Rauði borðinn : fréttabréf alnæmissamtakanna á Íslandi - 01.11.2013, Blaðsíða 24
24
RA
U
Ð
I B
O
R
Ð
IN
N
Félagasamtökin Hiv Danmark sendu frá sér þá yfirlýs-
ingu nú í september að bæði hiv-jákvæðir og almenn-
ingur skyldu uppfræddir um það: „Að hiv-jákvætt fólk á
lyfjum (sem bregst vel við lyfjagjöf), smitar ekki.“
Þetta kemur fram í síðasta tölublaði samtakanna í grein
sem ber yfirskriftina Mere sex med hiv-smittede fordi. Þar
segir m.a.: „Þeir sem eru ekki
smitaðir af hiv-veirunni velja
sjálfir hvernig og hvort þeir
vilja stunda kynlíf með hiv-
jákvæðum einstaklingi sem er á
lyfjameðferð. Valið ætti að vera
upplýst.“ Einnig kemur fram að
ef vafi leikur á því hvort hinn
hiv-jákvæði einstaklingur sé
að bregðast vel við lyfjunum,
eigi að nota smokk. Samtökin
segja smokk vera góða vörn
gegn hiv-smiti og öðrum kyn-
sjúkdómum: „Ef fólk veit þetta
tvennt: að smokkar eru góð vörn og að hiv-jákvæðir á
lyfjameðferð smita ekki, þá er allur ótti við að stunda
kynlíf með hiv-jákvæðum einstaklingi óþarfur.“
Hiv Danmark skýra auk þess frá því að hiv-jákvæðir ein-
staklingar sem bregðast vel við lyfjagjöf geti komist hjá
því að upplifa ótta við að smita annan einstakling af hiv
og endurheimt kynlífið sitt. Á sama hátt sé óhætt fyrir
pör í dag (þar sem annar aðilinn er smitaður) að stunda
óvarið kynlíf og geta börn sín á náttúrulegan hátt.
Þekking eyðir fordómum
Hiv Danmark lýsir því yfir að samtökin líti á það sem
verkefni sitt að breiða út þessa þekkingu og með henni
draga úr fordómum sem hiv-jákvæðir verði stöðugt
fyrir. Minnkandi fordómar og mismunun komi öllum
vel. Sú staðreynd að hiv-jákvæðir sem bregðist vel við
lyfjagjöf séu ekki lengur smitberar, muni, samkvæmt
Hiv-Danmark, minnka ótta í garð smitaðra einstaklinga.
Mörgum sem smitast af hiv-veirunni finnst kynlífið
breytast þegar litið er á þá sem smitbera og margir hætta
að stunda kynlíf. Gitte Kronborg, yfirlæknir á Hvidovre
Hospital, sagði í viðtali við Vi&Hiv í nóvember árið
2012, að ef einstaklingur væri á lyfjameðferð og lyfin
virkuðu vel, væru líkurnar á að smita aðra manneskju
í gegnum kynmök hverfandi eða mjög, mjög litlar. Í
grein sem birtist á vefmiðlinum Information.dk, þ. 21.
desember árið 2010 og bar yfirskriftina Leyndarmálið
um hiv, var rætt við Jan Gerstoft, yfirlækni á Ríkisspítala
Danmerkur, Rigshospitalet. Hann sagði:
„Við erum að tala um að áhættan á smiti sé 0,0000 og
eitthvað prósent. Líkurnar á að smita aðra eru allavega
svo litlar, að maður getur ekki mælt þær. Svo það leikur
enginn vafi á því að þetta eru mjög ósennilegar líkur.
Við köllum þetta að vera vel meðhöndlaður á læknamáli
og það þýðir að einstaklingur hafi verið með ómælanlegt
veirumagn í blóðinu í sex mánuði eða lengur. Jan segir
að 85% smitaðra séu vel meðhöndlaðir.
Svissneska skýrslan
Á stórri hiv-ráðstefnu sem haldin var í Boston árið 2008,
kom fram teymi svissneskra prófessora og rannsakenda
með afar umdeildar niðurstöður vísindarannsókna sem
sönnuðu að smitaðir einstaklingar á lyfjum væru ekki
smitberar. Nú, fimm árum síðar, hefur almenningur
ekki enn heyrt um Svissnesku skýrsluna og þær merki-
legu niðurstöður sem í henni birtust. Margar alþjóðlegar
rannsóknir hafa síðan þá stutt niðurstöður skýrslunnar.
Bent Hansen aðalritari hjá samtökunum Hiv Danmark
segir það enga tilviljun að almenningur fái ekki að heyra
um niðurstöður rannsóknanna því það sé samfélags-
lega viðurkennd skoðun að það væri óábyrgt að koma
þekkingunni á framfæri. Bent segir það þó hafa mikla
þýðingu fyrir baráttu hiv-jákvæðra gegn fordómum að
almenningur fái að vita það sama og þeir. Það er, að ef
þeir eru á lyfjameðferð sem gengur vel eru þeir ekki
lengur smitberar. Bent segir að enn í dag sé litið á alla
hiv-jákvæða sem smitbera.
Eldfim yfirlýsing frá Danmörku:
„Hiv-jákvætt fólk á
lyfjum smitar ekki“
Eva Gunnbjörnsdóttir