Málfríður - 15.09.2003, Side 21

Málfríður - 15.09.2003, Side 21
þar sem er byggt á stafrófi er auðvelt að lesa og herma eftir en í kínversku er oft ekki ljóst hvernig á að bera táknið fram. Þetta gerir það að verkum að maður nær oft ekki að tengja saman hljóð og tákn. Það er þetta sem er hvað erfiðast í kín- versku. Eg tel að öll þjálfun í tungumála- námi skipti rnáli enda snýst það fyrst og fremst um að hlusta og tala. Flestir sem byrja að læra kínversku læra jöfnum höndum tákn og hljóð. Með mér í skóla voru margir Bandaríkjamenn af kínversk- um uppruna sem gátu talað kínversku en gátu hvorki lesið né skrifað og voru fyrst og fremst í náminu til að ná tökum á skrift og lestri.“ „Annað sem gerir kínversku erfitt mál er að mikilvægt er að bera fram táknin með réttum tón. Tónarnir ráða úrslitum um merkingu orðanna og geta valdið miklum misskilningi ef ekki er rétt með farið. Þetta krefst mikillar æfingar í að hlusta og bera rétt fram hljóð og orð svo að ekki valdi misskilningi.“ — Hvað kom þér mest á óvart í kínverskri menningu.? „Það sem kom mér mest á óvart var kannski hvernig Kínveijar hugsa öðruvísi en við Islendingar og Vesturlandabúar al- mennt. Hugmyndir okkar um einstakling- inn, einstaklingsfrelsið og réttindi einstak- Hngsins eru Kínveijum rnjög framandi. Þeir líta fyrst og fremst á sig sem hluta af hóp, hvort sem það er fjölskyldan, vinirn- ir eða vinnufélagar. Þeirra gildi og viðmið taka mjög mið af þessari hóphugsun og tryggð þeirra og hollusta gagnvart sínum hóp er mjög mikil. Mismunandi grund- vallarviðhorf gagnvart lífinu og tilverunni gera það að verkum að erfitt verður að skilja þjóðfélagið og menninguna. Hún er svo framandi og oft á skjön við manns eig- in grundvaHarsjónarmið og gildi.“ „Svo dæmi sé tekið er oft til staðar ákveðin gremja gagnvart Vesturlöndum þar sem það er útbreidd skoðun að þau reyni að þröngva hugmyndum sínum um lýðræði og mannréttindi upp á Asíuríki. Þessar þjóðir segja einfaldlega að það sé ekkert tekið mark á þeirra hugmynda- fræði og ætlast sé til að þau gleypi hug- myndakerfiVesturlanda hrátt.Vestrænt lýð- ræði henti þeim ekkert betur en eitthvað annað kerfi og þau verði að fá að byggja á sínum grunni, t.d. heimspeki Konfúsíusar og þróa sínar eigin leiðir sem eigi sér ræt- ur í þeirra bakgrunni og hugmynda- fræði.“ — Ef þú ættir að ráðleggja fólki sem vill leggja stund á nám í framandi löndum hvað myndi það vera? „Eg held að í flestum tilfellum hafi fólk ekki hugmynd um hvað það er að fara út í. Margir verða fýrir vonbrigðum, finnst til dæmis námið erfitt og það gengur ekki nógu hratt. Margir þeir sem ég var með í námi höfðu verið í kínversku og kínversk- um ffæðurn í Evrópu og Ameríku og sumir urðu fýrir vonbrigðum þegar þeir loks komu til fyrirheitna landsins ef svo má að orði komast. Þetta var ekki eins og þeir bjuggust við. Fólk þarf helst að þróa með sér einhverja aðferð til að einblína á það jákvæða og ekki láta það neikvæða hafa áhrif á sig. Eg segi fýrir mitt leyti að þessi tvö ár sem ég var að læra kínversku voru þau lærdómsríkustu á minni skólagöngu, á því er enginn vafi. Burtséð frá því að takast á við að læra erfitt tungumál var afar áhuga- vert að fá að kynnast kínverskri menn- ingu, fólki og siðum sem eru á margan hátt mjög ólíkt því sem við eigum að venjast, ekki síst undir yfirborðinu.“ Það sem kom mér mest á óvart var kannski hvernig Kínverj- ar hugsa öðru- vísi en við ís- lendingar og Vesturlandabúar almennt. Ég segi fyrir mitt leyti að þessi tvö ár sem ég var að læra kínversku voru þau lærdómsrík- ustu á minni skólagöngu, á því er enginn vafi. tONMíNNT ÍONÚ BRAUTARHOLTI 8-105 REYKJAVlK bókaútqáfa SfMI 562 3370 • FAX 562 3497 • idnu@idnu.is Bækur og skólavörur fyrir grunn- og framhaldsskola 21

x

Málfríður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.