Bæjarins besta

Issue

Bæjarins besta - 20.05.1992, Page 11

Bæjarins besta - 20.05.1992, Page 11
BÆJARINSBESIA • Miðvikudagur 20. maí 1992 11 SMÁ L-auglýsingar Til leigu er rúmgóð 2ja herb. íbúð á Eyrinni. Fyrirfram- greiðsla æskileg. Upplýsing- ar 10 4365. Til sölu er golfsett fyrir full- orðna og á sama stað fæst einnig unglinga golfsett. Upplýsingar í 0 7462. Til sölu er Camp-let GTE tjaldvagn. Vel með farinn. Einnig Kettler æfingatæki með ýmsum möguleikum. Uppl. 10 4640 eftirkl. 19. Hin árlega rauðmagakeppni kafara verður haldin laugar- daginn 23. maí. Skráning í 0 3230 eða 8148. Rúmgóður bflskúr óskast á leigu. Upplýsingar í 0 4328 eða 4455. Til sölu er Fender Stratocast- er rafmagnsgítar. m. tösku og Roland gítarmagnari. Upplýsingar í 0 7521. Barnfóstra óskast, ýmist hálfan eða allan daginn 5 daga vikunnar frá 1. júní. Upplýsingar í 0 4365. Grunnvíkingar. Aðalfundur Grunvíkingafélagsins verður haldinn í Kiwanishúsinu mið. 20. maí ki. 20.30. Félagar fjölmenníð. Stjórnin. Stórt úr með leðuról fannst í Stórholtinu. Uppl. f 0 4321. Fjögur notuð jeppadekk fást fyrir lítið. Upplýsingar í 0 4436 eftir kl. 18. Næla fannst í Krúsinni sl. laugardagskvöld. Upplýsing- ar í 0 4436. Óska eftir að passa börn, 1- 3ja ára eftir hádegi, er 12 ára. Upplýsingar í 0 4188. Óskum eftir ódýru eða gefins sófasetti og stofuborði. Upplýsingar í 0 7758. Óska eftir að kaupa litla skektu, plast eða tré, með mótor. Uppl. hjá Árna í 0 1583 eða Grím í síma 1365. Óskilamunir í Sundhöll. Mik- ið af fatnaði íóskilum. Alltfjar- lægt eftir 6. júní. Sundhöllin. Óska eftir að passa börn í sumar. Er 13 ára og bý í Firð- inum. Upplýsingar í 0 4234. Óska eftir notuðu sjónvarpi og svefnsófa. Vel með farið. Upplýsingar í 0 7731. Til sölu er hús á Flateyri, 2 hæðir + kjallari. Mjög rúmgott verð, sem kemur á óvart. Upplýsingar í 0 7731. Til sölu er vatnsrúm, sem nýtt. Upplýsingar gefur Val- dís í 0 8163. Óska eftir kerruvagni í góðu ásigkomulagi. Upplýsingar í 0 8163. Til sölu er kvíga, á að bera um mánaðamót maí/júní. Upplýsingar í 0 4826. Óska eftir að passa i sumar, helst niður í bæ e*tir hádegi, er 13 ára. Uppl. í 0 4261. Óska eftir kanínu. Upplýs- ingar í 0 3372. / Isafjarðarkaupstaður Garðleigjendur Þeir sem ekki hyggjast nota garðland sem þeir hafa haft á leigu, vinsamlegast látið vita sem fyrst, svo hægt sé að út- hluta öðrum. Qarðarnir verða plægðir strax og hægt verður að fara inn á þá. Þeir sem ekki geta beðið verða að merkja við. Munið að ganga vel um og ekki skilja eftir plast, ílát eða rusl á svæðinu, Garðyrkjustjórí. Sundhöll ísafjarðar Karlmann og konu vantar til afleys- inga í sundhöll í sumar, tímabilið júní, júlí og ágúst. Upplýsingar hjá íþróttafulltrúa í síma 3722 eða á bæjarskrifstofu. Sundhöllin. Vorhreinsunarátak Giröingar og kofar í bæjarlandinu Eigendur girðinga og kofa í bæjarlandi ísafjarðar. Eftir 25. maí munu starfsmenn bæjar- sjóðs fara um bæjarlandið og hreinsa í burtu allar ónýtar girðingar og kofa sem eru í niðurníðslu. Vorhreinsun Vikuna 25. - 30. maí munu starfsmenn áhaldahúss og sorphirðuverktaki að- stoða fólk við að fjarlægja rusl frá hús- eignum og fyrirtækjum í bænum. Fólki er þá bent á að það getur sett rusl útfyrir lóðir sínar og mun sorphirðuverktaki síð- an hirða það á eftirfarandi dögum: Mánudagur: Hreinsað í Holtahverfi. Þriðjudagur: Hreinsað í efri bænum. Miðvikudagur: Hreinsað í neðri bænum (Eyrinni) Föstudagur: Hreinsað í Hnífsdal. Laugardagur: Farið yfir allan bæinn. Þeir sem vilja láta rífa skúra, fjarlægja bílhræ eða aðra stærri hluti hafi samband við Áhaldahúsið í síma 3443 og munu starfsmenn þá koma og