Málfríður - 15.09.1995, Síða 25
NÁMSMAT: Tekið er skriflegt
lokapróf á hverri önn. Á skrif-
legum prófum í fagfrönsku mega
nemendur nota öll gögn. Hóp-
verkefni, sem er hluti af skrif-
legu lokaprófi í 3. bekk í fag-
frönsku og er unnið í tímum, er
t.d. að semja, hanna og þýða á
frönsku hátíðarmatseðla fyrir
hádegisverð og kvöldverð. Veisl-
an er handa ímynduðum hópi
frönskumælandi sælkera sem
koma gagngert til íslands til að
njóta þess besta í íslenskri mat-
argerð og þjónustu.
Munnieg próf eru tekin um
leið og skrifleg próf og eru para-
vinna þar sem nemendur sýna
fram á færni við ýmsar aðtæður
í hlutverkaleik, s.s. panta borð á
veitingastað, versla á markaði
og í vínbúð, taka á móti gestum
og þjóna til borðs, gefa upp-
lýsingar um það sem er á mat-
seðli o.fi.
Munnlegt lokapróf hefur mest
vægi og í 2. bekk getur það t.d.
verið einföld sýnikennsla á
frönskum pönnukökubakstri hjá
matreiðslunemum og að þjóna
til borðs með einföldum mat-
seðli hjá framreiðslunemum. I 3.
bekk er munnlegt lokapróf hjá
matreiðslunemum flóknari sýni-
kennsla í eldhúsi skólans. Hver
framreiðslunemi tekur á móti
prófdómara og kennara sem
gestum við raunverulegar að-
stæður í veitingasal skólans.
Mat- og vínseðill er fjölbreyttur
og á nemandi að geta útskýrt og
aðstoðað með val á réttum og
drykkjum.
Nemendur gera æfingar
heima og er 80% skilaskylda á
þeim á önninni. I skólanum er
80% mætingarskylda.
Valfríður Gísladóttir kenndi
frönsku við Hótel- og veit-
ingaskóiann 1991-1994 og starfar
nú við Fjölbrautaskólann i
Breiðholti
MENNINGARSETUR
FRAKKLANDS Á ÍSLANDI
VESTURGÖTU 2. BOX 921-121 Reykjavík
Tél: 552 3870. Fax: 562 3820.
Markmið AF er þríþætt:
- Frönskukennsla fyrir byrjendur og lengra komna. Einnig barnahópar.
- Veita aðgang að frönskum bókmenntum, kennsluefni fyrir frönskukennslu,
fjöldan allan af uppflettiritum og orðabókum (6000 bókatitlar).
- Kynna franska menningu með fjölbreyttu safni geisladiska og myndbanda.
Þið eru hjartanlega velkomin á Vesturgötu 2, 3. hæð. sími: 552 3870.
Opið mánudaga til föstudaga frá 15.00-18.00.
Eftir áramót, nýtt heimilisfang: Austurstræti 3, 2. og 3. hæð.
25