Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.11.2013, Blaðsíða 4
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn
1. desember
Dagur rauða borðans
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn
sunnudaginn 1. desember
næstkomandi.
Að Hverfisgötu 69 verður opið hús,
boðið upp á kaffihlaðborð og miklar
hnallþórur milli kl. 15:00 og 18:00.
Listamenn koma í heimsókn,
með söng og upplestur.
Yfirskrift dagsins í ár er:
Náum núllpunkti
Rauði
borðinn
Að bera Rauða borðann er
táknmynd samúðar og
stuðnings við hiv-jákvæða
og alnæmissjúka.
Rauði borðinn er ekki einungis stuðnings-
yfirlýsing, heldur krafa um umræðu og
forvarnir, ósk um framfarir í rannsóknum og
von um lækningu.
Rauði borðinn er einnig leið til þess að
draga hiv-smit og alnæmi fram í dagsljósið.
Upphaf Rauða borðans má rekja til lista-
mannahópsins Visual AIDS í Bandaríkj-
unum, samtaka listamanna, listfræðinga og
forstöðumanna listasafna. Inntakið er: hiv og
alnæmi kemur okkur öllum við!
Smáratorg 3 (Turninn) 201 Kópavogur
sími 533 3200 acta@acta.is
www.acta.is
Leiðarlínur fyrir merki FIT