Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1991, Qupperneq 25

Bæjarins besta - 19.12.1991, Qupperneq 25
BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 19. desember 1991 25 Bolungarvík: „Eg er tilbúinn til þess að taka slaginn við Jón Baldvin" -segir Karvel Pálmason um ord sem Jón Baldvin lét falla um hann í viðtali í tímaritinu Mannlífi Karvel pálma- SON, fyrrverandi al- þingismaður, sat á þingi í ein tuttugu ár fyrir Vestfirðinga. Ekki var andrúmsloftið all- taf rólegt í kringum Karvel, en nú eftir að hann er hætt- ur þingmennsku hefur Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra, gefíð honum einkunn með um- mælum sem höfð eru eftir honum í löngu viðtali í tíma- ritinu Mannlífi. BB hitti Karvel Pálmason á smíða- stofu hans í kjallara Verka- lýðsfélagshússins í Bolung- arvík þar sem hann var að ramma inn myndir og spurði hann um hans viðhorf til ummæla formannsins. Aðspurður um hvort hon- um fyndust ummæli Jóns Balvins sanngjörn, sagði Karvel: „Pað er ekki mitt að segja um það hvort þau eru sanngjörn í minn garð, um það verða aðrir að dæma. Eg átti að vísu ekki von á svona sendingu eftir það sem hann bað um fyrir kosn- ingar í vor, að menn sættust og handsöluðu þannig í þingflokksherbergi Alþýðu- flokksins sættir og allt væri gleymt. Nú kemur hann í bakið á mér sem er hættur og ég er reiðubúinn til þess að taka slaginn við hann ef hann vill.“ „í þessum orðum getur falist margt. Eg mun svara Jóni Baldvin á sínum tíma þegar ég tel það henta. Vestfirskir jafnaðarmenn hafa svarað honum og munu svara. Það er með ólíkind- um, að formaður flokks, hvort sem það er þessi flokkur eða einhvers ann- ars, skuli haga sér með þess- um hætti, eftir að hafa beðið um sátt fyrir kosningar og málin hafa verið felld niður. Mér finnst það afskaplega einkennilegt að menn skuli finna hvatir hjá sér til svona hluta eftir að hafa sæst að beiðni hans sjálfs og ég er hættur í framboði fyrir Al- þýðuflokkinn. Ég segi ekk- ert meira hvort ég er hættur fyrir einhverja aðra.“ Karvel hélt áfram:„Ummæli Jóns gefa mér tilefni til þess að hug- leiða... - hvað eru menn í forystu stjórnmálaflokka að fara með svona hluti. Ég veit ekki neitt dæmi þess að formaður stjórnmálaflokks hafi með þessum hætti ráðist gegn sínum samherjum eftir að þeir eru sestir í helgan stein eins og ég hef gert. Það kann að kalla á miklu meira en Jón Baldvin gerir sér grein fyrir.“ Um það sem utanríkisráð- herrann sagði um Jóhönnu Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra í Mannlífsviðtal- inu, segir Karvel: „Þetta er með ólíkindum og auðvitað getur Jóhanna svarað fyrir sig því hún er í sviðsljósinu. Það er með ólíkindum að Jón Baldvin skuli ráðast svona að samráðherra sín- um og varaformanni flokks síns. Menn getur greint á hvernig hún hafi staðið sig, en það er ekki formaður flokks hennar að bera á torg • Karvel Pálmason. ón Baldvin segist ekki í nokkrum vafa um nö gern- ingahríðin gegn honum og Alþvðuflokknum vegna matarskattsins, hafi haft langvarandi áhrif. „Hún \'ar það hörð, að hún spillti fvlgisvonum flokksins til þessa dags." Voru einh\erjir samstarsfmenn þínir sem brugð- ust á þessum tíma? „Já, reyndar einn. Karvel Pálmason. Hann komst I inn á þing á jakkalöfum Hannibals árið 1970 og \ar I talinn vera einskonar pólitískur fóstursonur hans. V Við bræður, Ólafur og ég, studdum hann dvggi- lega. Skrifuðum fvrir hann ræðurnar og settum þær sína í hvorn vasann þegar hann fór á fundina. Þannig að hann á okkur feðgum vmislegt upp að unna. I þessu gerningastríði, þegar mest var \eist að mér, leigði hann sér penna, guðfræðing nokkurn, til að skrifa um mig níðgreinar. Eftir það nennti ég ekki að tala við hann. Mér fannst það vera fvrir neðan mína virðingu. fyrir aðra. Það er auðvitað hneyksli að ganga svona fram. Ég veit ekkert hvað Jóni Baldvin gengur til í þessum efnum. Kannski er hann bara svona innréttað- ur. Kannski þurfi Jakob Frí- mann og lið til þess að berja á bumbur og berja út þessa þætti í hans búk. Þetta væri við hæfi þegar Jakob Frí- mann kemur heim. Við þeirri spurningu hvort Karvel sé sár út af þessum ummælum, svarar hann: „Já, ég er að vissu leyti sár, en hugsanlega eru aðrir Særðari en ég. Mér finnst al- veg með ólíkindum að Jón Baldvin skuli ekki einu sinni geta látið Hannibal Valdi- marsson, föður sinn, í friði í gröfinni. Ég er alveg sann- færður um' það að ég á Hannibal margt að þakka. Kannski ég hafi farið upp- haflega inn á þing á jakklöf- um hans og það er ekki til tekna fyrir þá bræður, Ólaf og Jón Baldvin Hannibals- syni. Það er til tekna fyrir gamla manninn sjálfan og hann skal eiga það.“ í lokin sagði Karvel: „Mér sýnist það, eins og ég met stjórnmál, þá er þetta eina og sanna leið formanns til þess að ganga þannig frá málum, að hans væntanleg- ur frambjóðandi á Vest- fjörðum sé nánast dauður. Þannig er trúlega búið að ganga frá því, að frambjóð- andi Alþýðubandalagsins eigi sér hér trygga stöðu í framtíðinni. Það er ein- kennilegt að formaður Al- þýðuflokksins skuli standa þannig að málum. -GHj. Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla, árs ogfriðar, og þökkum jafnframt samstarfog viðskipti á líðandi ári. Hjólbarðaverkstæði ísafjarðar hf. Þórsberg hf. Tálknafirði Eyrasparisjóður Patreksfirði, Tálknafirði Bensínstöðin ísafirði Prentsmiðjan Oddi hf. Bifreiðaverkstæðið NONNI Bolungarvík - Sími 7440 'AIIAJ. t PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA Suðurver Suðureyri Sími 6188 Söluskálinn Súðin Súðavík - Sími 4981 l# RÍKISÚTVARPIÐ SKUTULL Blað Alfýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmi mm lALMENNAR Bolungarvík - Sími 7348 Alþýðusamband Vestfjarða

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.