Tölvumál - 01.01.2018, Síða 33
33
Hitchhiker‘s Guide to the Galaxy er frægt útvarpsleikrit eftir Douglas
Adams. Þar er fjallað um Englendinginn Arthur Dent sem lendir í því að
þurfa að fara á puttanum út í geim eftir að jörðin er eyðilögð. Í geimnum
tala menn önnur tungumál sem hann ekki skilur. Til allrar hamingju er
vinur hans Ford Prefect með í för og treður litlum gulum slímugum fisk
upp í eyrað á honum (BBC, 2014).
Fiskurinn sem um ræðir kallast Babel fiskur og er líklega það allra
furðulegasta í öllum alheiminum. Fiskurinn nærist á heilabylgjum og dregur
í sig tíðnisvið undirmeðvitundarinnar. Fiskurinn skilar svo úrgangi í formi
taugaboða sem berast til málúrvinnslusvæðis í heilanum. Það að stinga
svona fisk upp í eyrað hefur því í för með sér að viðkomandi skilur á
örskotsstundu allt sem er sagt við hann á hvaða tungumáli sem er (BBC
Studios, 2017).
Þessu leikriti var útvarpað árið 1978 og var þá eingöngu um vísinda-
skáldskap að ræða en í dag er Google búið að finna upp svipaða tækni
sem hefur álíka virkni og fiskurinn nema ekki eins slímuga. Babel-Fish
EarbudsTæknin sem um ræðir kallast Pixel Buds. Hún er þróuð af Google
og er í formi heyrnartóla. Þessi ágætu heyrnartól notast með Pixel
snjallsímanum þeirra og smáforritinu Google Translate. Tæknin virkar
þannig að ein manneskja setur heyrnartólin, sem eru eins konar
eyrnatappar, í eyrun á meðan önnur manneskja heldur á símanum. Sú
sem er með „fiskinn“ í eyranu, styður fingri á hægri eyrnatappann á meðan
hún segir eitthvað á sínu móðurmáli. Smáforritið þýðir það sem var sagt
yfir á tungumál sem er valið í símanum og spilar það upphátt. Manneskjan
sem heldur á símanum svarar því sem var spilað og svarið er síðan þýtt
til baka og spilað í gegnum heyrnartólin (Metz, 2017).
GÓÐ HUGMYND EN SLÆM HÖNNUN
Google Translate getur þýtt meira en 100 tungumál en Pixel Buds getur
enn sem komið er aðeins þýtt 40. Þessi nýja tækni getur brúað tungu-
málagjá milli tveggja einstaklinga nokkuð fljótt en þó ekki í rauntíma.
Samskiptin taka því aðeins lengri tíma en ella, því bíða þarf eftir að tækin
þýði það sem er verið að segja í samræðum. Þá ganga þessi samskipti
ekki alltaf villulaust fyrir sig eins og þeir þekkja sem hafa notað Google
Translate. Tækið á það til að klippa burt endann á setningum á meðan
fólk er ennþá að tala og skiptir jafnvel um tungumál í miðjum samræðum.
Helstu vankantar á tækinu eru þó hönnunin. Tækið er þungt og
fyrirferðarmikið í eyranu á þér. Þó að heyrnartólin eigi að vera þráðlaus
og notast við Bluetooth tækni er engu að síður snúra á milli eyrnatappanna
sem hægt er að herða til aðlögunar milli eyrna. Þá eiga eyrnatapparnir
það til að detta út ef viðkomandi er með lítil eyru. Hægt er að hlaða
heyrnatólin en rafhlaðan í þeim endist í 5 tíma (Metz, 2017).
GOOGLE TRANSLATE
Þar til í september 2016 notaði Google Phrase-Based Machine Translation
(PBMT) tækni í þýðingarnar sínar. Sú tækni byggir á Statistical Machine
Translation (SMT) en í stuttu máli þá safna eins mikið af upplýsingum í
formi texta með orðasamböndum og reyna að finna hliðstæður með
tveimur tungumálum. Síðan vinna þeir úr öllum gögnunum og reyna að
finna líkurnar á að eitthvað á einu tungumáli þýði eitthvað annað á öðru
tungumáli (Zhang, 2017). En Google Translate var ekki alltaf besta leiðin
til að þýða heilar málsgreinar af einu tungumáli yfir á annað. Hver kannast
ekki við að fá tölvupóst skrifaðan á „íslensku“ af nígerískum prins með
Google Translate. Ég fékk einu sinni slíkan póst og hann var svo
skemmtilega vitlaust skrifaður að það fékk mig til að brosa. Nú fer þessum
vitleysum fækkandi og vinur okkar frá Nígeríu er farinn að geta skrifað
nánast eins og innfæddur Íslendingur.
Google Translate.
Google Translate fer óðum fram í að þýða tungumál en frá árinu 2016
hafa þeir verið að notfæra sér framfarir á sviði gervigreindar. Nýja kerfið
þeirra GNMT (Google Neural Machine Translation), byggir á ANN eða
Artificial Neural Networks (Zhang, 2017). Artificial Neural Networks eru
notuð meðal annars í að talgreina og þekkja rithandarsýnishorn. Þessar
nýju aðferðir gera þeim kleift að greina setningar sem eina heild frekar
en að brjóta þær niður í einstök orð eða frasa. Með hjálp GNMT tekst
Google að draga úr villum við þýðingar um meira en 55-85% en vélrænar
þýðingar af þessu tagi eru ekki villulausar enn sem komið er, þó að þeim
hafi vissulega farið fram (Le og Schuster, 2016).
Mér finnst alltaf gaman að því þegar tæknin eltir vísindaskáldskapinn og
Douglas Adams hefði líklega haft gaman af þessum heyrnartólum. Ekki
veit ég hvort að hann hafi verið sá fyrsti sem lét sér detta í hug tæki að
til að þýða önnur tungumál, jafnóðum og maður heyrði það, en var alla
vega sá frumlegasti. Ég er líka viss um að sögupersónunni Arthur Dent
hefði líkað betur við að setja heyrnatól í eyrun heldur en að þurfa að troða
fisk þangað.
HEIMILDASKRÁ:
BBC. (2014). Comedy: The Hitchhiker‘s Guide To The Galaxy. Sótt 13.
september 2018 af http://www.bbc.co.uk/comedy/hitchhikersguide/
index.shtml
BBC Studios. (2017, 21. janúar). Babel Fish - The Oddest Thing In The
Universe - The Hitchhiker’s Guide To The Galaxy – BBC. [myndskeið].
Sótt 18. september 2018 af https://www.youtube.com/watch?
v=iuumnjJWFO4
Metz, R. (2017, 15. nóvember). MIT Technology Review. Sótt 13. september
2018 af https://www.technologyreview.com/s/609470/googles-pixel-
buds-translate-a-great-idea-into-horrible-design/#comments
Zhang, M. (2017, 17. ágúst). History and Frontier of the Neural Machine
Translation. Sótt 18. september 2018 af https://medium.com/
syncedreview/history-and-frontier-of-the-neural-machine-translation-
dc981d25422d
Le, Q. V. og Schuster, M. (2016, 27. september). A Neural Network for
Machine Translation, at Production Scale. [bloggfærsla]. Google AI
Blog. Sótt 13. september 2018 af https://ai.googleblog.com/2016/09/
a-neural-network-for-machine.html
BABEL FISKUR
Kolbeinn Páll Erlingsson, nemandi við Háskólann í Reykjavík