Tölvumál - 01.01.2018, Side 34

Tölvumál - 01.01.2018, Side 34
34 Fyrirsjáanlegur er skortur á tæknimenntuðu fólki í framtíðinni og þá sérstaklega í tölvunarfræði. Ýmis störf verða í náinni framtíð vélvædd að hluta eða að öllu leyti og má jafnvel leiða líkur að því að mörg þeirra verði störf sem nú eru í höndum kvenna frekar en karla, en í staðin munu skapast störf sem krefjast tæknikunnáttu. Einnig má benda á að nú er verið að hanna og þróa tækni og tæki framtíðarinnar og auðvitað þyrftu bæði kynin að koma að þeirri vinnu, því að það verða jú bæði kynin sem munu nýta sér tæknina. Það þarf að tryggja jafnari menntunar- og atvinnuþátttöku kynjanna í tæknigreinum, en hvernig förum við að því? Það er búið að reyna margt undanfarna áratugi, s.s. kynningarstörf, heimsóknir, „réttar“ myndir í kynningarefni, o.s.frv. Stofnuð hafa verið samtök eins og /sys/tur, Women Tech Iceland og Samtök kvenna í vísindum og haldinn er Stelpur og tækni dagur árlega. Forritunarkennsla hefur verið aukin í grunnskólum og meira framboð er af forritunarnámskeiðum fyrir börn, sem getur aukið áhuga á tæknigreinum. Því miður er það þó svo, að fjöldi kvenna í tæknigreinum á háskólastigi hefur lítið sem ekkert breyst undanfarin 20 ár. Þróunin í raunvísindum, stærðfræði og tölvunarfræði hefur lítið breyst frá 1997, eins og sést á mynd 1. Ef við skoðum tölvunarfræðina sérstaklega þá sjáum við að konum hefur ekki fjölgað á rúmum 20 árum, eins og mynd 2 sýnir. Þegar við skoðum kynjahlutföll í háskólanámi í verkfræði, mannvirki og byggingarverkfræði (orðalag af vef Hagstofunnar) frá 1997-2017 þá sést að konum hefur fjölgað úr 18% í 45%, sem er mikil breyting, eins og mynd 3 sýnir. Ástæðan fyrir þessari þróun gæti verið nýjar námsleiðir í verkfræði s.s. Heilbrigðisverkfræði og Umhverfisverkfræði. Þó að staðan hafi lítið breyst á rúmum 20 árum þá hefur hún ekki versnað og vonandi hefur það sem gert hefur verið haft sín áhrif. Það sem hefur reynst vel er t.d. að breyta framsetningu á kennsluefni og nöfnum á námskeiðum og námsbrautum. Gott dæmi er frá Berkeley háskóla þar sem námskeiðinu Introduction to Symbolic Programming var breytt í The Beauty and the Joy of Computing, sem jók aðsókn og upplifun nemenda á jákvæðan hátt. Aukinn stuðningur við nemendur sem hafa ekki mikinn bakgrunn í forritun þegar þeir hefja nám hefur góð áhrif og einnig að fjölga kvenkennurum í tæknigreinum, sem hefur reynst vel því fyrirmyndir í námi og starfi skipta miklu máli. Rannsóknir hafa leitt í ljós að konur velja tölvunarfræðinám síður en karlar, meðal annars vegna skorts á sjálfstrausti, fyrirmyndum og hvatningu frá kennurum og foreldrum, en einnig vegna þess að kennsluumhverfið hefur ekki alltaf verið nógu aðlaðandi fyrir konur. STELPUR, LÁTIÐ EKKI STAÐALÍMYNDIR HREKJA YKKUR FRÁ TÆKNIGREINUM Dr. Ásrún Matthíasdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík Mynd 1. Kynjamunur í raunvísindum, stærðfræði og tölvunarfræði í háskólum á Íslandi. Mynd 2. Kynjamunur í tölvunarfræði í háskólum á Íslandi. Mynd 3. Kynjamunur í verkfræði, mannvirki og byggingarverkfræði.

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.