Bæjarins besta - 16.11.1994, Qupperneq 30
Ósfium ‘B‘B ti(íwmingju
með 10 ára afnuzíið
0£ farsczLdar íframtíðinni
ÍSAFJARÐARKAUPSTAÐUR
Hafnarstræti 1 - ísafirði
ÓsÍQtm ‘B‘B tilfiaminfiju
með 10 ára afnuzCið
ofifarsczfdar íframtíðinni
HRÖNN HF
Hafnarhúsinu ísafirói
ÓsCfim ‘B‘B tiCCuiminfiju
með 10 ára afmczCið
OfifarsczCdar íframtíðinni
FLATEYRARHREPPUR
Ránargötu 11 - Flateyri
ÓsCum ‘B‘B tUfaminfiju
með 10 ára afmczCið
ofifarsczCdar íframtíðinni
HAMRABORG HF
Hafnarstræti 7 - ísafirði
Ósfum ‘B‘B tií faminfiju
með 10 ára afmczCið
ofifarsceCdar íframtíðinni
ÉG VAR búin að vera blaða-
maður á Þjóðviljanum sáluga í
nokkur ár þegar ég fluttist vestur
Vilborg Davíósdóttir.
á ísafjörð og hóf störf hjá
Bæjarins besta haustið 1988. I
fyrstunni fann ég fyrir dálítilli
tortryggni, það verður víst að
segjast eins og er. „Að sunnan?
Og var á kommasneplinum?”
sögðu sumir og settu í brýrnar.
En þegar það fréttist að mann-
eskjan væri reyndar Vest-
firðingur í báðar ættir, fædd og
uppalin á Þingeyri og mennta-
skólagengin á Isafirði, breyttist
viðhorfið fljótlega til hins betra.
(Hún hlaut þá að hafa þennan
mikilvæga skilning á hverju
þjóðin lifir og hverjir sjá um að
halda uppi þessu liði fyrir
sunnan, ekki satt?!)
Reynsla af blaðamannastarfi
syðra nýttist auðvitað vel en ég
komst fljótlega að því að á
héraðsfréttablaði er starfið enn
fjölbreyttaraog víðtækara. I því
fólst ekki aðeins að skrifa fréttir
og viðtöl heldur einnig að próf-
arkalesa megnið af textanum,
fara yfir innsent efni og líka
auglýsingarnar, meta hvað ætti
erindi á forsíðu og hvað á inn-
síður og gera tillögur að upp-
röðun efnisins. A héraðsfrétta-
blaði er maður einnig í mun
nánara sambandi við lesendur
en ella. Nú auk þess „naut”
maður þess að horfa á og heyra
prentvélarnar vinna með tiI
heyrandi hávaða þannig að
ferlið blasti við frá upphafi til
enda og það er vissulega lær-
dómsríkt.
Bæjarins besta var tólf og
allt upp í þrjátíu og tvær síður
þetta eina og hálfa ár sem ég
var blaðamaður þess, reyndar í
minna broti en nú, og ekki var
hörgull á fréttunum til að fylla
þetta pláss. Þá sem nú hlaut
Isafjörður meira rými á síð-
unum en aðrir þéttbýlisstaðir
enda „höfuðstaðurinn” og
meira um að vera þar í atvinnu-
og menningarlífinu. Og svo
þurfti maður auðvitað að kljást
við það eilífa vandamál að finna
heimamenn á hverjum stað með
fréttanef sem gætu séð fréttirnar
í kringum sig og komið þeim
áleiðis.
Til er sígild smásaga af
„okkar manni á staðnum” sem
ekki er úr vegi að skjóta hér
með: Ritstjóranum fyrir sunnan
var farið að leiðast að heyra
ekkert frá fréttaritara sínum í
smábæ á Iandsbyggðinni og
hringdi til að spyrja tíðinda:
..Hvernig er það, gerist bara
aldrei neitt hjá ykkur?” spyr
hann ögn pirraður. „Geturðu
ekki talað við einhverja?”
Fréttaritarinn svaraði snúðugt
og snögguruppálagið: ,,l Ivern-
ig í ósköpunum á ég að geta
það? Þaðerualliríbænum famir
niðrí fjöru að horfa á strandið!”
Ur þessum málum rættist
reyndar nokkuð eftir að við
tókum upp aflafréttir, vikulega
heilsíðu, því með tonnatölunum
og veðurfregnunum flutu oftar
en ekki með ýrnsar upplýsingar
um aðra hluti sem einnig áttu
erindi í blað allra Vestfirðinga.
