Bæjarins besta


Bæjarins besta - 16.11.1994, Page 24

Bæjarins besta - 16.11.1994, Page 24
Bæjarins besta 10 ára Litiðtilbaka Sigurjón J. Sigurðs- son, ritstjóri BB, ásamt Guðmundi heitnum Marseiiíussyni við fyrsta eintakið sem rann út úr fyrstu prent- véiinni í nóvember 1984. ÞAÐ var sumarið 1984 sem undirritaður kom að tnáli við Halldór Sveinbjömsson, þáverandi prentara hjá ísrúnu hf., og orðaði það við hann hvort við gætum ekki útvegað okkur auka- skilding með því að gefa út lítið auglýsingablað. Þá hafði um tíma komið út lítið blað í bænum sem hét Dagskráin og innihélt auglýsingar og sjónvarpsdagskrá. Halldór tók vel í hugmyndina og saman fórum við til Guðmundar heitins Marsellíussonar og föluðumst eftir gamalli offsetfjölritunarvél sem stóð ónotuð á loftinu í húsinu við Suðurtanga 2. Jú, vélina máttum við fá ef við gætum gert við hana. Við tók annasamur tími um kvöld og nætur og að endanum fór skrjóðurinn í gang og var þá hafist handa við að búa til blað og fyrsta tölublaðið fór á göturnar 14. nóvember 1984, fyrir tíu árum. ..I dag hefur þú lesandi góður fyrsta eintakið af Bæjarins besta í höndunum. Það hefur lengi blundað í undirrituðum að gefa út eitthvað blað í líkingu við þetta en aldrei orðið að veruleika fyrr en nú. Undirbúningurinn að þessu blaði hefur verið stuttur, erfiður en skemmtilegur, þrátt fyrir að ýmis ljón hafi orðið á veginum. Tilgangur Bæjarins besta er eins og nafnið bendir til að koma á framfæri því sem um er að vera í bæjarfélagi okkar í hvert skipti. Ætlun mín er að reyna að hafa blað þetta sem fjölbreyttast og er það opið öllum þeim sem vilja leggja því lið með efni svo og eru allar ábendingar um efnisval vel þegnar. Með von um góðar viðtökur óska ég ykkur alls hins besta. Sigurjón.” Með þessum orðum hófst saga Bæjarins besta eða BB eins og það er jafnan nefnt í dag. Fyrstu eintökin voru vélrituð og allt stærra letur límt inn með þrykkistöfum. Þegar umbroti var lokið var blaðið síðan sent suður til Reykjavíkur þar sem það var filmuunnið og sett á prentplötur. Fyrsta eintakið rann síðan út úr offsetprentvélinni snemma morguns 14. nóvember 1984. Það var ósköp smátt, átta síður í A-5 broti eða rúmlega það og eingöngu hugsað sem auglýsingablað. Engar ljósmyndir prýddu blaðið fyrr en í febrúar næsta ár. Þessa fyrstu mánuði var blaðið unnið í aukavinnu á kvöldin og urn helgar. Eftir að „pikkinu” á ritvélinni lauk var farið að setja á tölvu sem Finnbogi Hermannsson, þáverandi ritstjóri Vestfirðings og núverandi forstöðumaður Svæðisútvarps Vestfjarða, veitti aðgang að og aðstoðaði við notkun á í byrjun. Fljótlega fór BB að sýna mikla vaxtar- tilhneygingu og um vorið var ljóst að þannig gengju hlutirnir ekki lengur. Halldór sagði upp starfi sínu í Isrúnu og hóf störf við BB að fullu. Það var greinilegt að uppátækið var farið að vinda heldur betur upp á sig og því var tekin ákvörðun um að stofna fyrirtæki uni reksturinn. Ur varð að H-Prent var stofnað l. júní 1985. Fjárfest var í lítilli prentvél, tækjum til filmu- og plötuvinnslu, offsetljós- myndavél og gamalli setningartölvu auk þess sent ráðinn var starfsmaður í fullt starf. Blaðið breytti um útlit og fékk rauða litinn sem síðan hefurfylgt því í BB-lógóinu. A eins árs afmælinu var blaðið stækkað úr átta síðum í A-5 broti í fjögurra dálka blað tólf síðum og tekin ákvörðun um að gera það að fréttablaði fyrir Isafjörð og nágrenni í stað þess að leggja höfuðáherslu á auglýsingarnar. Ráðinn var fyrsti blaðamaðurinn, Snorri Gríms- son, og gegndi hann því starfi í rétt ár. A fyrstu fimm árunum tók blaðið miklum breytingum, bæði hvað varðar útlit, innihald og stærð. Snemnta árs 1987 var blaðið komið í 16 síður og ári síðar í 20 síður að meðaltali. I júní 1989 var brot blaðsinsenn stækkað, nú í fimm dálka blað og þrátt fyrir yfirlýsingar undirritaðs í fimm ára afmælisblaðinu, um að í stærra brot færi það ekki, var það stækkað í núverandi stærð 