Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.09.1993, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 15.09.1993, Blaðsíða 7
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 15. september 1993 7 Vígsluhátíð nýja íþróttahússins: Fjölbreytt, lífleg og soðsöm dagskró UNDIRBÚNINGSNEFND vígsluhátíðar nýja íþrótta- hússins kynnti dagskrá opnunarhátíðarinnar í síðustu viku en hátíðin verður sem kunnugt er laugardaginn 18. september næstkomandi og hefst hún klukkan þrjú. Meðal efnis verða ávörp, tónlistaratriði, íþróttasýningar og níu fermetra terta sem metta á 1300 manns. Mörg atriði eru á dagskránni sem er í alla staði fjölbreytt og skemmtileg. Kynnir hátíðar- innar verður Jóhannes Bjarni Guðmundsson nemi við Framhaldsskóla Vestfjarða en er líklega betur þekktur sem íþróttafréttaritari Svæðisút- varps Vestfjarða. Dagskráin hefst á því að Björn Helgason, fulltrúi vígslu- nefndar setur hátíðina. Um fimm mínútum síðar mun Sunnukórinn syngja tvö lög undir stjórn Beötu Joó. Isfirska sópransöngkonan Guðrún Jónsdóttir tekur svo við af Sunnukórnum og flytur há- tíðargestum vel valin verk. Um klukkan hálf fjögur flytur Bjöm Teitsson skólameistari Fram- haldsskólans stutt ágrip af byggingarsögu íþróttahússins. Þegar ágripi Björns er lokið munu gestir flytja ávörp en ó- víst er að sjálfsögðu hve langur sá dagskrárliður verð- ur. Klukkan fjögur fer loks formleg afhending íþrótta- hússins fram og mun séra Magnús Erlingsson blessa húsið að henni lokinni. Þá tekur við íþróttasýning yngstu Grunnskólabarnanna undir leiðsögn íþróttakennara og svo klukkustunda löng kynning innanhús íþrótta í umsjón ÍBI. Þar verða kynntar þær íþróttir sem hægt verður að stunda í húsinu, svo sem körfubolti, blak, tennis, boccia, fótbolti og ýmislegt fleira. Um tuttugu mínútur í fimm er áætlað að hátíðargestirnir fái einhverja magafyllingu og hefur af því tilefni verið á- kveðið að baka níu fermetra tertu sem samkvæmt vísinda- legum útreiknum á að geta mettað alla sem í íþróttasalinn komast, en hann rúmar um 1300 manns. Auk tertunnar verða svaladrykkir og aðrar veitingar einnig í boði. Því næst verður gert hlé á dagskránni og húsið tæmt fyrir stórleik í körfubolta. Um er að ræða vígsluleik milli Ung- mennafélags Njarðvíkur og Körfuboltafélags Isafjarðarog hefst hann hefst klukkan níu. KFÍ verður styrkt af fimm bestu erlendu körfuboltamönn- um sem leika á Islandi (oft nefnt NIKE-liðið) ásamt Pétri Guómundssyni, fyrsta og eina Islendingnum og jafnframt Evrópubúanum sem leikið hefur með bandarísku NBA deildinni á meðal stórstjarna eins og Magic Johnson og Michael Jordan og mörgum fleirum. Hinir fjórir eru Franc Booker frá Val, John Rhodes frá Haukum, Davíð Grissom frá KR og Rondey Robinson frá UMFN. Þess skal um leið getió að í liði Njarðvíkinga eru fjórir núverandi landsliðs- menn og tveir fyrrverandi og er því von á hörðum, spenn- andi og skemmtilegum leik. Boðið verður upp á veitingar meðan á leiknum stendur og ýmsar óvæntar uppákomur verða í leikhléi. Þetta verður stórviðburður og mikil körfu- boltaveisla fyrir alla fjöl- skylduna. Aðgöngumiðaverð er 500 krónur fyrir fullorðna og 200 krónur fyrir böm. Smíðatafir óhjákvæmilegar Nýja íþróttahúsið er 2184 fermetrar að stærð, þar af er íþróttasalurinn 1300fermetrar og samtals er byggingin 15.248 rúmmetrar. Áhorfendapallar og áhorfendastæði munu rúma um 800 manns. Á efri hæð hússins er veitingaaðstaða og geta um fimmtíu manns setið þar við borð og getur sú að- staða einnig notast til funda- halda. Arkitekt hússins er Vilhjálmur Hjálmarsson og hönnuður lóðarinnar er Reynir Vilhjálmsson. Heildarkostn- aðartölur byggingarinnar að innan sem utan er um 250 milljónir. Undirbúnings- og vígsluhá- tíðarnefnd hússins er skipuð þremuraðilum, fulltrúi hennar er Björn Helgason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi en með hon- um eru Bjöm Teitsson skóla- meistari Framhaldsskóla Vest- fjarða og Halla Sigurðardóttir formaður Iþróttabandalags ísafjarðar. Bjöm Helgason og nafni hans Teitsson héldu blaðamannafund í síðustu viku í fjarveru Höllu Sigurðar- dóttur sem nú er úr bænum. A fundinum röktu þeir sögu hússins ásamt þróun og gang mála undanfarin ár í stuttu máli og kom þar meðal annars fram að smíði hússins átti að ljúka árið 1991.