Ég held ég skrökvi því ekki
að ég hafi verið fyrsti blaða-
maðurinn á BB sem tók upp
þann sið að fylgjast grannt með
bæjarstjórnarfundunum á Isa-
firði og sat þá allnokkra ef
eitthverttilefni ádagskránni var
til. (Og bæjarritarinn gaf í skyn
að umræður gætu orðið líf-
legar.)
Reyndar voru ekki allir jafn
hrifnir af þessu framtaki mínu
og ég minnist þess að eitt sinn
kom að máli við mig ónefndur
bæjarfulltrúi þungur á brún og
benti mér á ákveðið óhagræði
sem af því hlytist að hafa mig á
áhorfendabekknum. Ég hváði
hissa. Vildu menn ekki að
bæjarbúar vissu af því hvað
þeirra kjörnu fulltrúar væru að
fást við á fundum sem stóðu
oftar en ekki fram yfir miðnætti
ákvöldin? Þeir voru nú oftaren
ekki að slá á þráðinn niður á
blað og benda mér á ýmis mál
sem þyrftu umfjöllunar. „Jú.
það er ágætt að þú skrifir um
bæjarpólitíkina,” sagði fulltrú-
inn. ..Eti sjáðu til. blessaður
skattstjórinn var nú bókana-
glaður maður fyrir en eftir að
þú byrjaðir að koma hingað á
fundina þá eru ræðurnar hans
orðnar óheyrilega langar!”
Þaðgilti reyndarekki um alla
að þeim þætti fengur að því að
upplýsingar um störf þeirra
kæmust áleiðis til lesenda BB.
Ég má til með að nota tækifærið
og senda pillu á lögregluna á
Isafirði, þót't þar séu nú aðrir
við stjórnvölinn en þessi ár ntín
vestra. Hefðbundið löggutékk
á mánudegi gat tekið allnokkur
símtöl við Jónas yfirlögreglu-
þjón. „Ekkert að gerast, engar
fréttir,” var hefðbundið svar
eftir fyrsta símtal. Þegar leið á
mánudaginn og nokkrir gestir
höfðu átt leið í prentsmiðjuna í
Neðsta var mér oftast orðið
kunnugt um eitt eða tvö innbrot
og nokkur umferðaróhöpp
þannig að af og til varð að
hringja í lögregluna til að fá
staðfestingu. „Heyrðu, jú nú
man ég eftir...” kom þá svarið
og „Veistu, ég var bara búinn
að steingleyma því...” og oftar
en ekki: „Finnst þér það nú vera
frétt?!” Þannig gat það gengið í
tvo, þrjá daga, að gestir og
gangandi fréttu eitt og annað
og Jónas staðfesti jafnóðum.
En svo löguðust samskiptin
þegar á leið og einkanlega eftir
að ég og Halldór Sveinbjörns-
son fengum að fylgjast með
störfum lögreglunnareina laug-
ardagsnótt. Tilgangurinn var
reyndar sá að sjá með eigin
augum margumrætt unglinga-
vandamál ágötum miðbæjarins
um helgar en þessa sömu nótt
varð hörmulegt slys á Oshlíð
sem margir muna eflaust eftir
ennþá. Aurskriða féll yfir bíl
sem í voru nokkur ungmenni
og eitt þeirra slasaðist illa. 1
kjölfar þessa slyss tókst yfir-
lögregluþjóni og slökkviliðs-
stjóra að ta keyptan björgunar-
bíl með útbúnaði til að opna
skemmda bíla og ég er sann-
færð um að myndbirtingar BB
áttu sinn þátt í að þessi nauðsyn-
legi búnaður fékkst.
Margir gagnrýna þá fjölmiðla
sem ná til allra landsmannafyrir
að sinna landsbyggðinni ekki
nægjanlega og svo verður
eflaust um ókomna tíð. Hversu
vel sem „stóru” blöðin reyna,
geta þau aldrei komið í stað
héraðsfréttablaða á borð við
Bæjarins besta. Tíu ár eru ef til
vill ekki langur tími í blaðaút-
gáfu en síðustu ár hafa reynst
mörgum útgefendum erfið og
nokkur bæjarblöð hafa orðið að
leggja upp laupana vegna
minnkandi auglýsingatekna og
skattlagningar sem þau hafa
ekki ráðið við. Ég óska aðstand-
endum Bæjarins besta innilega
til hamingju með áratugar af-
mælið og blaðinu langra líf-
daga.
-Vilborg Davíðsdóttir,
dagskrágerðar- og
blaðamaður.
Þú átt möguteika á
Londonferð efþú
ert áskrifandi
aðBB
Áskriftarsímar
4560 og4570
30 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994