Málfríður - 15.11.1990, Blaðsíða 30
FRETTIR - FRETTIR - FRETTIR
Frá félagi
þýskukennara
Dagana 27,—30. ágúst sl. var hald-
ið á Selfossi námskeið fyrir þýsku-
kennara. Leiðbeinendur voru tveir,
Prof. Margarete Scháttle frá Vín sem
talaði um austurríska ,,Landeskunde“
og Stefan Pflaum frá Freiburg í Þýska-
landi sem fjallaði um ýmis málfræðiat-
riði þýskunnar, s.s. notkun viðteng-
ingarháttar í óbeinni ræðu, notkun
ákveðins og óákveðins greinis, mis-
munandi notkun þátíðar og núliðinn-
ar tíðar. Alls sótti 21 félagi nám-
skeiðið og sneru þeir ánægðir heim.
Af því sem er á döfinni hjá félaginu
má nefna að í nóvember er von á
„Fachberater", sem mun dveljast hér
í u.þ.b. viku. Fyrirhugað er þá að
halda helgarnámskeið, þar sem hann
mun m.a. fjalla um þær breytingar
sem verða við sameiningu þýsku ríkj-
anna. Auk þess mun hann heimsækja
skóla.
í apríl sl. voru liðin tuttugu ár frá
stofnun Félags þýskukennara og er í
undirbúningi að halda upp á þau
tímamót áður en afmælisárið er úti.
Oddný G. Sverrisdóttir
formaður
Frá félagi
enskukennara
10. september
Á aðalfundi Félags enskukennara
sem haldinn var 28. maí síðastliðinn
kom fram að menntamálaráðuneytið
hefur lagt niður störf fagnámsstjóra og
þar með talda stöðu námsstjóra í ensku.
Fundurinn samþykkti að fela stjórn fé-
lagsins að athuga þetta mál og var það
gert. Eftir að hafa rætt við fulltrúa
menntamálaráðuneytisins sendi stjórn-
in formleg mótmæli til ráðuneytisins,
þar sem ljóst var, að nú hafa grunn-
skólakennarar í ensku engan faglegan
ráðgjafa í ráðuneytinu eins og verið
hefur.
Á fyrsta fundi vetrarins verður kynnt
efni til enskukennslu í eigu Ameríska
bókasafnsins.
Á næsta fundi segir Rannveig Jóns-
dóttir, kennari við FÁ, frá námsorlofi
sínu og heimsókn f hollenska skóla
síðastliðinn vetur.
Gestur okkar á síðasta félagsfundi árs-
ins verður Auður Torfadóttir, lektor við
KHÍ Hún ætlar að ræða spurninguna:
„Eru nemendur nógu vel læsir á ensku
þegar þeir koma úr skóla?“ og byggir
hún þar á niðurstöðum könnunar sem
hún hefur gert. Þessi fundur verður
laugardaginn 24. nóvember kl.
10.30—12.20 í kennslugagnamiðstöð-
inni Laugavegi 166.
Að venju býður Evrópuráðið upp á
ýmis námskeið og þeim sem vilja kynna
sér þau nánar er bent á bæklinga sem
liggja f kennslugagnamiðstöðinni.
Stjórnin vill ennfremur minna á ráð-
stefnu 1ATEFL sem verður haldin dag-
ana 2.—6. apríl 1991 íExeter. Formaður
félagsins veitir nánari upplýsingar
(heimasími 24509).
Halla Thorlacius
fonnaður
Fjölritunar og prentþjónusta!
Við fjölritum, prentum og Ijósritum
í stóru og smóu upplagi og bjóð-
um upp ó einsfaka fréttabréfa-
þjónustu.
Þú kemur með uppkast af frétta-
bréfinu til okkar. Við ritvinnum
það, setjum það upp, fjölritum
það eða prentum og merkjum
síðan með nöfnum viðtakanda ó
iímmiðum. Að endingu getum við
farið með fréttabréfið í póst.
Hjó okkur fœrðu góða og
persónulega þjónustu!
30