Bæjarins besta - 16.11.1994, Blaðsíða 20
og helst vildum við vera
þarna allt árið um kring.“
Hrefnumar
f/ækjast fyrir
mér
Konráð rifjar áfram upp
nokkrar skemmtilegar
minningar úr Þernuvíkinni
og augljóst er að þessi lítt
stundaða búgrein er hon-
um og fjölskyldunum
tveimur mjög hjartfólgin.
Þegar Konráð hefur hellt
meiru kaffi í könnurnar
berst tal okkar að hrefnu-
veiðum hans og þá kemur
öllu drungalegra hljóð í
strokkinn.
„Ég hóf formlega hrefnu-
veiðar 1976 og tók þá
ákvörðun að reisa mér að-
stöðu vestur á Brjánslæk
og hóf fyrirtækjarekstur í
kringum það ásamt
tengdaföðurmínum, mági,
svila og fleirum góðum
mönnum. Fyrirtækið, sem
hét Flóki, var strax í uþp-
hafi í miklum blóma, fram-
tíðin blasti við okkur og
reksturinn vartil fyrirmynd-
ar. Svo voru hrefnuveiðar
bannaðar og ég kenni
stjórnvöldum einum um
það að fyrirtækið fór á
hausinn veturinn 1982. Ég
var stjórnarformaður fyrir-
tækisins og mánuðirnir
sem fyrirtækið var í andar-
slitrunum, eru verstu dagar
sem ég hef uþþlifað. Ég sit
uþþi með sjö milljón króna
skuldahala eftir ævintýrið,
sem ég þarf að borga af.
Tvö hundruð þúsund krónur
þarf ég að borga þennan
daginn, önnur tvö hundruð
hinn daginn og þannig
gengur þetta krónu fyrir
krónu. Svo ekki sé nú
minnst á að það að hafa
tapað öllu því sem maður
átti þarna fyrir vestan. Ég
er líka gífurlega ósáttur við
að persónulegar ábyrgðir
fást ekki dregnarfrá skatti.
Enda ráðlegg ég öllum
þeim sem standa í stofnun
fyrirtækja í dag, að um leið
og bankastofnanir biðja
fólk um eigin ábyrgðir, að
það segi þá bara „takk“ og
„bless“ og gangi með það
sama á dyr.
Meðan á þessu öllu stóð,
fór ég oft inn í Þernuvík til
að reyna að slappa af og
gleyma þessu. En ef ég
var svo ólánsamur að
vakna um nóttina, þá var
mér gjörsamlega ómögu-
legt að sofna aftur. Ég tók
þetta svo rosalega inná
mig og ég hugsaði í sífellu,
„ef maður hefði nú aldrei
skrifað upp á þessa fjárans
pappíra, þá væri staðan
aldeilis önnur.“ En með
tímanum hef ég lært að lifa
með þessu.
Konráði er greinilega
mikið niðri fyrir þegar hann
ræðir hrefnuveiðimálin. Ég
ber undir hann þá „Gróu“-
sögu sem ég heyrði úti í
bæ að hrefnurnar séu enn
í dag að „flækjast" fyrir
bátnum hans og hann
komist stundum ekki hjá
því að taka eins og eitt grey
um þorð eftir að hafa siglt
inníhrefnuhóp. „Þærflækj-
ast ekkert meira fyrir mér
en öðrum, þær eru fyrir
öllum. Mér skilst nú líka að
sjómenn fái hana í net í
kringum um allt land. En
ég neita því ekki að alltaf
þegar ég sé hrefnu, þá
kemur veiðihugur í mann.
Maður reynir bara að
bægja þeirri hugsun frá."
- Nú er hvorki hrefnu-, né
hvalastofninn í útrýmingar-
hættu og íslendingar
veiddu hlutfallslega mjög
lítið af hval fyrir veiðibannið.
Hvað finnst þér um að-
gerðir verndarsamtaka á
borð við Greenpeace, sem
halda því fram að íslend-
ingar vilji alla lifandi hvali
dauða? Eru þær á rökum
reistar miðað við þann litla
„skaóa“ sem skeður var á
hvalveiðiárunum?
