Málfríður - 15.09.1995, Page 14

Málfríður - 15.09.1995, Page 14
hins vegar draga þá ályktun af því sem fram kom á ráðstefn- unni að þetta sé ekki rétt aðferð, því að þáð sé í verkahring kenn- ara að miða námsefni, þar með talið ítarefni, við einstaklingana eftir þörfum. Kennarinn á að kenna nemendum að verða sjálf- stæðir í námi sínu, láta þá vinna og hugsa sjálfstætt með því að búa efnið þannig í hendur þeirra að þeim sé það fært. Þetta þýðir að kennarinn þarf sífellt að end- urskoða og endurbæta kennsl- una og námsefnið. Gamla „messuformið“ og „yfirheyrslu- aðferðin“ eru ekki vænlegar til árangurs. I ljósi þessa er mér það óskiljanlegt að nemandi sem að eigin sögn notar kennslustundir til þess að lesa námsefni næsta dags verður dux scholae eins og gerðist í skóla einum sl. vor. Gæti nem- andi með gott lausnahefti gegnt þar hlutverki kennarans? Hvers virði er þá menntun hans og starf? Hvert er þá markmiðið með menntun yfirleitt? Við vitum öll, að eins og starfsaðstaða kennara er í dag (lágt kaup, stórir bekkir, mikil kennsla í aðeins níu mánuði ársins) er kennurum gert erfitt fyrir að sinna einstaklingunum sem skyldi. Því miður virðist það orðin nokkuð algeng skoð- un að sumir skólar eigi að geta hafnað umsóknum frá nem- endum sem fá einkunnir undir 7 (8?) á samræmdu prófunum, jafnvel með þeim rökum að nemendur með lægri einkunnir falli bara í skólanum. Ef hóp- arnir eru einsleitir og saman- standa einungis af „góðum“ nemendum er jú auðveldara að nota kennsluaðferðirnar „ítroðsla og yfirheyrsla" eins og gert var þegar ég sjálf var í menntaskóla. Ef nemendur eru svona með- færilegir þurfa kennararnir minna að leggja á sig til að kenna þeim, geta þess vegna kennt fleiri tíma á viku, verið með stærri hópa og þá er hægt að útskrifa fleiri nemendur með minni kostnaði. En er það eftir- sóknarvert? Rannsóknir sýna að brottfall nemenda úr framhalds- skóla er gríðarlegt og hlýtur það að hafa mikinn kostnað í för með sér fyrir þjóðfélagið allt og ekki aðeins fyrir þá nemendur sem hverfa á braut án þess að ljúka prófi. Það er algengt að grunnskól- anum sé kennt um að nemendur komi í framhaldsskólana með lélegan undirbúning og þess vegna vegni þeim illa. Það er rétt að nemendur eru mjög mis- vel undir það búnir að hefja nám í framhaldsskóla. Það er vitað frá þeim degi er þeir sækja um vist í framhaldsskólunum, enda sýna einkunnaspjöldin úr grunnskólanum það svart á hvítu. En framhaldsskólarnir taka samt við nemunum eins og væru þeir einsleit hjörð ungl- inga sem hægt er að gefa sama fóðrið á sama tíma og jafn lengi. Ef við förum eftir lögum um framhaldsskóla sem kveða á um að „framhaldsskólinn sé fyrir alla“ sýnir há fallprósenta hjá nýnemum að þetta er röng aðferð. Við vitum öll að nem- endur eru ólíkir einstaklingar og „misgóðir“ nemendur. Þarfir þeirra og væntingar eru ólíkar. Ef tekið væri tillit til þessa og ef skólunum yrði gert kleift að sinna þörfum einstaklinganna gæti þetta vandamál stórlega minnkað. Elísabet Vcdtýsdóttir kennir dönsku við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi Með þökk fyrir viðskiptin Landsbankinn Suðurlandsbraut 18 14

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.