aðstoða húseig- endur við það. Þessu til viðbótar verða ruslagámar staðsettir við Sorpbrennslu á Skarfa- skeri, á Sundahafnarsvæði og við Kiwan- ishúsið á Skeiði. Tæknideild ísafjarðar. Smáfréttir: Menningar- sjóður Visa Á síðasta aðalfundi Visa íslands - Greiðslu- miðlunar hf, sem haldinn var í febrúar sl., var sam- þykkt að stofna til sér- staks Menningarsjóðs á vegum fyrirtækisins, styrktarsjóðs við listir og vísindi í landinu. Stofnfé sjóðsins er kr. 2.500.000., þar af verður 1.5 milljón úthlutað í haust og er tekið á móti umsókn- um til ágústloka. Tekjur sjóðsins eru árleg framlög frá Visa íslandi, sem aðal- fundur ákveður hverju sinni, vaxtatekjur og aðrar tekjur sem kunna að berast sjóðn- um. Tilgangur sjóðsins er nán- ar eins og segir í reglugerð: 1. Að styðja íslenska menn- ingur og listir. 2. Að veita fé til líknar og menningarmála. 3. Að efla verkmenntun, vís- indi og tækni. ( stjórn sjóðs- ins hafa verið tilnefndir þeir Jóhann Ágústsson, aðstoð- arbankastjóri Landsbanka íslands og stjórnarformaður Visa, Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri og Jón Stefánsson, organisti og söngstjóri. fréttatilkynning. Tímaritið Þroskahjálp komið út Tímaritið Þroskahjálp, 1. tbl. 1992 er komið út. í þessu fyrsta tölublaði árs- ins eru umtalsverðar breytingar á innsíðum ritsins en þær fylgja í kjöl- farið á útlitsbreytingum síðasta árs. Tímaritið er að þessu sirini fullt af fróðleik en hæst ber þó viðtal við Ingibjörgu Atladóttur Þormar sem segir frá velheppnuðum fyrsta skólavetri fatlaðar dóttur sinnar í almennum skóla. Skólinn er börnum og ung- lingum, fötluðum og ófötluð- um, allt og því ber að berjast fyrir jafnrétti þar sem annars staðar. Fræðigreinin í tímaritinu er að þessu sinni eftir Rann- veigu Traustadóttur og veltir hún fyrir sér muninum á manneskju- og bygginga- miðaðri búsetuþjónustu um leið og hún mótar framtíðar- sýn í þeim efnum. Grein dr. Sigrúnar Stefánsdóttur, „Gagnkvæm hræðsla gagnkvæm hræðsla", lýsir samskiptum fjölmiðlafólks og fatlaðra á skemmtilegan og fræðandi hátt. fréttatilkynning. Minnin^ar- sjóður Ónnu Ingvarsdóttur Fyrir hartnær 50 árum stofnaði Sunnukórinn á ísafirði sjóð til stuðnings söng og tónlistarstarf- semi hér í bæ. Sjóðurinn var stofnaður í minningu Önnu Ingvarsdóttur, eig- inkonu Jónasar Tómas- sonar, þáverandi org- anista og söngstjóra Sunnukórsins. Anna hafði mikið unnið að söng- og tónlistarstarfi bæjarins, ekki síst við kirkjuna, meðan líf og heilsa entist, en hún lést árið 1943, 43 ára að aidri. Tilgangur sjóðsins er samkvæmt stofnskrá hans: 1. Að styðja til söng- og tón- listarnáms, með styrkveit- ingum eða lánum, efnilega nemendur í þeim greinum. 2. Að styrkja til starfs í bæn- um, þá er starfa að söng eða tónlist, bæjarbúum til uppbyggingar. Reikningar sjóðsins voru lagðir fram á aðalfundi hans nú nýlega og kemur þar fram að sjóðseign 31.12.1991 er kr. 685.843,- Tekjur sjóðsins hafa frá upphafi, auk vaxta, helst verið minningargjafir vel- unnara og sala minningar- korta, sem lengi hafa verið afgreidd í Bókhlöðunni. Þó ekki sé sjóðurinn digur, hef- ur honum auðnast að veita um tug ísfirskum tónlistar- nemendum lán eða styrki, sem vonandi hafa komið að einhverju gagni. Upphæðir hafa ekki verið stórar, en kjörin kannske þeim mun betri. Frekar hefur verið hljótt um Minningarsjóðinn nú sið- ustu árin, endafækkaróðum þeim hér, sem af eigin reynslu muna störf Önnu Ingvarsdóttur. En Minning- arsjóður Önnu Ingvarsdótt- ur mun starfa áfram og von- andi eflast, svo hann geti af meira afli gegnt sínu ágæta hlutverki. Stjórn sjóðsins vill vekja athygli á Minningar- sjóðnum, bæði