Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1991, Page 4

Bæjarins besta - 19.12.1991, Page 4
4 BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991 Óháð vikublað á Vestfjörðum. Útgefandi: H-prent hf. Sólgötu 9, 400 ísafjörður © 94-4560. Ritstjórí: Siguijón J. Sigurðsson S 4277 & 985-25362 Abyrgðarmenn: Siguijón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson S 4101 & 985-31062. Blaðamaður: Gísli Hjartarson © 3948. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Upplag: 3800 eintök. Ritstjórnarskrífstofa og auglýsingamóttaka að Sólgötu 9, © 4570 • Fax 4564. Setning, umbrot og prentun: H-prent hf. Bæjaríns besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðrítun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. ísafjörður: Friður á jólum ÞAÐ er ekki hægt að segja annað en að myndin hér að ofan sé jólaleg. Þá er einnig frið- ur yfir henni sem því mið- ur er ekki alltaf mikið af í heimi vorum. Myndin er tekin við Olíumúla í Isa- fjarðarhöfn á síðustu jól- um og Ijósmyndarinn var Hrafn Snorrason. r Leiðarinn: Boðskapurinn breytist ekki Jólin eru að koma. Hátíðin, sem boðar frið í anda þess er bauð að svo skyldum við elska náungann, sem okkur sjálf. I tvö þúsund ár hefur boðskapurinn hljómað í eyrum mannsins, sem eftir langa vegferð sýnist lítið nær því að uppfylla boðorðið, en í upphafi er það lét fyrst í eyrum. Þegar líður að jólum fá ólíklegustu og hversdagslegustu heiti jólaforskeyti. Á það jafnt við um líkamlega næringu og veraldlega hluti, sem þess á milli bera sín réttu nöfn. Að nýta sér jólin á þennan hátt er sölumennska, sem tengist ekki síst því er börnum viðkemur, enda er hátíðin þeirra öðrum fremur. Börnum fyrri tíma þótti mikið til koma að fá kerti og spil að ekki sé minnst á nýja flík eða bók. Ný flík forðaði þeim frá jólakettinum. Börn eru alltaf eins og verða ætíð hin sömu þar til þau byrja að draga dám af umhverfinu og því, sem við fullorðna fólkið mötum þau á, en svo mæla börn, sem fyrir þeim er haft. Árlegur jólaviðburður er bókaflóðið. Ekkert lát er á bóka- útgáfu í ár þrátt fyrir allan barlóminn. Islensk bókatíðindi 1991, 76 síðna litprentaður bæklingur gefinn út í 100 þúsund eintökum ber stórhug bókaútgefenda vitni. í bókaflóðinu kennir margra grasa og ekki eru perlur í hverri öskju. Börn- in fá sinn skammt. Yfir fimm tugir íslenskra skáldverka fyrir börn og unglinga koma á markaðinn að þessu sinni og'meira en helmingi fleiri en íslensku verkin eru þýdd skáldverk fyrir sömu aldurshópa. Íslenskum börnum ætti ekki að leiðast yfir jólin. En ekki er allt sem sýnist. Á Bókaþingi, fyrir nokkru, kom fram að 44 prósent 14 ára unglinga les sjaldan eða aldrei bækur sér til skemmtunar, að | erfiðleikar í lestrarnámi virðast áhrifamesti þátturinn í gengi ! nemenda í skóla síðar á lífsleiðinni. Þá var látið að því | liggja að barnaefni væri að mestum hluta fjölþjóðleg iðnað- I arframleiðsla er lyti markaðslögmálum og útilokaði þar með . allt efni sem bundið er ákveðnum menningarsvæðum og því I ekki nógu alþjóðlegt, sem söluvara. Óþarfi er að taka fram, I að þarna ráða börnin engu. Fullorðna fólkið ræður ferðinni. Fleimurinn er stöðugt að skreppa saman í samskiptum I þjóða. Við þessar aðstæður er menning fámennar þjóðar og | tunga dýrmætari og þýðingarmeiri en nokkru sinni fyrr. Það ] er áhyggjuefni söguþjóðar ef lestur bóka er á undanhaldi hjá | uppvaxandi æsku. Nóg er nú samt. Jólin eru að koma. í tímans rás hefur umgjörð jólanna . breyst. Boðskapurinn er þó sá hinn sami. Við skulum ekki I gleyma að þrátt fyrir litríka mynd af yfirborðinu er skammt í I skuggana. Bæjarins besta sendir lesendum sýnum nær og fjær og I landsmönnum öllum hugheilar jólakveðjur, með þeirri ósk I að ljósið eina og sanna endurspeglist í boðskapnum sem i Meistarinn frá Nasaret boðaði, og áður er vikið að. s.h. | DDGEIR SIGURJÓNSSON, TVÖFALDUR ÍSLANDSMEISTARI í OSTAGERÐ VERÐUR í VÖRUVALI, FÖSTUDAGINN 20. DESEMBER FRÁKL. 17.00 TIL19.00 0G FRÁKL. 14.00Á LAUGARDAG 21. DESEMBER MEÐ OSTAKYNNINGU. ILBOÐÁOSTUM. ÝJUNG SEM VERT ER AÐ SKOÐA. NYJUNGA VESTFJÖRÐUM! Ostagerðarmeistari í heimsókn Alltaf fyrstirmeð nýjungarnar... VÖRUVAL HF. LJÓNINU SKEIÐI ÍSAFIRÐI S4211

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.