Málfríður - 15.09.2003, Blaðsíða 3
Ritstj órnarrabb
Haustblað Málfríðar er að þessu sinni nokkuð ólíkt
því sem lesendur hafa átt að venjast undanfarin
misseri. Utht forsíðunnar hefiir tekið breytingum
og greinar í blaðinu eru faar en umfangsmiklar.
Eyjólfur Már Sigurðsson hefur skrifað áhuga-
verða grein um hugmyndir nemenda varðandi mis-
munandi þætti tungumálanámsins og um tungumál
almennt og skoðar þær í ljósi kenningar um felags-
lega túlkun. Kemur ýmislegt á óvart í þeirri lesningu.
Verkefni nokkurra kennara við Laugalækjar-
skóla um framfaramöppur í tungumálanámi hlaut
Evrópumerkið árið 2003 og tók Brynhildur Anna
Ragnarsdóttir vel í beiðni ritstjórnarinnar um að
kynna verkefnið í grein sem birtist í blaðinu nú.
Björg Hilmarsdóttir var einnig fús til að deila
efni meistararitgerðar sinnar með lesendum blaðs-
ins. í greininni segir hún frá rannsókn sem hún
gerði meðal íslenskra firamhaldsskólanema á rit-
unarferli texta í dönsku, með sérstakri áherslu á hlé
og leiðréttingar.Við rannsóknina notaði hún tölvu-
forrit og leiddi hún ýmislegt athyglisvert í ljós.
Kaoru Umezawa, lektor í japönsku við Háskóla
Islands, svaraði nokkrum spurningum ritstjórnar
varðandi kennslu japönsku í hinum vestræna menn-
ingarheimi. Auk þess fá lesendur að kynnast upp-
hfun þriggja Islendinga sem hafa tekist á hendur
nám í framandi tungumáh.
I lokagrein blaðsins §allar Jóhanna Björk
Guðjónsdóttir um ástæðurnar fyrir því að franska er
töluð í Kanada og um stöðu frönskunnar þar vestra.
Ritstjórnin óskar lesendum Málfríðar gleði-
legra hátíða, árs og friðar.
Eftirtalin fagfélög tungumálakennara
eiga fulltrúa í ritstjórn Málffíðar
haustið 2003:
Félag dönskukennara:
Bryndís Helgadóttir
Iðnskólanum í Hafnarfirði
heimasími: 557 4343
netfang: bryndis.helgadottir@idnskolinn.is
Félag frönskukennara:
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir
Háskóla Islands
heimasími: 562 2677
netfang: jobg@hi.is
Félag þýskukennara:
Ásmundur Guðmundsson
Menntaskólanum í Reykjavík
heimasími: 568 1267
netfang: asmgud@isl.is
Efnisyfirlit
Eyjólfur Már Sigurðsson:
Hvað eru nemendur að hugsa? .................. 4
Brynhildur Anna Ragnarsdóttir:
Framfaramöppur í tungumálanámi................11
Að læra framandi tungumál ....................15
Björg Hilmarsdóttir:
Skriveprocessen — bag kuhsserne...............22
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir:
Frönsk tunga í Québec fylki í Kanada .... 29
Málfríður,
tímarit Samtaka tungumálakennara,
2. tbl. 2003.
Utgefandi:
Samtök tungumálakennara á
Islandi.
Ábyrgðarmaður: / *
Auður Torfadóttir
Ritnefnd:
Ásmundur Guðmundsson
Bryndís Helgadóttir
Jóhanna Björk Guðjónsdóttir
Prófarkalestur:
Eygló Eiðsdóttir
Umsjón með netútgáfu:
Guðbjartur Kristófersson
Málfríður á Netinu:
http://malfridur.ismennt.is
Umbrot, prentun og bókband:
Steinholt ehf.
Heimilisfang Málfríðar:
Pósthólf 8247
128 Reykjavík.
Hönnun forsíðu: PállThayer listamaður
Mynd: Merki evrópsks tungumáladags
3