Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 6
Bæjaríns besta 10 ára Ós/qpn ÍBÍB tUíamingju með 10 dra afnuzCið og farsceCdar íframtíðinni ‘BCómaBúðin ‘Etísa Síafnarstrœti 11 - ísafirði Ú tgerðarfáCagið Ósvör fif SCafnarpötn 41 - ‘BoCunyarvíf^ Suðureyrarfreppur Eyraryötu 1 -Suðureyri ísfany Cif Suðuryötu - isafirði ‘KaupféCay ísfirðinya Slusturveyi 2 - ísafirði BíCasjoppan EjíCið Sindrayötu 6 - ísafirði ‘MjóCCyrsamCay ísfirðinya ‘Wardstúni - ísafirði BíCav. Siyurðar oyStefdns SeCjaCandsveyi - ísafirði f.OS Úest SCafnarstrceti 6 - ísafirði (jamCa óaljirUð JÆðaCstrceti 24 - ísafirði BóCCinn fif. SíðaCstrceti 9 - ísafirði ‘EfnaCauyin SlCbert BoCíyötu 4 - ísafirði CFróócer - sfyncfió itastaður IVCánayötu 1 - ísafirði BtjóCóarðaverfstceði ísafjarðar KjarðarsuncCi 2 - ísafirði 'CugféCayið ‘Emir Ff. IsafjarðarfCuyveCCi G/uggað ígömu!blöð Á SÍÐUNUM hér á eftir munum við grípa fjölda af þeim viðtölum, greinum, fréttum og öðru skemmtilegu efni, sem birst hafa á síðum blaðsins undanfarin s tíu ár. An efa verður margt útundan, enda annað varla hægt, en það er von blaðsins að sem flestir hafi gaman af þessari upprifjun. Frá því fyrsta blaðið kom út 14. nóvember 1984 og fram til 5. nóvember árið á eftir, var blaðið í stærðinni A-5 og megin uppistaða þess auglýsingar, sjónvarpsdagskrá, BB- hleraði, spaug og fleira. Nokkrir skríbentar léðu þó blaðinu krafta sína fyrsta árið og þeirra á meðal var huldu- penninn Kjói. 1984 Áfram með smjörið „Konan mín á Gauk. Einn af þeim, sem geymdir eru í búri og keyptur með því fororði að hann gæti talað. Hingað til hefur hann þó stein haldið kj.. eins og honum væri borgað fyrir það. En viti menn. Þegar ég einn daginn í morgunsárið kom fram í eldhús heyrði ég kvískur í stofunni. Og þar sem ég vissi ekki af gestakomu rölti ég með stírur í augum og kaffibolla í hendi á hljóðið, tilbúinn til á- taka ef á þyrfti að halda. Rimla- hurðin á búrinu var opin og Gauksi hafði tyllt sér á blóma- vasa á borðinu. Þama stóð hann hnarreistur eins og landsfaðir. eigði haus og sperrti stél. „Þegiðu, apinn þinn” sagði hann. „Þú og þínir líkar ættu að halda áfram að sofa í sinn heimska haus. Á sama tíma og skaparinn af mildi sinni og kær- leika gefur okkur góðæri til lands og sjávar, er allt að fara í hundana. Menn semja um kaup og kjör og þegar almúginn vill ekki kaupaafsérhiminhrópandi skattaóréttlæti með því að gefa eftir að kaupinu sínu eins og eitt lambslæri fyllast menn dæmalausri vandlætingu og strika yfir allt klabbið með einu grænu pennatriki." Kjói, 2. tbl. 1984. Húsin, maður, húsin! „Heyrðu lagsi” sagði Gauksi einn morguninn. „Þeir eru að rífa og rífa og ég kann bara asskoti vel við það.” „Rífa hvað?” spurði ég og var nú hættur að láta mér bregða þótt ég væri ávarpaður af þessum annars furðufugli. Ég hafði annars ekki búist við að sjá hann oftar eftir að hann morguninn góða álpaðist út í „vorblíðuna”. En þann vinning fékk ég ekki frekaren íhappdrættinu. „Hús- in, maður, liúsin. Nú eru Þóru- staðir farnir og Elíasar Páls- sonar húsið. Nú verður Isa- fjörður fallegur, eins og dokt- orinn sagði.” „Þú vilt kannske rífa allt heila galleríið á eyrinni?” „Já, burt