Tölvumál - 01.01.2018, Síða 44

Tölvumál - 01.01.2018, Síða 44
44 tækniviðburði sem felur í sér metnaðarfulla ráðstefnu og sýningu á helstu tækni og nýjungum sem fyrirtæki landsins tengdum tölvugeiranum vinna við. Megintilgangur UTmessunnar er að vekja athygli á hve mikil gróska er í tölvu- og tæknigeiranum með það markmið að hvetja ungt fólk til að velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarf. UTmessan hefur vakið athygli erlendis þar sem öll Evrópulönd glíma við sama vanda en mikil vöntun er á tölvufólki um allan heim í nánustu framtíð. Óhætt er að segja að UTmessunni hafi verið tekið vel frá upphafi og nú er svo komið að erlendir fyrirlesar sýna frumkvæði að því að senda inn tillögur að fyrirlestrum, erlendir gestir farnir að mæta til landsins á UTmessuna og síðast en ekki síst eru erlend fyrirtæki farin að sækjast eftir að vera á sýningarsvæðinu. Það er kærkomin viðbót við gífurlega góðann og jákvæðan stuðning allra þeirra flottu íslensku fyrirtækja og skóla sem taka þátt í UTmessunni og erum við löngu komin að þeim tímamótum að Harpa okkar glæsilega ráðstefnuhús hefur ekki nóg pláss til að taka á móti öllum þeim sem vilja vera á sýningarsvæði UTmessunnar en erfitt er að finna aðra aðstöðu þar sem ráðstefnusalir og sýningarsvæði eru á sama stað. Við leitumst við að reyna að koma öllum fyrir en því miður hefur selst upp bæði á ráðstefnuna og sýningarsvæðið löngu fyrir UTmessu. Ský er aðili að evrópsku samtökunum CEPIS en það er félag með öllum tölvufélögum í Evrópu. Þar starfa nokkrir faghópar og höfum við verið virk innan Women in ICT, Education in ICT og Ethics in ICT. Þar höfum við lagt fram tillögur og verkefni sem Evrópusambandið hefur oftar en ekki tekið áfram í sitt starf en öll þessi málefni eru heit í fleiri löndum en hér á Íslandi. Forritun sem skyldufag í grunnskólum er t.d. eitt af því sem öll löndin eru að berjast fyrir og því ekki séríslenskt að pressa á menntayfirvöld með það. Eitt af þeim verkefnum sem við tengjumst í gegnum CEPIS er að halda í apríl ár hvert „Girls in ICT Day“ og höfum við verið þátttakendur í því á Íslandi með Háskólanum í Reykjavík og fleiri aðilum síðustu ár. Þar er einn eftirmiðdagur tekinn í að bjóða stelpum í ákveðnum árgangi að mæta á stutt námskeið tengd tölvunarfræðum og svo fara þær í heimsókn og leysa skemmtileg verkefni hjá tölvufyrirtækjum í Reykjavík. Dagurinn í ár tókst vel og vonandi tókst að koma tölvugeiranum á blað hjá stelpunum þegar að því kemur að þær velji sér framtíðarmenntun og starfs vettvang. Síðustu 3 ár höfum við tekið þátt í alþjóðlegu verkefni sem heitir BEBRAS „Inter national Challenge on Informatics and Computational Thinking“ (bebras þýðir bifur, enska heitið beaver) en það miðar að því að árlega keyra öll lönd í heiminum í eina viku verkefni þar sem krakkar á aldrinum 8-18 ára leysa þrautir á vef sem eru uppbyggðar eins og forritun, þ.e. þraut ir sem fá krakka til að hugsa eins og þau væru að forrita en þrautirnar eru ekki forritun sem slík. Síðasta ár tóku 24 skólar á Íslandi þátt, 2045 nem endur og gaman að segja frá því að verkefnið tókst vel og stelpurnar sem tóku þátt fleiri en strákarnir enda tölvugeirinn einn af þeim geirum sem hentar báðum kynjum. Vikuna 12. – 16. nóvember verður BEBRAS 2018 keyrt og geta allir skólar sem vilja skráð sig í gegnum www.bebras.is. Nú eru breytingar á skrifstofu Ský en síðustu ár hefur Hildur Rut Halblaub starfað með fram kvæmda stjóra félagsins en nú í haust hætti Hildur og þökkum við henni vel unnin störf fyrir félagið. Vegna mikillar fjölgunnar verkefna síðustu vetur og til að fylgja nýrri stefnu félagsins var sú ákvörðun tekin að hafa 2 starfsmenn í fullu starfi hjá félaginu og hefur Linda Björk Bergsveinsdóttir verið ráðin til starfa sem verkefnastjóri með Arnheiði Guðmundsdóttur sem er nú að hefja sitt tíunda starfsár hjá Ský. Linda lauk B.Ed. gráðu frá KHÍ árið 1993 og hefur starfað sem hugbúnaðar sérfræðingur og verkefnastjóri í tölvu geiranum í fjölda ára hjá Skýrr og Advania og var eitt ár hjá Íslenska menntanetinu. Við bjóðum Lindu velkomna til starfa. Vetrarstarfið er nú komið af stað af fullum krafti og eru mörg járn eru í eldinum að venju og því nóg af verkefnum framundan hjá Ský. Þar sem félagið varð 50 ára í apríl 2018 ákvað stjórn Ský að fara í stefnumótunarvinnu síðastliðið haust og var mótuð ný framtíðarsýn fyrir Ský ásamt því að setja undirmarkmið fyrir félagið. Í ár hefur verið gert ýmislegt í af 50 ára afmæli félagsins og er þessi veglega útgáfa Tölvumála eitt af því. Oft kemur upp í samræðum við fólk hverjir eigi Ský og af hverju þetta nafn sé á félaginu en við bendum á skemmtilegt viðtal hér framar við Grétar Snæ sem kom að útgáfu fyrsta tölublaðs Tölvumála þar sem fram kemur að um áhugafélag sé að ræða. Nafn félagsins hefur oft komið upp og margir viljað breyta því en það var vísun í skýrsluvélar sem notað var um þessi undratæki í upphafi, áður en orðið tölva kom til (en söguna af því hvernig orðið tölva kom til má einmitt lesa í bókinni okkar góðu). Ýmis önnur verkefni eru í gangi hjá félaginu fyrir utan að halda viðburði. Tímaritið Tölvumál hefur verið gefið út frá árinu 1976, árlega á prenti en vikulega er birt ný grein í Vefútgáfu Tölvumála á forsíðu www.sky.is. Þar geta allir sent inn greinar og pistla en þeir mega vera um hvaða efni sem er tengdu tölvu- eða tæknimálum. Árlega veitir félagið Upplýsinga tækni- verðlaun Ský og á aðalfundum félagsins eru heiðursfélagar tilnefndir þegar tilefni er til. Helstu verkefni innanlands eru að halda fróðlega viðburði fyrir félagsmenn og aðra í tengslaneti Ský og eru 2-3 fræðsluviðburðir í hverjum mánuði yfir vetrartímann. Stærsti viðburðurinn er eins og áður UTmessan sem félagið setti af stað 2011 þar sem vöntun var á stórum óháðum tölvu- og FRÉTTIR AF STARFSEMI SKÝ Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.