Málfríður - 15.09.1995, Qupperneq 22

Málfríður - 15.09.1995, Qupperneq 22
I Hótel- og veitingaskóla Islands hefst frönskukennsla í 2. bekk. Kenndur er áfanginn FRA 142 og í 3. bekk er kenndur áfanginn FRA 242. Seinni áfanginn er í beinu framhaldi af þeim fyrri og verður fjallað um þá sem eina heild hér. Markmiðslýsing í frönsku er í aðalatriðum eftirfarandi. Að: skólameistara Hótel- og veit- ingaskólans. Hlutar námsefnis hafa verið yfirfærðir á frönsku s.s. framreiðsla og vínþekking. Islenskir matseðlar eftir fag- kennara skólans og nemendur. Franskir matseðlar eftir þekkta frönskumælandi mat- reiðslumeistara. in frönsk ljóð hafa verið samin um hráefni og mat. Bæði þau og söngtextar, sem nemendur læra og syngja, eru notuð til að létta lund í svartasta skammdeginu. Hlustunaræfingar sem fylgja kennslubókum eru notaðar. Auk þess er hlustað og horft á sýni- kennslu í matreiðslu og fram- • Nemendur öðlist þekkingu á frönsku og fagfrönsku með almennt menntunargildi og fagleg störf í huga. • Nemendur öðlist fæmi í að lesa og skilja franskan texta í eðlilegu ritmáli svo og faglegan texta. • Nemendur þjálfist í að greina og skrifa málfræðilega rétta matseðla og setja þá upp á faglegan hátt. • Nemendur öðlist fæmi í að tjá sig munnlega í samskiptum við frönskumælandi fólk með áherslu á samskipti í faglegum störfum og samskiptum á veitingcistað. • Nemendur öðlist þekkingu á franskri menningu, einkum þeirri er snertir matreiðslu og framreiðslu. • Nemendur þekki helstu hémð Frakklands og vínræktarsvæði, rétti þá og vín sem einkennandi em fyrir hvert hérað. • Nemendur þjálfist í að nota fransk/íslenska orðabók og fagorðalista. • Nemendur öðlist jákvætt viðhorf til frönskunnar sem hluta af fagmennskunni. NÁMSEFNI í frönsku hafa verið notaðar C’est fa 1 kennslubók og æf- ingabók og nú síðast A Propos kennslubók og æfingabók. Nem- endur hafa að auki fengið les- texta sem snerta störf og hluti í gestamóttöku, borðsal og eld- húsi veitingastaðar. í fagfrönsku er að verulegu leyti stuðst við Technologie culinaire eftir Eugen Pauli, fyrrverandi kennslustjóra í hin- um virta hótel- og veitingaskóla í Lucerne, L’École höteliére suisse de Lucerne. Bókin tengir saman sígilda franska mat- reiðslu og nýjustu þekkingu í næringarfræði og er notuð sem grunnbók i matreiðslukennslu í Hótel- og veitingaskóla Islands, enn sem komið er i enskri út- gáfu. Auk þess er notað: Námsefni í framreiðslu eftir Guðmund Agnar Axelsson, Uppskriftir á frönsku úr mat- reiðslubókum og fagtímaritum. Ljóð og söngtextar. Franskir matreiðslu- og kynn- ingarþættir. LÝSING Á NÁMINU Lestur og hlustun: Texti í kennslubókum er not- aður að hluta til, en þar sem lít- ið er um byrjendatexta sem snertir störf nemenda er textum bætt við sem gerast í veitingasal og í eldhúsi. Leitast er við frá byrjun að byggja markvisst upp algengan fagorðaforða. Nemend- ur fá fljótt mjög einfaldar mat- reiðsluuppskriftir að spreyta sig á að þýða á íslensku. Upp- skriftir sem síðan stigþyngjast eru notaðar jafnt og þétt í báð- um bekkjum. Franskir margrétt- aðir matseðlar eru greindir og þýddir. Stöðugt er unnið með þá allan námstímann. Mörg skond- reiðslu á frönsku og horft á kynningarmyndir frá Frakk- landi. Nemendur kjósa oftast að hlusta á franska dægurlagatón- list lágt spilaða í bakgrunni, þeg- ar þeir vinna að ýmsum skrif- legum fagverkefnum. Kennsluform: Leitast er við að þjálfa nemendur í ýmsum lestraraðferðum, s.s. topp niður lestri, skima, skanna og ítar- lestri og að virkja bakgrunns- þekkingu nemenda um leið. Málfræði: Það er svolítið breytilegt hve mörg málfræðiatriði eru tekin fyrir í hvorum bekk. Kennari metur hvenær hann telur að nemendur séu tilbúnir að kynn- ast, þjálfa og tileinka sér ný mál- fræðiatriði og í hvaða röð. Mál- fræðiatriðin eru nokkurn veginn þau sömu og unnið er með al- mennt í framhaldsskóla. 22

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.