með öll kofa- skriflin og steinkassa í staðinn, með stórum, já gríðarstórum svölum, sem hægt er að draga út og inn eftir vild.” „Hættu nú” sagði ég. „Hvað heldurðu að...” „Það þýðir nú ekkert fyrir neina nefnd að múðra. Svalir væni minn, gefa húsum svip og lífinu gildi. Ég þekkti mann sem eyddi fríinu sínu úti á svölum með veiðistöng og viskíkassa og hafði kauði aldrei upplifað aðra eins dýrðardaga.” „Ne-i. heyrðu nú.” En Gauksi var nú ekki á þeim tjöðrunum að láta mig komast upp með mótmæli. Hann hristi sinn litla haus og augnaráðið gaf ótvírætt í skyn, að gáfur manns færi ekki eftir heilastærð. ,,Þú hefurekkert vit á svölum” sagði hann. „Þær geta líka verið hættulegar óvitum.” Kjói, 3. tbl. 1984. 1985 Vmðurinn beisiaður „Það er ekkert svo illt að það boði ekki eitlhvað gott. Þegar olíukreppan illræmda skall á 1973 sællra minninga, fóru menn að leggja höfuðið í bleyti og hugsa upp ný ráð og endur- bæta gömul, til að nýta ódýra orku. Flestar þjóðir iðnríkjanna eru að verða búnar að mestu leyti, að fullvirkja fallvötn sín. Til þess að brúa bilið, nota þessar þjóðir geysilegt magn af olíu og kolum til orkufram- leiðslu... Notkun vinda við orkuöflun er ævaforn og á hún langa sögu. Vindmyllur hafa verið notaðar til mölunar á korni, sögunar á viði, til dæl- ingar á vatni fyrir áveitur, til þess að mynda nýtt land og halda því í horfinu. Ekki má gleyma blessuðum seglskip- unum sem eru að konta aftur... Vindrafstöðvar nútímans eru smíðaðar úr níðsterkum efnum Úr gömlum b/öðum Plastpokar Konan mín hefur verið veik undanfarið, svo það hefur komið í minn hlut að sjá um innkaup fyrir heimilið. Eitt lítið dæmi um vangaveltur mínar undanfarið er um allskonar bruðl í okkur án þess að veita því sérstaka athygli. Skoðum síðasta föstudag. Ég fór fyrst um morguninn í HN-Búðina að kaupa fisk og fékk plastpoka undir fiskinn, í leiðinni fór ég í Gamla bakaríið að kaupa brauð og fékk einnig plastpoka undir brauðið. Konan vildi fá eitthvað að lesa, svo í leiðinni keypti ég þrjú kvennablöð í Bókhlöðunni, og fékk plastpoka. Fyrir hádegi, þrír pokar. Síðdegis fór ég svo í helgarinnkaupin. Byrjaði í Vöruvali og keypti talsvert og fékk fjóra plastpoka, frítt sagði kassadaman. I leiðinni kom ég við í apóteki og náði í meðul fyrir konuna, og fékk plastpoka, og hjá Ulfari í Hamraborg til að ná í helgarnammið fyrir börnin og fékk plastpoka. Á þessum eina degi var ég kominn með átta plastpoka. Vitanlega var ég feginn, ég nota þetta fyrir ruslapoka. Við nánari athugun sá ég fyrir mér marg- skyns atvinnurekstur. Hugsiðykkurfleiri manns ívinnu íReykja- vík að búa til þessa poka, KRÍ selur auglýsingar á pokana, við notum þá í innkaupum, og undir rusl, og unglingavinnan smalar þeim saman í fjörum. Ég fór síðan að leika mér á vasareikni- vélina. Bara aðstöðugjaldið hjá framleiðanda af viðskiptum okkar, greiðir Davíð borgarstjóra ein mánaðarlaun. Ég hélt áfram að reikna bruðlið í okkur. Gefum okkur að ég fái fjóra poka á dag, sex daga vikunnar, þ.e. 24 poka á viku eða 1.248 poka á ári, 800 heimili hér á Isafirði nota því 1.000.000.