„Þessitöfþættifyrir nokkrum árum óveruleg en á nútíma mælikvarða er hún töluverð þar sem venjuleg íþróttahús, sem kosta um 240 milljónir, eru reist á innan við ári og þykir mjög mikilvægt að ljúka þeim af sem fyrst. Það stóð aldrei á peningum frá ríkinu til smíðinnar en það stóö hins vegar stundum á framlögum úr bæjarsjóði þar til fyrir tveimur árum þegar ákveóið var að setja fullan kraft í smíðina. Tafimar til ársins 1991 hafa síðan átt nokkuð stóran hlut í heildar- töf byggingarinnar,” sagði Björn Helgason. Byggingarsaga hússins spannar 14 ár „Fyrsta undirbúningsnefnd að smíði hússins kom saman í júlí 1979 svo að undirbún- ingurinn ásamt smíðinni hefur tekið fjórtán ár,” sagði Björn Teitsson. „Skóflustungan var tekin 7. mars árið 1987 af þáverandi forseta bæjar- stjómar, Kristjáni Jónassyni og hefur húsið því verið í bygg- ingu í sex ár. Fyrst var grunnurinn boðinn út, verktakinn var Ogri í Bolungarvík sem nú er farinn á hausinn. Stærsta útboðið var uppsteypa hússins sem Rör- verk hf. á Isafirði sá um en það fyrirtæki er nú einnig úr sögunni. Verktaki innanhúss frágangs var svo Auðunn Guðmundsson og er hans hlut- verki eiginlega enn ólokið. Upphaflega átti ríkið að taka þátt í byggingarkostnaði sem næmi 59 prósentum og Isafjarðarkaupstaður afgang. Menntamálaráðherra var full- trúi ríkishlutdeildarinnar á þeim tíma vegna mikilvægis íþróttahússins fyrir Mennta- skóla Isafjarðar sem þá var og hét. Árið 1989 raskaðist þessi hlutdeild verulega er ný lög tóku gildi er vörðuóu alla framhaldsskóla á Islandi og byggingarframkvæmdir þeim tengdar. Þannig að þegar upp er staðið hefur Isafjarðar- kaupstaður borgað meira en ríkið í byggingu hússins. Þetta stafar að miklu leyti af því að byggingartími og kostnaður hefur farið fram úr svokölluðu „normi”. Enn hefur ekki verið fjallað um það hver endanleg eignarskipting verður en hins vegar er ljóst að nýja íþrótta- húsið er í eigu ríkisins og ísa- fjarðarkaupstaðar sem jafn- framt verður eini rekstrar- aðilinn,” sagði Björn Teits- son. Allir vellir löggildir til alls nema úrslitaleiks í heimsmeistara- keppni I nýja íþróttahúsinu eru fjórir löggildir körfuboltavellir en löggildur völlur hefur aldrei verið til staðar á Vestfjörðum, völlurinn í íþróttahúsi Bol- ungarvíkur kemst nálægt því en fjóra metra vantar upp á að hann sé löggildur. Aðeins einn af þessum er þó raunverulega keppnishæfur þar sem ströng lög segja til um öryggissvæði umhverfis völlinn. „Hvað stærðina varðar eru vellirnir löglegir til ólympíuleiks, heimsmeistaraleiks og hvers sem er, nema úrslitaleiks í heimsmeistarakeppni,” sagði Björn Helgason. „I salnum eru níu badmintonvellir í stað þess eina sem við höfum haft undanfarin fimmtíu ár í gamla íþróttahúsinu að Austurvegi. Þarna er einn handboltavöllur, einn knattspymuvöllur og fjórir körfuboltavellir. Einnig eru Unnið að lokafrágangi íþróttasalarins. fjórir blakvellir, einn tennis- völlur og einn bocciavöllur. Boccia er orðin mjög vinsæl íþrótt meðal þroskaheftra og fatlaðra og það er nauðsyn- legt að gera öllum jafnhátt undir höfði í þeim málum. Þetta er fyrsta íþróttahúsið sem byggt hefur verið í fjöldamörg ár sem hefur merktan boccia- völl og við höfum fengum mikið hrós fyrir það,” sagði Björn Helgason. Björn benti jafnframt á að þama opnast nýjar leiðir fyrir Isfirðinga sem hingað til hafa ekki getað stundað allar þær innanhús íþróttir sem til eru, nema að hluta til í íþrótta- húsinu í Bolungarvík. „Þess má geta um leið að húsið er einnig hannað fyrir sýningar af ýmsu tagi, svo sem vöru- og bílasýningar eða ráð- stefnur og hljómleikahald. Hljómburðarsérfræðingar komu nálægt byggingu hússins eins og sjá má í útfærslu loftsins. I suðurenda salarins er meðal annars vegna þessa sérstakur aukaveggur sem á að brjóta upp hljóðið á réttan hátt og gefa salnum réttan hljóm, auk þess sem hann gefur salnum skemmtilegan blæ,” sagði Björn. Nokkrir lausir endar óbundnir Öll áhöld, tæki og búnaður sem á að vera í húsinu er þegar tilbúið og uppsett. Einu „lausu endana” sögðu nafnarnir vera auka málningarumferðir á suma inn veggi hússins og fleiri smáatriði og munu rafmagns- málin heldur ekki alveg vera komin á hreint ennþá. Hins vegar fullyrti undirbúnings- nefndin í síðustu viku að íþróttahúsið yrði tilbúið til notkunar strax að vígslu lok- inni þó að þessir svokölluðu lausu endar yrðu ekki ailir endanlega bundnir fyrr en með haustinu. -hþ. VestMmar! I haust verðum við með slátursölu á tveimur stöðum: Afurðasalan ÞinQoyri Opið kl. 11:00-12:30 og kl. 13:00-15:00 virka daga. Pöntunarsíminn ar 8395. Sláturmarkaðurinn r í Opið kl. 15:00-18:00 virka daga. Pöntunarsíminn er 5185. Einnig ar hægt að panta í síma 4802 (kjötvinnsla). Við leggjum mikla áharslu á að fólk panti mað fyrirvara □g að akki sé dregið til síðasta dags að taka slátur, því að þá er hætt við að færri fái en vilja. SIÁTUMÉIAO® barði

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.