vegna þeirra, sem hafa áhuga á að styðja starfsemi hans á einhvern hátt, en ekki síður vegna þeirra ísfirskra tónlistar- nema í framhaldsnámi, sem hugsanlega gætu sótt þang- að styrk. Stjórn sjóðsins skipa nú: Gunnlaugur Jónasson, for- maður, Hafnarstræti 2, Einar Ingvarsson, gjalkeri, Fagra- holti 14, Jónas Tómasson, ritari, Túngötu 1, Bjarney Ólafsdóttir, meðstj. Engja- vegi 24 og Sigríður J. Ragn- ar, meðstj. Smiðjugötu 5, ísafirði. fréttatilkynning. Bubbi og Visa I samstarf Bubbi Morthens og Visa ísland hafa ákveðið að hefja samstarf sem mun taka yfir 6 mánaða tímabil á þessu ári. Visa mun styrkja Bubba til að fara sína árlegu hljómleikaferð í kringum landið og einnig aðra tónleika sem haldnir verða á þessu tímabili. Þetta mun gera Bubba kleift að halda miðaverði niðri. Bubbi mun halda frítónleika í júní á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Akra- nesi, ísafirði, Akureyri, Blönduósi, Egilsstöðum, Selfossi, Keflavík og Vestmannaeyjum. fréttatilkynning. Ferðaskóli Flugleiða Ferðaskúli Flugleiða tek- ur til starfa í október á þessu ári. Þetta er fyrsti skólinn á íslandi sem fær formlegt leyfi frá IATA (Alþjóða- samband flugfélaga) til að kenna samkvæmt IATA- UFTA staðli með gögnum frá IATA. Stofnun skólans er liður í undirbúningi Flugleiða til að mæta aukinrii samkeppni í flugi og ferðaþjónustu inn- an Evrópu. Með stofnun hans gefst fólki tækifæri á að stunda hagnýtt nám í ferða- þjónustu og öðlast frekari möguleika til að starfa í greininni, bæði hér heima og elendis. í dag- eru 57 skólar starfandi í heiminum sem undirbúa fólk undir þessi próf og af þeim voru 14 stofnaðir á síðasta ári. Námið í Ferðaskóla Flug- leiða er rúmar 400 kennslu- stundir. Það hefst í október og verða nemendur útskrif- aðir í mars. í náminu felst m.a. fargjaldaútreikningar, farseðlaútgáfa, notkun far- þegabókunarkerfis og upp- lýsingakerfisins Amadeus, upplýsingar um flutningsað- ila, erlend og innlend ferða- landafræði, sölutækni og markaðsmál, þjónustumál og þekking á ferðaþjónustu á íslandi. Leiðbeinendur við Ferða- skóla Flugleiða hafa ára- langa starfsreynslu í ferða- þjónustu og eru þeir sömu og sjá um þjálfun starfs- manna Flugleiða og hinna ýmsu ferðaskrifstofa. Una Eyþórsdóttir fræðslustjóri Flugleiða veitir skólanum forstöðu. Aðsetur skólans verður á annari hæð Hótels Esju þar sem Skóli Flug- leiða er til húsa. Kortasími Eurocard á íslensku um allan heim Eurocard á Islandi hefur nýlega gert samning við bandaríska fyrirtækið Ex- ecutive TeleCard Ltd. um símaþjónustu fyrir Eurocard gullkorthafa. Executive TeleCard kortasímaþjónust- an er einstök í sinni röð og gerir korthöfum kleift að hringja sjálfvirkt úr tónvals- síma frá yfir 30 löndum til nánast allra landa í heimin- um. Þar að auki er líka hægt að nota þjónustuna fyrir öll simtöl innan þessara landa og til að senda telefax. Öll fyrirmæli frá kortasímanum til Eurocard korthafans eru á íslensku og því engir tungumálaörðugleikar að yfirstíga, né erlend skipti- borð sem þarf að hafa sam- kipti við. I stuttu máli virkar korta- sími Eurocard þannig að Xorthafinn hringir í grænt númer í því landi sem hann er staddur í og slær síðan inn landsnúmer, svæðisnúmer og númer þess sem hann ætlar að hringja í, ásamt upplýsingum um kortnúmer sitt og leyninúmer. Búnað- urinn hringir sjálfvirkt í það númer sem korthafinn velur og símgjöldin eru síðan skuldfærð á kortareikning hans.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue: 20. tölublað (20.05.1992)
https://timarit.is/issue/412185

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

20. tölublað (20.05.1992)

Actions: