Málfríður - 15.05.1999, Side 5

Málfríður - 15.05.1999, Side 5
anna en til annarra landa innan Evrópska efnahagssvæðisins þar sem Islendingar geta sótt til vinnu. Við skulum heldur ekki gleyma þeirri miklu flóru af formlegu og óformlegu samstarfi sem á sér stað á milli félagasam- taka á Norðurlöndunum. Iþróttafélögin eru gott dæmi. Sveitarstjórnarmenn eiga mikil samskipti og fjölmörg sveitarfélög eiga vinabæi á Norðurlöndunum. Það má ekki gleyma því að hið formlega norræna samstarf, sem fer fram í gegnum Norður- landaráð og Norrænu ráðherranefndina, er aðeins brot af samskiptum sem fara fram á Norðurlöndunum. Allt eru þetta hins vegar menningarleg eða efnahagsleg samskipti sem krefjast þess að fólk geti átt samskipti á Norðurlandatungumáli. Við skulum heldur ekki gleyma næstu nágrönnum Islendinga Færeyingum og Grænlendingum. Vestnorrænu samskipt- unum hefur vaxið fiskur um hrygg og þar er danskan lykilatriðið í öllum viðræðum. Samkeppnishæfni Eg býst við að Geir Gunlaugsson muni meira horfa á þetta frá vettvangi fyrirtækj- anna en get þó ekki sleppt því að nefna að það liggur í augum uppi að góð tungu- málakunnátta getur ráðið úrslitum þegar velja á milli jafn hæfra umsækjenda í stöð- ur. Eg vil líka benda á það, að á Norður- löndunum búa 22 miljónir manna og það er ekki óálitlegur markaður og það er við- urkennd staðreynd að mun betra er að ná til viðskiptavina eða samstarfsmanna á þeirra eigin tungumáli. Það er heldur ekki hægt að reikna með góðri enskukunnáttu hjá almenningi og t.d. í Danmörku hefur mér virst sem enskukunnátta sé mun lé- legri en meðal Islendinga og að framburð- urinn sé Dönum erfiður. Símenntun Sífellt er hamrað á því að menntun í dag sé með öðrum hætti en fyrir t.d. 20 árum. Eg held að það hvarfli varla að nokkrum manni, sem er að útskrifast með svo köll- uð réttindi í dag, að þau dugi um aldur og ævi. Menn eru ekki að velja sér ævistarf eins og áður var. Nauðsynlegt er að byggja stöðugt ofan á menntunina og þar getur tungumálakunnátta verið mikilvæg- ur þáttur í þekkingaröflun. Við skulum ekki gleyma því ógnar- flæði upplýsinga sem finnst áVeraldarvefn- um, sem skráð eru á viðkomandi tungu- máli. Sennilega hefur því mikilvægi tungumálakennslu stóruakist með upplýs- ingabyltingunni. Það þarf vald á fleiri tungumálum til að geta notað sér upplýs- ingaflæðið. Svæðisbundið samstarf Stækkun Evrópusambandsins stendur fyr- ir dyrum og gætu innan tíðar 26 lönd átt aðild að Evrópusambandinu. Að margra dómi mun þetta gífurlega stóra miðstýrða samstarf hafa í för með sér aukna þörf og aukið mikilvægi svæðisbundins samstarfs. Norðurlandaráð hefur að minnsta kosti lagt áherslu á þetta og mun á næsta ári standa að ráðstefnu ásamt BENELUX- löndunum þar sem fjallað verður um svæðisbundið samstarf í Evrópu um þetta efni. Hvað er það sem stuðlar að svæðis- bundnu samstarfi eða skapar því forsend- ur? Það er m.a. menningararfur, saga, og helst af öllu að unnt sé að komast af með milliliðalaus samskipti, að hægt sé að starfa saman án þess að nota túlka eða þýðingar. Slíkt auðveldar vinnu og stuðlar að auknu umburðarlyndi. Eg er því sannfærð um að mikilvægi norræns samstarfs mun fara vaxandi eftir því sem Evrópusamstarfið verður yfir- gripsmeira. Á sama hátt og það hefur stóreflst eftir inngöngu Svía og Finna í Evrópusambandið. Norðurlandaráðsstarfið Fimmtugasta þingi Norðurlandaráðs lauk á fimmtudag í Osló. Þar var m.a. vahnn nýr forseti og kynnti Gun Hellsvik, sem gegnir embættinu á næsta ári, að hún myndi leggja ríka áherslu á samstarf í menntamálum. ... á Norður- löndunum búa 22 miljónir manna og það er ekki óálitlegur markaður og það er viðurkennd staðreynd að mun betra er að ná til viðskipta- vina eða sam- starfsmanna á þeirra eigin tungumáli. 5

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.