Málfríður - 15.05.1999, Blaðsíða 29

Málfríður - 15.05.1999, Blaðsíða 29
Ný öld með fagmál í tungumálanámi Síðastliðinn september tók undirritaður þátt í vinnufundi á vegurn miðstöðvar Evrópuráðsins fyrir tungumál í Graz, Austurríki. Evrópuráðið hefur styrkt þessa miðstöð síðustu árin i tilraunaskyni en er nýbúið að ákveða að hún verði að fastri stofnun, enda orðin opinber stefna í Evr- ópu að þjóðfélagsþegnar næstu aldar verði færir í tveim erlendum tungumálum. Sjálfsagt veit margur lesandi af eigin raun hvaða vítamínsprauta það er að hitta fagfélaga frá öðrum löndum á námskeiði, vinnufundi eða ráðstefnu. Eg myndi óska þess að allir lesendur, sem enn hafa ekkert tækifæri haft, fengju að njóta þess einu sinni eða helst oftar á starfsævinni. Það er einn helsti kostur þess að búa í Evrópu og hugsanlega enn frekar á Islandi, hvað oft er leitað til útlanda og stofnað til samskipta við fólk af ólíku þjóðerni. Á þessum vinnufundi vorum við 24 samtals, en aldrei fleiri en tveir fulltrúar frá hverju landi. Sérstakt má telja hvað Evrópustarfið opnar okkur samband við gömlu austan- tjaldslöndin. Okkur ber að mínu mati að efla tengslin sem þar skapast til að þessum löndum takist að lyfta sér upp úr fátækt- inni. Það skein oft í gegn á fundinum, að fátæktin skapar erfiðleika fyrir starfsfélaga þar. Verkefni fimrn daga vinnufundarins var að útfæra nútímatækni til að kenna fólki tungumál fyrir ýmsar starfsgreinar. A stofnanamáli (sem er einn helsti ókostur Evrópusamstarfsins!) verður þetta að heilli langloku: “Technology Enhanced Langu- age Learning (TELL) inVocationally Ori- ented Language Learning (VOLL)”. Fundinn leiddu fimm fyrirlesarar senr kynntu í fyrstu nýjustu stöðu í tækninni, en síðan stjórnaði hver í sínu lagi starfs- hópi kennara og uppeldisfrömuða á af- mörkuðu sviði. Tony Fitzpatrick og Sigi Gruber (sem því miður var aðeins hluta af tímanum) leiddu hóp sem setti saman mæliaðferðir fyrir gæði og notkunarsvið nútímanámsgagna, sem verða æ oftar tölvuforrit. Andreas Lund mótaði með sinum hópi nýjan námsþátt sem á að birt- ast á netinu og æfa nemandann í tungu- máli með áhugaverðum leik eða þraut. Hjá Bernd Ruschoff prófuðu þátttakend- ur margs konar ný forrit til tungumála- náms. Síðast, en auðvitað ekki síst, var hópur undirritaðs, sem átti að setja saman niðurstöður hinna hópanna til að mynda nýja heimasíðu fyrir tungumálakennslu út frá Graz. Okkur var vorkunn að niður- stöður bárust seint frá hinum hópunum — einsýnt var að öllum var ætlað fullmikið í byrjun, því við unnum ávallt meira en heilan vinnudag nema sunnudaginn, sem var að hálfu leyti skemmtidagur með gönguleiðsögn um Graz og listasafn þar. Eftir að heim var komið höfum við nokkrir unnið áfram að lokafrágangi á síðunni, sem stjórnandi hópsins, Bernard Moro, hefur þó haft veg og vanda af. Nú sjást á heimasíðunni niðurstöður allra hópanna, hvort sem þið hafið áhuga á nýjustu tölvuforritum í málakennslu, vilj- ið kanna hugmyndir um hvernig á að meta þau, sem eiga eftir að birtast, eða vilj- ið sjá möguleika til að setja saman skemmtilegan tungumálaleik, með alvöru lærdóm sem markmið, á netinu. Að vísu finnast þar varla endanleg svör um hvern- ig við þokum starfsgreinatengdri mála- kennslu best áleiðis, en þessa tækni má allavega nota greinabundið. Áreiðanlegast er að byija á slóðinni: Phílip Vogler http://www.icc-europe.com. Að lokum tek ég fram að ég var ein- staklega hrifinn bæði af Andreas, sem star- far í Noregi, og Bernd, sem var að taka til starfa í Essen í Þýskalandi. Enginn yrði svikinn af námskeiði hjá öðrum hvorum þeirra eða báðum, ef kynnast á möguleik- 29

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.