Bæjarins besta - 15.09.1993, Síða 9
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 15. september 1993
9
ísafjöröur:
Al bæjarmálum
NOKKUÐ er um liðið frá
því sagt hefur verið frá störfum
bœjarstjórnar og er skýringin
sú að útgáfa fundargerða
bæjarstjórnar hefur legið
niðri í sumar. I lok síðustu viku
kom síðan út þykk skýrsla sem
spannaði yfir mánuðina júní,
júlí, ágúst og byrjun september
mánaðar og skuiu tíunduð hér
nokkur atriði úr þeirri fundar-
gerð.
* Á fundi bæjarráðs sem
haldinn var 22. júlí var lögðfram
beiðni um fjárstyrk frá Jóni Geír
Jóhannssyni, f.h. hljómsveit-
arinnar Urmuls. Faríð varfram á
fjárstyrk vegna útgáfustarfsemi.
Bæjarráð vísaöi erindinu til
menningarráðs til afgreiðslu.
* Á fundi bæjarráðs sem
haldinn var 29. júlí var lagt fram
bréf frá Ferðamálasamtökum
Vestfjarða, þar sem bæjarráð er
hvatt til að beita sér fyrir upp-
setningu veöurathugunar-
stöðvar á ísafirði. Bæjarráð
benti á að nú þegar er unníö að
rnálinu.
* Þá var iagt fram ;bréf frá
forstööumanní tæknideildar þar
sem óskað cr heimíidar tii að
greiða virðisaukaskatt af bíl,
sem bæjarverkstjórí hefur til um-
ráóa, vegna breyttra reglna um
notkun bíla, sem hafa verið
keyptir án Vsk. Bæjarráð fól
bæjarstjóra að afla frekari upp-
lýsinga um málið.
* Á fundi bæjarráðs sem
haldinn var 26. ágúst var lagl
fram bréf frá Nanortaiik, þar sem
fram kemur ánægja með þau
starfsmannaskipti sem fariðhafa
fram í sumar. Ennfremur kentur
t'ram áhugi á að fá skólabörn frá
ísafirði í heimsókn til Nanortalik
næsta sumar. 1 tengsium við það
mundu fulltrúar frá Nanortalik
koma tii Isafjarðar næsta vor.
á þriðjudögum. Það er líka á
stefnuskránni að hafa sérstaka
tíma fyrir „heiðursmenn” á
öllum aldri. Félagasamtök geta
líka fengið sérstaka
eróbikktíma, til dæmis er
Körfuboltafélagið í eróbikk-
og þrektímum tvisvar í viku og
þetta er tilvalið tækifæri fyrir
hópa og félagasamtök, hvort
sem þeir vilja bara halda sér í
formi eða æfa stíft.
* Á fundí bæjarráðs sem
haldinn var 2. september síðast-
lióinn lagði bæjarstjórinn á ísa-
firði frameftírfarandi spumingar
varðandí nýja íþróttahúsið á ísa-
firði: Hvenær voru umsamin
verklok? Hvaó eíga verktakar
eftir áð gera? Hvað cr eftir af
öðrurn verkum, sem verður aó
ljúka áður en húsið verður til-
búíð? Fram kom að verktakamir
Auðunn Guömundsson og
Naglinn sf., áttu aó hafa lokið
verkinu I. ágúst. Vélaverk átti
hins vegar aó hafa lokið víð
lóðina 27. ágúst.
* Á fundi bæjarráðs um fast-
eignamál sem haldinn var 12.
ágúst var lagt fram bréf frá Elíasi
Skaftasyní og Halldóru Þórðar-
dóttur þar sem leitað er umsagnar
um heimild til að byggja 300
fermetra blómaglerskála á lóð-
inni bak vió verslunina Elísu.
Meðfylgjandi erindinu voru ljós-
myndír af blómahúsinu á Akur-
eyri. Bæjarráð hefur ekki um-
ráðarétt yfir lóðinni og gat því
ekkí afgrcitt málið.
* Á fundí byggingamefndar
íþróttahúss sem haldinn var 11.
ágúst skýrði Stefán Brynjólfs-
son, eftirlitsmaður hússins frá
opnun tilboða vegna útboðs á
lausum búnaði, mestmegnis hús-
gögnum, Alls bárust þrjú tilboð:
A) Frá GKS-Biro að fjárhæð kr.
952.132. B) Frá Pennanum að
fjárhæðkr. 513.466. C) Frá HÚs-
gagnaioftinu á ísafirði að fjár-
hæð kr. 1.656.176. Tilboðín
voru ekki innbyróis sambærileg
og náói tilbo c eitt til alls út-
boðsins. Samþykkt var því að
leggja til aó gengið yröi til
samnmga við Húsgagnaiottið.
