Lögmannablaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 14
Verksamningar
námskeið 24. og 26. september 1996
Fræðslunefnd L.M.F.Í. heldur námskeið um verksamninga nú í september. Markmið
námskeiðsins er að fara í gegn um feril verksamninga, allt frá því að undirbúningur
er hafinn um að bjóða verk út og til verkloka. Lögð verður áhersla á að kynna fyrir
þátttakendum þau fjölmörgu álitaefni, sem upp koma í ferlinum og sem hafa orðið til-
efni deilna milli samningsaðila og jafnvel málaferla.
Fyrir hverja:
Lögmenn og aðra lögfræðinga.
Umsjórr.
Umsjón með námskeiðinu hafa Othar Örn Petersen, hrl. og Þorvaldur Jóhannesson,
hdl.
Staösetning, dagsetning, tími, þátttökugjald:
Námskeiðið verður haldið í kennslusalnum í húsnæði L.M.F.Í. að Álftamýri 9, dagana
24. og 26. september n.k., frá kl. 16-19 báða dagana. Þátttökugjald er kr. 5.800.
Dagskrá námskeiösins er nánar þannig:
1. Útboð verka - lög um útboð, undirbúningur.
2. Opnun tilboða, val verktaka.
3. Samningaviðræður, samningagerðin.
4. Verktíminn - verkframkvæmdir.
5. Lok verksamnings, aukaverk, úttektir.
6. Vanefndaúrræði, lausn ágreiningsmála.
Skráning fer fram á skrifstofu L.M.F.Í., í síma 568-5620 eða bréfsíma 568-7057.
14
Lögmannablaðið