10. apríl 1991. Það var ekki heilagt frekar en aðrar þær breytingar sem hafa orðið á blaðinu, enda til batnaðar að mati flestra. Miklar tæknibyltingar hafa orðið á vinnslu blaðsins frá því að fyrstu vélrituðu eintökin litu dagsins Ijós, bæði hvað varðar setningu, umbrot, filmuvinnslu, litprentun og fleira og virðist sem tækninni haldist engin bönd og er því ómögulegt að segja til um hvernig blaðið kemur til með að líta út í framtíðinni. Fram til haustsins 1992 var blaðinu dreift ókeypis. Þá var svo komið að auglýsingatekjurnar stóðu ekki undir rekstrinum og var því ekki nema um tvennt að ræða, að hætta útgáfu eða að selja afurðina. Síðari kosturinn var valinn og er það því lesendum blaðsins að þakka að blaðið er enn við lýði. Fjölmörg héraðs- fréttablöð hafa lognast út af á undanförnum misserum, enda hefur hvert áfallið á hendur öðru helst yfir blaðaútgefendur í landinu, þó sýnu verst hafi verið sú ákvörðun stjórnvalda að setja 14% virðisaukaskatt á alla blaða- og tímaritaútgáfu. Sú ákvörðun stjórnvalda varðmörgum útgefandanum að falli. BB er þó enn við lýði og er það von útgefenda að svo verði einnig um ókornin ár, en líkt og hingað til stendur og fellur útgáfan með lesendum, þeim sem kaupa blaðið. Héraðsfréttablað eins og BB þjónar ekki síðra hlutverki en dagblað og öflug héraðsfréttablöð eru lesin spjaldanna á milli. Lestur á dagblöðum er hins vegar æði misjafn og því erum við útgefendur héraðsfréttablaða vissir í okkar sök, þegar við segjum að héraðsfréttablöðin séu besti auglýsingamiðillinn á hverju svæði fyrir sig. En héraðsfréttablöðin eru ekki bara auglýsingablöð, a.m.k. ekki nú til dags. Þau færa fólki fréttir af atburðum líðandi stundar sent og atburðum sem „ stóru blöðin” segja aldrei frá. Það er tilgangur þeirra og þau hafa sitt lifibrauð af því. Regluleg blaðaútgáfa er spurning um úthald, það er meira en að segja það að gefa út blað, þó ekki sé nema 12 síðna vikublað eins og BB. Það vita þeir best sent hafa komið nálægt blaðaútgáfu. Mörgum manninum (og konunni) sem undirritaður hefur átt samtal við, hefur þótt lítið til vinnunar við blaðið koma. þau hafa talið þetta leik einan, leik til að verða sér út um skjótfenginn gróða. Því fer fjarri. Vinnustundirnar eru margar og afraksturinn minnkar með hverju árinu sem st'ður. Þrátt fyrir það erum við sem störfum á blaðinu í góðu formi og lítum björtum augum til framtíðarinnar. Við viljurn vinna að því að gera blaðið enn betra, enn fallegra útlits og síðast en ekki síst viljum við hafa sem best tengsl við lesendurna. Það er ekki bara okkar hagur sem starfa á blaðinu, heldur allra á útgáfusvæði blaðsins. Frá því fyrsti blaðamaðurinn, Snorri Grímsson lét af störfum hafa fjölmargir komið nálægt skrifunum. Að undirrituðum frá- töldum má nefna þau Hlyn Þór Magnússon, núverandi ritstjóra Vestfirska fréttablaðsins, Helga J. Hauksson, kennara, Jakob Fal Garðarsson, blaðamann, Vigdísi Jakobsdóttur, leikstjóra, Vilborgu Davíðsdóttur, blaðamann, dagskrárgerðarmann og rithöfund, Theodór Norðkvist jr„ Róbert Schmidt, Gísla Hjartarson, rit- stjóra Skutuls, Margréti Björk Arnardóttur. Hermann Snorrason og Aðalstein Leifsson, sem starfaði við blaðið um tíma í sumar. Auk þeirra hafa fjölinargir pennar skrifað fasta pistla í blaðið. Tíu ár geta verið stuttur tími og langur eftir því hver við- miðunin er. En á tíu ára afmæli Bæjarins besta er aðstandendum þess fyrst og síðast þakklæti í huga, þakklæti til allra þeirra er lagt hafa blaðinu lið, starfsfólks H-Prents, blaðamanna, auglýsenda, skriffinna, en mest og best til ykkar, lesendur góðir. An ykkar væri ekkert afmæli. Góðar stundir. Sigurjón J. Sigurðsson © tUTO - IRAWL W, INCH SYSTEM 5 Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með skipið. Drif og stjórnbúnaður á vindum erfrá RAFBOÐA - RAFUR W*\ fc—-- ■■■■■■■■■■■■■■^ RAFBOÐI - RAFUR 24 MIÐVIKUDAGUR 16. NOVEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.