Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1991, Síða 23

Bæjarins besta - 19.12.1991, Síða 23
BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991 23 Heimsmeistaramóti á ís- lenskum hestum, sem haldin voru nú í sumar, í máli og myndum. Einnig eru viðtöl við hestamenn o.fl. í bókinni er fjöldi litmynda og teikninga af hestum og mönnum. Petta er bók fyrir alla hestaunnendur. s ÉMm mðn Sól í fullu suðri SKJALDBORG hefur sent frá sér bókina „Sól í fullu suðri“ eftir Kjartan Ólafsson þar sem hann segir frá löndum og þjóðum Suð- ur-Ameríku. í umsögn um handritið að þessari bók segir Barði Frið- riksson, hæstarréttarlög- maður: „Sól í fullu suðri er miklu meira en venjuleg ferðabók, hún er bók- menntaverk. Hún höfðar jafnt til yngri sem eldri, enda spennandi sem æsileg- asti reyfari, en jafnframt skrifuð af slíkri snilld í máli og stíl, (auk feikilegs fróð- leiks um ævintýraheim Suð- ur-Ameríku), að hún fellur í smekk hinna vandfýsnustu.“ Oft heyrist nú sagt að brýnt sé að efla sem mest veg íslenskrar tungu ekki síst meðal æskufólks. Sól í fullu suðri er vel til þess fall- in. Áslóð kolkrabbans KJALDBORG hefur sent frá sér bókina „A slóð kolkrabbans“ eftir Örn- ólf Arnason. í kynningu útgáfunnar um bókina segir m.a.: Ráða nokkrar fjölskyldur háska- lega miklu á fslandi í krafti eigna og samtengdra hags- muna? Hefur samþjöppuð auðs og valda þróast með margföldum hraða að und- anförnu. Hinn kostulegi samstarfs- maður höfundar, Nóri held- ur því fram að valdataum- arnir í stærstu fyrirtækjum landsmanna, jafnvel heilar atvinnugreinar, séu í hönd- um örfárra einstaklinga, sem fæstir hafa heyrt getið. Er þetta rétt? Söguglaðir og meinfyndn- ir frændur Nóra vita flest sem gerist að tjaldabaki í viðskiptalífinu og á fínustu heimilum landsins. Upplýs- ingar um baksvið íslensks viðskiptalífs. Kortlagning á stjórnum og eigendum stór- fyrirtækja. Aragrúi mynda. Mörg sjaldséð andlit. Albert Jóhonnsson í Skógum HANDBÓK ISLENSKRA HESTAMANNA 100 UÓSMYNOIR SYNA UT8RKHM ÍSlfNSKA MISTSINS Handbók íslenskra hestamanna UT ER komin hjá Erni og Örlygi „Handbók íslenskra hestamanna" eftir Albert Jóhannsson í Skóg- um. Eins og heiti bókarinnar gefur til kynna fjallar bókin um hesta og hestamennsku. í bókinni gerir höfundur sér far um að fræða fólk um meðferð og hirðu hesta og koma annig á framfæri þeirri þekkingu og reynslu sem hann hefur viðað að sér í áratugi. Höfundur hefur starfað mjög lengi að félags- málum hestamanna og var um hríð í forsvari fyrir Landssambands hesta- mannafélaga. Hann þekki því vel allar hliðar hesta- mennsku. Með þessari bók hefur höfundur komið á framfæri þekkingu og upplýsingum sem hestamenn hafa lengi beðið eftir. Alltaf glaðbeittur SLIMIR menn þurfa ekki að kynna sig á lífsleið- inni. Þeir hefja samtal við ókunnugt fólk eins og um aldavini sé að ræða og þeir hafi skroppið í annað her- bergi og taki nú þráðinn upp þar sem frá var horfið. Þannig er Stefán í Vorsabæ en Bókaútgáfan Örn og Ör- lygur hafa gefið út endur- minningar hans. Stefán er löngu lands- þekktur maður, m.a. sem fréttaritari Ríkisútvarpsins á Suðurlandi í mörg ár. Hann hefur haft mikil afskipti af málefnum bænda og var einnig í mörg ár mikill bar- áttumaður fyrir bættri um- ferðarmenningu og fór um allt land þeirra erinda. Þá var hann landsfrægur þegar hann bauð Jónasi Kristjáns- syni ritstjóra í kapphlaup í tengslum við landbúnaðar- sýninguna á Selfossi árið 1978, þá nær hálfsjötugur og vann hlaupið. Gegn ofurvaldi BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hefur gefið út bókina „Gegn ofurvaldi - baráttusaga Borís Jeltsíns.“ Bókin kom fyrst út árið 1990 og kom þá óþyrmilega við kauninn á valdaklíku kommúnista í Sovétríkjun- um. Borís Jeltsín er af fátæk- um bændum kominn en honum tókst með harðfylgi að ganga menntaveginn og vekja á sér athygli valdhaf- anna. Hann var kominn í æðstu valdastöður þegar honum ofbauð ástandið og gerði uppreisn gegn kerfinu sem dæmdi hann strax úr leik. Gorbatsjov lét hann vita að hann ætlaði honum ekki að koma framar nálægt stjórnmálum. Valdaklíkan ákvað að ganga að Jeltsín pólitískt dauðum, en hann sneri dæminu við, gerði út af við hið kommúnistíska kerfi og stóð eins og klettur í haf- inu þegar klíkan gerði til- raun til valdaráns. Frá öllu þessu segir hann i bók sinni og dregur ekkert undan. Tíu endur á ferð og flugi og Tíu ungir ökuþórar • • ORN og Örlygur hafa gefið út vær harð- spjaldabækur fyrir yngstu lesendurna. Þær eru eftir Wolfgang Schleicher og Ge- orge Fryer en Kristján frá Djúpalæk þýddi. Þetta eru nýjustu bækurn- ar í flokki harðspjaldabóka sem Örn og Örlygur hafa gefið út árum saman og njóta alltaf jafnmikilla vin- sælda. Hér eru það tíu harð- snúnir kappar í dýraríkinu og tíu litlar endur sem leggja af stað út í heim. Þau týna tölunni eitt af öðru en hittast í bókarlok. Jólia 1991 Gullhringir, hálsmen, Demantsvörur Gottúrvalaf gullfestum ogarmböndum Kertastjakar í úrvali ITÓyullaiKja I Dýrfinna Torfadóttir gullsmíðameistari ísafirði, sími3460 Dömudeild: Gott úrval af barna nærfötum, sloppum og náttfötum. Barnaúlpur og gallar á góðu verði Mikið úrval af dömufatnaði ALLT TIL JÓLAGJAFA Gardeur dömufatanður Opið í hádeginu tiljóla Gleðileg jól! Þökkum viðskiptin Herradeild: MELKA herrafatnaður ■i Stakir jakkar og buxur ■i Skyrtur og peysur ■■ Herrasloppar KAUPFELAG ÍSFIRÐINGA Einar og Kristján S 3085

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.