Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.11.1994, Blaðsíða 22

Bæjarins besta - 16.11.1994, Blaðsíða 22
Páii Halldórsson, yfir- flugstjóri og Óttar Sveinsson, höfundur bókarinnar. Áhrifarfkar frásagnir þyriufiug- manna og iækna hjá Land- he/gis- gæsiunni af atburð- um þar sem iíf iá vió BÓKAKLÚBBUR Amarog Örlygs mun innan skamms gefa út bók sem skráð er af Óttari Sveinssyni, blaðamanni og hlotiðhefurnafnið„Útkall Alfa TF-SIF. í bókinn er að finna áhrifaríkar og spennandi frá- sagnir áhafnar björgunarþyrl- unnar TF-SIF af atburðum þar sem líf lá við. Það er skemmst frá því að segja að alls hefur þessu ágæta björgunarliði tekist að bjarga um 140 manns úr bráðum lífsháska við tvísýnar aðstæður og það á þyrlu með mjög takmarkað afl. Þá segir það fólk sem bjargað var úr bráðri lífshættu einnig sína sögu auk þess sem í bókinni er að finna um sextíu einstæðar ljós- myndir af þessum björgunar- afrekum sem fæstar hafa áður komið fyrir almenningssjónir. „Þetta eru frásagnir þyrlu- flugmanna og lækna hjá Land- helgisgæslunni af sögulegustu flugferðunum sem þyrlan TF- SIF hefur farið á níu ára tíma- bili. Þessarfrásagnirhafaaldrei komið fyrir sjónir almennings áður. Þarna er skyggnst inn í hugarheim áhafnar þyrlunnar þegar líf liggja við, vonum manna, ótta, vonbrigðum og jafnvel stórkostlegri gleði. Frá- sagnirnar komu sjálfum mér á óvart þrátt fyrir að ég hefði haft mikil samskipti við þessa menn í nokkur ár í mínu starfi,” sagði Óttar Sveinsson, höfundur bókarinnar í samtali við BB. I bókinni er meðal annars sagt frá björgun samtals 23 sjó- manna, björgun Flugleiðaflug- manns sem hafði verið 70 mínútur í sjónum í Skerjafirði, þar sem vargfugl var farinn að ráðast á hann og óvæntum slagsmálum sem upphófust þegar TF-SIF kom á vettvang. Einnig greina flugmenn frá því þegar þeir neyddust til að bakka tvo kílómetra út úr þröngu gljúfri í Kerl- ingarfjöllum, gífurlegu kapphlaupi þeirra og björg- unarsveitarmanna við myrkrið á Öræfajökli og sérstökum ballerínudansi læknis á slysadeild Borgar- spítalans sem þarf skyndi- lega að yfirgefa félaga sína á árshátíð og fara í mikla svaðilför með þyrlunni á Langjökul. BB birtir hér kafla úr bókinni þar sem sagt er frá vægast sagt hrikalegri björgun þyrlumanna við Hólahóla á Snæfellsnesi. Þar eru Bergþór Ingibergs- son, stýrimaður á Barða- num, Páll Halldórsson, flugstjóri sem átti samstarf við vin sinn á himnum og Sigurður Steinar Ketilsson. skipherra og spilmaður í aðalhlutverkum. Flugstjóri í samstarfi við vin sinn á himnum „Um sexleytið að morgni laugardagsins fjórtánda mars 1987 voru flestir í níu manna áhöfn netabátsins Barðans GK 475 nývaknaðir að borða morg- unmat. Menn voru að búa sig undir að fara að draga netin um borð. Búið var að láta reka skammt út af vestanverðu Snæ- fellsnesi um nóttina. Myrkur var úti, hráslagalegt veður og gekk á með snjóéljum. Dæmigerður suðvestan útsynningur með sjö vindstigum. Bergþór Ingibergsson stýri- maður var á leið upp í brú því ætlunin var að gera við tal- stöðvarloftnet áður en byrjað yrði að draga. Hann var að ganga upp stiga þegar hann fann skyndilega dynja þung högg á bátnum. Bergþóri datt fyrst í hug að skip eða bátur hefði siglt á Barðann. Þegarhann kom upp í brú sá hann ekki aðstæður í kringum bátinn því úti var kol- niðamyrkur. Hann gerði sér þó grein fyrir því að báturinn var að taka niðri. Reynt var að bakka Barðanum en það dugði lítið - báturinn var farinn að lemja og berja í klettum. Nú varð atburðarás hröð og óhugn- arlegar staðreyndir runnu fljótt upp fyrir skipverjunum níu. Bergþór heyrði skipstjórann kalla í talstöðina að báturinn væri strandaður.” Páll Halldórsson yfirflug- stjóri átti vaktina þennan dag : „Klukkuna vantaði fimmtán mínútur í sjö að morgni þegar neyðarútkall barst. Eg vaknaði ekkert mjög vel. Eg fór fram úr 19 7 4 19 9 4 A m m YVYTWGU ÁR f FLUTNiNGUM OG MÓNUSTU AÐALSTRÆTI 24 400 ÍSAFJÖRÐUR SÍMI 94 4555 FAX 94-4553 U M B O D FYRIB: EIMSKIP HF. • JÖKLAR H F . • VÖRUDREIFING SFCOCA COLA • G T K R A N A R S F TRYGGVI TRYGGVASON & CO 22 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.