Bæjarins besta - 19.12.1991, Blaðsíða 8
8
BÆJARINS BESTIA • Fimmtudagur 19. desember 1991
Óskum
starfsfólki okkar
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla, ársL
ogfriðar, og þökkum
jafnframt samstarf og viðskipti
á líðandi ári.
Leggur og skel
Ljóninu Skeiði - Sími 4070
Krisma
Ljóninu Skeiði - Sími 4414
Jón og Gunna
Ljóninu Skeiði - 3464
Póllinn hf.
Aðalstræti 9, ísafirði
Reiknistofa Vestfjarða hf.
AðaLstræti 24 - Pósthólf 153 - 400 ísafjörður
Þröstur Marsellíusson
Ásgarði - Sími 3349
Blikksmiðja Erlendar
Sími 4488
ESSO
Olíufélagið hf
Kaupfélag
Isfírðinga
Blómabúðin Elísa
ísafirði
Finnabær
Bolungarvík - Sími 7254
Fiskvinnsla
Jakobs Valgeirs
Bolungarvík - Sími 7584
SUNDSTRÆTI 36 - POSTHOLF 140 - 400 ISAFJORDUR — SIMI <941 4000
Hljómborg
Sími3072
Sr. Baldur Vilhelmsson prófastur í Vatnsfirði:
Jólahugvekja
Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröld Ijósið skein,
það er nú heimsins þrautar mein
að þekkja ei hann sem bæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri.
Skammdegið grúir nú yfir byggðum manna og
við skynjum betur en endranær þörfina fyrir birtu
og y/. Og mitt í myrkrinu skín Ijósiðfrá Betlehem
og lýsir þér. Hugblær jólanna seytlar inn í innstu
veru þína, hugblær er á sér enga hliðstæðu á þess-
ari jörð. Friður, kyrrð, vitund um helgi þessa lífs
þrátt fyrir allan gráan hversdagsleika, helgi vegna
tilkomu mannssonarins af guðlegri náð á þessa
jörð. Við erum minnt á komu frelsarans með
I Ijósum og skrauti á götum úti og uppljómuðum
híbýlum, gleðin ríkir. En fleiri eru farvegir Ijóss-
ins ogfagnaðarins, einnig um þennan gamla sálm
sr. Einars í Heydölum liggur leið Ijóss ogfriðar,
| kærleika og helgi til hjartna okkar. Nóttin helga
| kemur og fer. En hún skilur eftir í vitund okkar
i hljóðláta gleði yfir lífinu og töfrar hennar óma
innra með okkur í bland við gömul minni frá
bernskudögum.
Myrkur og sorg í mannheimi. Ekki er það
nýtt. En sálmurinn bendir okkur á lausnina: það
er mein heimsins að þekkja Hann ei sem vert væri
og lifa honum. Og vissulega eru ýmis teikn á
lofti, er gefa okkur vonit um að þjóðir heims og
leiðtogar þeirra hafi í framtíðinni meir í hávegum
I frið og kærleika en stríð og hatur. Jólaljósið lýsir
I okkur fram til þess vegar.
Jólagleðin kemur til þín í fjölmenni, í faðmi
fjölskyldunnar, meðal vina. Hún verður þér
I minnisstæð, býr í þér og tengir þig undrinu mikla
I er varð á jólanótt endur fyrir löngu. Og þín jóla-
I nótt, vinur minn, er einn ert á veginum, líka þín
vitjar Ijós og helgi hennar. Hún er sú sem lætur
| þig leita að orsökum einsemdar, er þú horfir í Ijós-
ið á borðinu og gerir upp hug þinn til guðs og til-
veru. Guð hefur eftil vill ekki verið þér ofarlega í
huga í vafstri hversdagsins, en þetta erhátíð hans.
Pið mætist nú. Opna þú hug þinn og hann vinnur
verkið.
Jólin færi okkur öllum frið, og rósemd og von
í hjörtu þeirra er nú eiga um sárt að binda.
Gleðileg jól!