Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 15

Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 15
Flóamarkaður í Isafjarðarhöln „Kafarasveit björgunar- sveitarinnar Tinda í Hnífsdal og Hjálparsveitar skáta á ísa- firði stendur nú að hreinsunar- átaki í ísafjarðarhöfn. Fjórir kafarar hófu verkið á laugar- daginn og á aðeins þremur tímum hreinsuðu þeir af litlum bletti um 2-3 tonn af rusli. „Við höfum fundið „bláar” vídeó- spólur, vídeótæki, leirtau og töluvert af golfkúlum. A einum stað fundum við eina tíu matar- diska sem voru óbrotnir og saman í stafla. Þetta hljóta að hafa verið með matarleifum á þegar þeim var hent því þeir voru allir fastir saman,” sagði Kjartan Hauksson, kafari við blaðið.” Úrfrétt í 13. tbl. lili 1990. Einsogaðvera írótu „Þetta var eins og að vera í rólu. Höggið var svo gífurlegt að skipið kastaðist. Manni fannst það fyrst fara upp á við og síðan niður aftur. Báturinn fór alveg á syngjandi kaf. Þeir sem voru bakborðsmegin hent- ust allir yfir á stjórnborða. Ég gleymi þeirri stund aldrei. Ég tók ekki strax við mér en hugsaði að svona hefðu þeir nú allir farið þessir bátar, á land- leið. Báturinn rétti sig aldrei og sökk á tíu mínútum.” Úr viðtali í 23. tbl. 103 1990 við Jón Ragnarsson, vélstjóra, einn sexmenninganna sein björg- uðast af Svani IS. Ódauðlegi hruturinn „Eftir að við fluttum frá Botni byrjaði ég að vinna í slátur- húsinu og vann þar í nokkur ár. Þá aðallega sem skotmaður síðustu árin en áður var ég fláningsmaður. Þar gerðist nú margt skal ég segja þér. Ég man eftir því í gamla sláturhúsinu þegar farið var að nota loft- byssurnar. Þá vorum við með hrúta sem átti að slátra. Ég tek einn þeirra og var búinn að reyna þrisvar sinnum en það rétt hruflaði helvítið. Hrútinn átti Gústi á Stað og hann kemur þarna blóðillur og segir mig andskotans klaufa að geta ekki drepið helvítis hrútinn. Hann rífur af mér byssuna og fór hann með fjögur skot á hrútinn og ennþá stóð hann. Þá brast mér þolinmæðin og fór heim og náði í patrónubyssuna og drap kauða í fyrsta skoti.” Úr viðtali í 44. tbl. BB 1990 við Porleif Guðnason, fyrrum bónda á Norðureyri í Súgandafirði. Lifðieinnúag íeinu „Um 15 ára aldur hafði Spessi kynnst áfenginu og líkaði vel. Vorið sem hann varð 17 ára ákváður nokkrir eldri kunningjar hans að fara í skemmtireisu til Færeyja. Þetta voru þeir Rúnar Þór Pétursson, Árni Guðmundsson og Daddi á Bökkunum, þrenning sem ekki þótti félegur félagsskapur. Þeir buðu Spessa að skella sér með: Ég fór enda þótt ég væri í miðjum lokaprófum í fjórða bekk. Ég lifði fyrir einn dag í einu og hugsaði ekkert um framtíðina. Ferðin var ein sukk- ferð og þegar Þórshafnarbúar höfðu fengið nóg af okkur sendur þeir okkur heim með frímerki á rassinum... Ég próf- aði öll efni. Ég hætti eiginlega að drekka, fannst hassið gefa mér miklu meiri áhrif. Þegar ég lít til baka sé ég að ég var alltaf að leita og vissi ekki hvað ég vildi finna.” Úr viðtali i50. tbl. BB 1990 við Sigurþór Hall- björnsson, Spessa, Ijósmynd- ara. íiitiu samiéiagi „Ég vil nú ekki kalla mig jafningja Ragnars á neinn hátt. En ég lærði ótrúlega mikið af honum og ég naut ákaflega mikils. Hann hefur sjálfsagt gert það líka, ég veit .það ekki. En okkar hjónaband var ákaflega gott. Og þó deildum við oft! Það var náttúrulega dálítið erfitt fyrir mann með skapferli Ragn- ars að búa í svona litlu sam- félagi, því hann fann oft upp á allskonar hiutum, hann var mjög viðkvæmur og lét vaða á súðum dálítið, og það vakti nú oft andúð hjá mörgum.”C/r við- talií52. tbl.BB 1990 viðSigríði J. Ragnar. Hér látum við staðar numið í upprifjun okkar úrgömlum BB blöðum. Stiklað hefur verið á stóru ífyrstu sex árgöngunum. Það sem á eftir kom, er vœnt- anlega flestum ífersku minni. Sigríður Jónsdóttir Ragnar. 130 sinnum á hverju ári sigla skip Eimskips með íslenskar útflutningsafurðir á erlenda markaði. Útflutn- ingsdeild Eimskips veitir alhliða flutningaþjónustu við útflutningsfyrirtæki, annast söfnun og geymslu hér á landi og flutninga frá islandi til endanlegra móttakenda á fjarlægum mörkuðum. EIMSKIP Eimskip - fólk með þekkingu, reynslu, verk- og tæknikunnáttu og víðtæk alþjóðleg tengsl - fagfólk á öllum sviðum flutningaþjónustu. Fólk að störfum - fyrir fólk! MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994 15

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.