegum vandamálum. Hugræn atferlismeðferð við kvíða, depurð,
félagsfælni og öðrum kvillum getur til dæmis vel virkað í gegnum vef og
verður spennandi að sjá hvernig þróunin verður í þessum efnum. Það er
ljóst að aðgengi að sálfræðilegum meðferðum er oft skert, sérstaklega
á landsbyggðinni og gæti þar fjarmeðferð leyst ákveðinn vanda.
Erla Björnsdóttir sálfræðingur og doktor í svefnrannsóknum