Málfríður - 15.05.1999, Blaðsíða 17

Málfríður - 15.05.1999, Blaðsíða 17
í textann og þar með taka af þeim ómak- ið. Þessir nemendur þyrftu verulega á því að halda að pæla í hlutunum. I tungumálaheiminum hefur orðaforði notið vaxandi athygli síðasta áratuginn og þá einkum sá þáttur er snýr að málheild- um. Ef texti er skoðaður sést fljótt að uppistaðan er ekki einstök orð heldur alls kyns heildir, s.s.: samsett orð (greenhouse), samstæður (face hardship), samsettar sagnir (phrasal verbs: watch out), orðatiltæki ýmiss konar (down in the dumps), orðtök (let sleeping dogs lie), nafnorð/sögn/lýsingarorð + for- setning (confidence in, rely on, capable of), forsetningasambönd (in charge of, by accident). Hér á eftir er byrjun á texta sem mætti hugsa sér að nemendur veltu fyrir sér út frá heildum og tíndu til það sem heyrir saman. A þennan hátt er von til þess að nemendur átti sig betur á mynstrinu í textanum. Texti er eins og vefur þar sem hver þráður er á sínum stað. Því betri sem textinn er, því fallegra verður mynstrið. Textinn ber titilinn The man who is crackers for Christmas. Nemendur strika undir orð sem myndar heildir. Andrew Parker wished it could be Christmas every day, and made his wish come true. But after five years of living on a dailv diet of mince pies. turkey and sprouts, he is seeking medical help to end his addiction to festive fare. Að veita orðun- um athygli og velta fyrir sér merkingu þeirra, skyldleika, fé- lagsskap og hlut- verki; það er málið. He is worried that he is endan- gering his health and becoming as rotund as Father Christmas after rising from 12st to 16st. Síðan mætti athuga hvaða önnur orð gætu staðið með diet, help, seek, medical eða endanger. Þá mætti athuga notkun orðsins crackers í titlinum sem er áhugaverð út af fyrir sig og finna orð sem eru merkingar- lega skyld rotund, eins og t. d. plump, stout, chubby, fat, obese og skoða hver blæ- brigðamunurinn er og hvenær hvert um sig á við. Að veita orðunum athygli og velta fyrir sér merkingu þeirra, skyldleika, félagsskap og hlutverki; það er málið. Auður Torfadóttir, dósent við Kennaraháskóla Islands. GOETHE- ZENTRUM REYKJAVÍK SAMSTARFSAÐILI PARTNER DES GOETHE-/g O INSTITUT WLm> Lindargata 46 • Pósthólf 902 • IS- 121 Reykjavík Sími: 551-6061 • Fax: 552-7570 E-mail: goethe@simnet.is Öffnungszeiten/Opnunartímar Dienstag 15-19 Mittwoch 15-19 Donnerstag 17-20 Freitag 15-18 Samstag 15-18 HERZLICH WILLKOMMEN 17

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.