þó með fyrirvara um sófa í and-
Ég vil svo að lokum benda
á, að þar sem nýja íþrótta-
húsið er orðið að raunveru-
leika, þá mun Framhalds-
skólinn verða með alla sína
íþróttatíma þar en ekki hér í
vetur. Fólk getur því verið ó-
hrætt viö að koma alla tíma
dagsins, það er alltaf nóg
pláss,” sagði Stefán.
-hþ.
ARNAR G. HINRIKSSON
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími 4144
Strandaata7: Nýuppgert, tvílyft
einbýlishús úr timbri.
Sundstræti 24: Önnur hæð.
Rúmlega 120 m2 sérhæð. 3
svefnherbergi. Bílskúr fylgir.
Hjallavegur 1: Einbýlishús,
fbúðarhæðin er 120 m2. Bílskúr
oggeymslaeru um 60 m2. Húsið
er laust í haust.
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á
з. hæð.
Bakkavegur 23: Einbýlishús,
и. þ.b. 160 m2 ásamt bílskúr.
Aðalstræti 22b: 2jaog 3ja herb.
íbúðir á 2. og 3ju hæð.
Tangagata 20: 3ja herb. íbúð.
Laus eftir samkomulagi.
Lyngholt2:140m2einbýlishús
ásamt bílskúr. Laust eftir sam-
komulagi.
Aðalstræti 20:3ja herb. íbúð á
2. hæð, u.þ.b. 95 m2.
FASTEIGNAVIÐSKIPTI
Mjallargata 6: Norðurendi. 4ra
herb. íbúð ásamt tvöföldum
bílskúr.
Fitjateigur4: U.þ.b. 151 m2ein-
býlishús á einni hæð ásamt
bflskúr.
Súðavík
Aðalgata 60: Lítið einbýlishús.
Bolungarvík
Hlíðarstræti 24: Tvílyft ein-
býlishús, 2 x75 m2.
Hólastígurð: Rúmlegafokhelt
raðhús. Selstágóðum kjörum.
Hlíðarstræti 21: Gamalt ein-
býlishús, 80 m2.
T raðarland 24: T vílyft einbýlis-
hús, u.þ.b. 200 m2 með bílskúr.
Vitastígur 8: Tvílyft einbýlis-
hús, m.a. 4 svefnherbergi.
Leikskólamál
SAMKVÆMT reglum um innritun barna á leikskóla Isa-
fjarðarkaupstaðar geta foreldrar sótt um leikskóiad völ fyrir
barn sitt á því ári er það verður eins árs. Þessar reglur eru
í samræmi við lög um lcikskóla sem tóku gildi í mars 1991.1
þessum lögum er leikskóli skilgreindur sem 1. skólastigið og
stofnanir sem áður hétu dagheimili (heilsdags dvöl) og leik-
skólar (hálfsdags dvöl) heita nú allar leikskóiar og eru skil-
greindar sem uppeldis- og menntastofnanir.
Leikskóli er samkvæmt
ofangreindum lögum frá því er
fæðingarorlofi lýkurtil sex ára
aldurs barnsins. Isafjarðar-
kaupstaður starfrækir þrjá leik-
skóla og eitt skóladagheimili.
Þá hefur skóladagheimilið
starfrækt litla leikskóladeild og
gefist vel. Isafjarðarkaup-
staður hefur ekki geta full-
nægt þörfinni fyrir leikskóla-
rými og er því biðlisti. Bið-
listinn er samkvæmt stöðinni
16. ágúst eftirfarandi:
Fyrir hádegi; 35 böm, þar af
22 börn sem einnig eru á bið-
lista eftir hádegi. Eftir hádegi;
59 börn, þar af 27 böm sem
einnig eru á biðlista fyrir há-
degi. Heilsdags dvöl; 37 böm,
af þeim eru 13 böm í forgangs-
hóp. Af þessum 37 bömum eru
7 böm á hálfsdags d völ en óska
eftir skiptum og 24 böm sem
einnig eru á biðlista á hálfs-
dags dvöl. A leikskólanum
Bakkaskjóli eru 12 börn á bið-
lista og af þeim eru 9 börn
einnig á biðlista á aðra leik-
skóla.
Af þessum tölum má sjá að
þörfin fyrir leikskóladvöl er
mikil, jafnvel meiri en ofan-
greindar tölur gefa til kynna
þar sem sumir hafa ekki ennþá
sótt um leikskólapláss fyrir
barn/börn sín. Þegar börn
komast inn á leikskóla hér, það
er á hálfdags dvöl, þá eru þau
orðin þriggja ára gömul, ef
ekki eldri. A undan þeim tíma
hafa foreldrar óg börn gengið
marga þrautargönguna.