„í upphafi tek ég skýrt
fram, aó þó ég hafi marg-
sinnis lent í grænfriðung-
unum, þá er mér alls ekki
illa við þá og þeir hafa
komið mörgum góðum
hlutum í framkvæmd. Mér
finnst að það eigi að tala
við alla menn og fá allar
skoðanir hlutaðeigandi
aðila fram. Ég er vel kunn-
ugur hvalafriðunarsinn-
anum Magnúsi Skarþhéð-
inssyni og hef ákaflega
gaman af honum. Mér
finnst hann að vísu hálf
klikkaður á köflum og hef
sagt honum það. Græn-
friðungar stóðu aldrei í
öllum þessum aðgerðum
til að friða hvali, þeim er
andskotans sama um þá.
Öll starfsemi þeirra er
framkvæmd í hagnaðar-
skyni. Nú erfólkhinsvegar
að vakna til lífsins og er
hætt að hlusta á þá. Það
hefur líka komið á daginn
að stjórnvöld þessara sam-
taka lifa í veilystingum og
svalli. Enda hafa grænfrið-
ungar séð að sér og hafa
nú snúið spjótum sínum að
eiturefnum. Þaðergottmál
- ég stend heilshugar með
þeim!
Hvað hvalamálin öll varð-
ar, finnst mér að ferða-
þjónustan á íslandi eigi að
íhuga betur þá möguleika
sem felast í hvölunum. Að
bjóða innlendum sem er-
lendum ferðamönnum upp
á hvalaskoðunarferðir, yrði
án efa feikivinsælt og allir
aðilar myndu hagnast á því.
Hvort sem hvalveiðar yrðu
leyfðar eða bannaðar á
komandi árum, væri hægt
að friða hvalina undan
austurströnd landsins,
þaðan sem ferðaþjónustan
gæti gert út skoðunarferðir
sínar.“
Konráð segir hvalveiði-
bannið hafa verið ein
stærstu og hrikalegustu
mistök sem Alþingi ís-
lendinga hafi gert. Fyrir ís-
lands hönd, á Konráð auk
fleiri fulltrúa, sæti í erlend-
um ráðum og nefndum
sem snúa að hvalveiði-
málum og er NAMCO
þeirra merkilegust. „Við
sjómenn erum þakklátir
fyrir að fá að fylgjast beint
með því sem skrafað er á
þessum fundum. Þessu
fylgja heilmikil ferðalög um
heiminn, enda eru NAMCO
fundirnir haldnir tvisvar á
ári. En ég er algjörlega á
móti því að íslendingar
gangi á ný í Alþjóða hval-
veiðiráðið, stefna ráðsins
hefur ekkert breyst frá því
íslendingar sögðu sig úr því
og við værum að ganga i
sömu gildruna aftur með
því að gerast aðili að því á
ný.“
Ljúfsárar
minningar
Þegar Konráð Eggerts-
son lítur um öxl og rifjar
upp eftirminnilega atburði,
rennur hver gamansagan
á eftir annari upp úr honum,
t.d. um það þegar menn
helltu úrfullri vatnsfötu ofan
af stýrisþakinu yfir þann á-
hafnarmeðlim, sem sat á
„fötunni" aftur í skut að gera
þarfir sínar. Að sjálfsögðu
leituðu fórnarlömbin
hefnda og beittu ýmsum
brögðum, sumir laxeruðu
kakóið fyrir hvorum öðrum,
aðrir fóru eínfaldlega í fýlu
og læstu áhöfnina úti á
dekki og þannig telur Kon-
ráð upp lengi áfram. Hann
rekur einnig ófarir sínar,
eins og þegar hann var
staðinn að ólöglegum veið-
um og var færður yfir í varð-
skip og fluttur í land fyrir að
hafa hunsað hróp og köll
varðskipsmanna til að fél-
agar sínir í grendinni í
samskonar vafasömum
erindagjörðum kæmust
undan. „Ég hef þrisvarverið
hætt kominn á sjónum, í öll
skiptin í miklu illviðri. Fyrstu
tvö skiptin gerðust í Djúp-
inu, hið fyrra við sjóslysin
árið 1982. Við Ólafur, sem
var með mér á bátnum
mínum, Halldóri gamla
Sigurðssyni, misstum hann
alveg á hliðina, stýrishúsið
lá í sjávarfletinum og ég fæ
ekki skilið enn í dag hvernig
skipið reisti sig við. Ég
keyrði á fullri á ferð á borðið
sem hann lá á og vonaði
bara það besta. Útlitið var
svo svart að ég sá okkur
engrar undankomu auðið.