- eina milljón poka á ári, og ef við gefum okkur að hver poki kosti 4,50, þá eyðum við 4.500.000,- fjórum milljónum og fimm hundruð þúsund krónum á ári í plastpoka. Rekstrarkostnaður allra íþróttafélaganna hér í bænum er eitthvað 5-6 milljónir, knattspyrna, skíði og sund. Ég dreg ekki í efa að Heiðar, Garðar og Jonni Magg hafi lagt á vöruna sem nemur andvirði pokans, þannig að frítt fáum við ekki pokann. Eg geri mér alveg grein fyrir því að þessum pokum fylgir margskonar atvinnurekstur. Flutningur áhráefni til landsins, framleiðsla í Reykjavík, atvinnumöguleikar fólks þar, auglýsinga- markaður fyrir stofur og framleiðendur, umboðsmennska á landinu, og auglýsingasala knattspyrnumanna, álagning í verslunum vegna pokanna, not okkar í innkaupum og fyrir rusl, og svo þetta ónefnda „augnayndi” af pokum á víðavangi. Tillaga mín er e.t.v. einföld. íþróttafélögin kaupi 2-5 iðnaðar- saumavélar og strigastranga í kflómetravís og tvinna. Leigi húsnæði og saumi margnota innkaupapoka. Vissulega má einnig selja auglýsingar á þessa poka, að því ónefndu að þá má selja í verslanir fyrir jafnvirði plastpokanna. Ef við viljum losna við plastpokaruslið, þá verðum við að taka höndum saman, og hver er betur til þess búin en fjárvana íþróttafélög. Já, því ekki að færa einhvern atvinnurekstur hingað heim í hérað, og auka fjárstreymi til íþróttafélaganna. Það skyldi þá aldrei vera að ein mánaðarlaun Haraldar bæjar- stjóra yrðu greidd með atvinnu af þessu tagi? Dálkahöfundur 132. tbl. BB. 10. september 1985. og léttum, sem þola mikinn hraðaog vindstyrk... Ég sé fyrir mér, eina slíka stöð upp á Kubbanum og í hlíðinni fyrir ofan Holtahverfi, þar sem snjó- flóðahættan er sem mest, væru komnir vel einangraðir heita- vatnsgeymar sem haganlega væri frá gengið, í stað einhverra moldarbingja, sem er gert ráð fyrir að hrófla þar upp. Þannig yrðu slegnar tvær flugur í einu höggi. Sem sagt, nota raforkuna til að hita upp vatn, sem síðan mætti leiða í húsin, og einnig nota til snjóbræðslu á vetrum, spara allan snjómokstur í Holta- hverfi... Ég vona að ráðamenn þessa bæjarfélags og stjórn- endur Orkubúsins gefi þessu gaum.” Isnob, 4. tbl. 1985. Vörðum leiðina „ísafjörður er nú allmerki- legur bær og á sér sögu. Það finnst mér að minnsta kosti. Hingað koma ntargir ókunnugir og reka hin margvíslegustu erindi og svo fjöldi ferðalanga að skoða bæ og byggð. En það er nú ekki auðratað um bæinn okkar fyrir ókunnuga, öðru nær! Það vantar mikið upp á það, að götumerkingar séu í lagi. Heilu göturnar eru ómerktar og engin spjöld með götuheitum eru áfest á hornhús eða á áberandi stöð- um. Fjöldinn allur af íbúðar- húsum hefur engin númer og eins þar sem atvinnustarfsemi er. Það er auðvitað eigenda að bæta úr því. Ég held að það teljist nú ekki til stórfram- kvæmda að koma reglu á þessa hluti, en engu að síður þarflegt. Það gæti líka verið nauðsyn- legt að láta prenta kort af bænurn eða útbúa spjöld með skipulagi og götuheitum, sem hægt væri að hengja upp. bæði úti og inni á helstu stöðum, svo sem hótelum, flugvelli, skíð- askála og á kaupstaðarmörkum svo eitthvað sé nefnt. Svona lífgar upp á bæjarbraginn og 6 MIÐVIKUDAGUR 16. NOVEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.