Biðlisti eftir heilsdags dvöl
er einnig mjög Iangur. Sam-
kvæmt reglum þá hafa ein-
stæðir foreldrar, námsmenn
(miöaö vió fullt nám), börn
sem búa við fötlun og/eða
veikindi, og börn sem búa við
félagslega erfiðleika, forgang
að leikskólaplássi. Fyrir hjóna-
fólk getur það tekið mjög
langan tíma að koma bami sínu
á heilsdags dvöl. En á meðan
þörfinni er ekki fullnægt verð-
ur að vera regla um forgang.
Það er mikið um að fólk lýsi
óánægju sinni með það hvern-
ig búið er að barnafólki hér í
bæ en gerir kannski of lítið af
því að láta í sér heyra og mót-
mæla þessari stefnu við rétta
aðila.
Málefni leikskóla og hvemig
að þeim er staðið hér er ekki
einkamál fóstra, heldur varðar
þetta alla, ekki síst barnafólk.
Það erkominn tími til að ráða-
menn hér í bæ kynni sér betur
hugmyndafræði leikskóla og
móti sér einhverja stefnu þar
að lútandi, heldur en að láta
einhverjar skyndiákvarðanir
ráða ferðinni. Þetta er
spurning um skilning og niður-
röðun verkefna í forgang. Eru
böm kannski ekki líka fólk?
Heilsugæslustöðin á ísafirði:
Heimilislæknar
taka til starfa
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
koma á heimilislæknakerfi
innan læknishéraðs heiisu-
gæslustöðvar Isafjarðar.
Þess vegna hefur til hag-
ræðingar, einnig verið á-
kveðið að skipta héraðinu
niður á þá lækna sem starfa
við HSÍ.
Fjórar stöður heilsugæslu-
lækna eru við stöðina þó
aðeins tvær séu settar föstum
læknum. Fjórir læknar hafa þó
oftast verið starfandi samtímis
við stöðina svo ekki hefur
komið að sök, nema þá hve
hvimleitt það er fyrir sjúkl-
ingana að geta sjaldnast séð
sama lækninn. Þessu verður nú
breytt með því að láta fólk velja
sér heimilisiækni. I kjölfar slíkrar
breytingar ásamt fleirum vonast
HSI til að geta fengið hingað
fleiri fasta lækna til starfa. Til
að ofgera engum læknanna
verður sett hámark á þann fjölda
sjúklinga sem skráðir verða á
hvem lækni.
Sjúklingar geta skipt um
fastan lækni þyki þeim eóa
læknunum ástæðatil. Sjúklingar
geta líka nú sem fyrr sótt aðra
lækna innan stöðvarinnar, sé
þess óskað. ///,/,
ísafjarðarkaupstaður óskar eftir tilboðum í
1. áfanga byggingar sorpbrennslustöðvar í
landi Kirkjubóls í Engidal sem er gröftur og
uppsteypa sökkla, kjallara og plötu. skila
skala 1. áfanga fullkláruðum 10. nóvember
1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Táeknimiði
hf., Árnagötu 2, ísafirði, frá og með
þriðjudeginum 14. septembernk. gegn5.000,-
kr. skilatryggingu. TOboðin verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 21. september nk. kl.
14:00
Útboð þetta er með fyrirvara um samþykki
Skipulags ríkisins á aðal- og deiliskipulagi.
Byggingarnefnd.
Vlltu starfa með
unglingum í vetur?
Félagsmiðstöðináísafirði óskar eftir tveimur
starfsmönnum í hlutastörf.
Óskað er eftir starfsmanni í hálft starf á
morgnana, við þrif o.fl. (vinnutími getur þó
verið sveigjanlegur) og í hálft starf e.h. og
þrjúkvöldívikuviðunglingastarf. Þaróskum
við eftir einstaklingi með reynslu af unglinga-
starfi og með eigin frumkvæði í starfi (þarf að
geta leyst forstöðumann af). Viðkomandi
munu hefja störf sem fyrst og starfa fram í
maílok.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
Félagsmiðstöðvar í síma3808eða á staðnum.
Sundhöll ísaflarðar
iUmeimingstímar
virkadaga kl. 7:00- 8:30 og 17:00-19:00
laugardaga kl. 10:00-16:00
sunnudagald. 10:00-14:00
Ath! Lengur opið á morgnana (til 8:30)
Sána og heitur pottur innifalið í sundmiða.
ísfirðingar! Sundveitir ánægjuogbetríheilsu.
Sundhöll ísafjarðar
m sölu
Til sölu er einbýlishús með upp-
hituðum bílskúr og geymslu við Aðal-
strœti 18, Bolungarvík. Rœktuð lóð.
Upplýsingar gefur Bernódus G. Hall-
dórsson í síma 7376.