Ég efaðist ekki um að þetta
væri mitt síðasta og var
búinn að sætta mig við
dauðann. Eftir á hyggja
held ég að kannski hafi
einhver bára hreinlega hent
skiþinu á réttan kjöl. Ég
bara geri mér enga grein
fyrir því. Allavega var ég
skyndilega kominn á eðli-
lega siglingu nokkrum sek-
úndum síðar og við Óli
hétum á nærstadda kirkju í
Djúpinu ef við kæmumst
heilir og hólpnir ( land og
vorum fljótir að borga það!
Annað skiþtið var ég á
landleið inn Djúpið að degi
til. Loftnetió slitnaði og
vafðist utan um radarinn
þannig hvorki hann né
dýþtarmælirinn eða tal-
stöðvarnar virkaði. Veðrið
var snælduvitlaust og velt-
ingurinn og lætin eftir því.
Einhvern veginn kom ég
samt sjálfum mér og bátn-
um til lands.
Þriðja atvikið átti sér stað
á hrefnuveiðum í október
1985, í Norðurfirði áStrönd-
um. Tryggvi mágur minn
var þá samferða mér á
Gissuri og við lágum við
nýgerðan stálkant á bryggj-
unni. Bátarnir voru lunn-
ingafullir og við komumst
engan veginn frá hafnar-
kantinum. Ágjöfin var svo
mikil að ég varð að setjast
á gólfið í stýrishúsinu til að
klæða mig í sjógallann.
Okkur var Ijóst að ef við
kæmumst ekki frá bryggj-
unni, myndu bátarnir
brotna í spón í barningnum.
Vélarnar voru því settar í
botn, stefnan tekin út garð-
inn og upþ í öldurnar. Ég
lokaði augunum og beið
eftir högginu. En fyrir ein-
hvers konar kraftaverk
fórum við þetta slysalaust.
Þó var ekki allt búið enn,
því stuttu síðar fór allt raf-
magn í landi svo að við
höfðum engar viðmiðanir
en þá vildi svo skemmti-
legatil að við höfðum merkt
leiðina í firðinum inn á ný-
fengna þlottera í stað-
setningartækjunum. Okkur
var ætlað að lifa þetta af.
Úti fyrir Krossnesi fauk svo
hlífin ofan af byssunni
fremst á skipinu og ég þurfti
að lensa í smá stund til að
strákarnir? gætu lagað
hlífina. En það var and-
skotanum erfiðara að snúa
aftur upp í vindinn og það
gekk ekki fyrr en í þriðju
tilraun og þá hafði okkur
rekið heillangt af leið og
vorumnæstum komnirupþ
í fjöru og báturinn ætlaði
um koll. Síðan lægði morg-
uninn eftir og við tókum
stefnuna heim á leið. Svo
næsta kvöld, þegar við
vorum að fara fyrir Horn-
bjarg, var komið band-
brjálað veður aftur, 12 til
14 vindstig. Við urðum að
snúa við og leituðum vars í
Furufirði. Hvassviðrið var
þvílíkt að maður gat ekki
andað ef maður sneri sér
upp í vindinn. Til að bæta
gráu ofan á svart, varð
Gissur fyrir vélarbilun svo
að hann rak stjórnlaust um
langan tíma. En kunnátta
manna og þrautseigja
hafði mikið að segja og ég
hef aldrei andað léttar á
ævinni en þegar ég kom í
land í Furufirði um nóttina.“
- Að lokum, heldurðu að
þú haldir lengi áfram á
sjónum?
„Ef ég hef ekki vit á að
hætta núna fljótlega, þá á
ég allmörg ár eftir. Annars
veit maður aldrei hvenær
maður vaknar dauður!
Hugurinnstendur til Þernu-
víkur þessa dagana og ég
hef miklar framtíðarhug-
myndir um þann sælureit,"
sagði hrefnuveiðimaðurinn
Konráð G. Eggertsson.
-hþ.
Konráð á skoskri grundu ásamt féiögum sínum,
þeim Reyni Adóifssyni, Konráði Jakobssyni og
Gunnari Péturssyni.
20 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994