Bæjarins besta - 01.11.1995, Side 3
Nýrra leiða leitaó við mat á snjóflóóahættu
Ekki rétt að miða við snjó-
flóðasögu hvers staðar
STARFSHÓPUR stærð-
fræðinga og verkfræðinga við
Háskóla íslands hefur frá því í
júní síðastliðnum unnið að
sérstöku verkefni við að leggja
mat á meðaltíðni snjóflóða og
að þróun reikningsaðferða til
að geta sagt til um skriðlengd
flóða. Leggja á kapp á að hraða
þeim hluta vinnunnar sem snýr
að lengd snjóflóða svo unnt
verði að nýta niðurstöðurnar
strax í vetur á snjóflóða-
svæðum, en tilgangurinn er að
finna leiðir til að bæta snjó-
flóðaspár hérlendis.
Kveikjan að þessu starfi, sem
unnið er að beiðni Veðurstofu
íslands og Almannavama rík-
isins, var sú að rnenn áttuðu
sig á því í kjölfar Súðavíkur-
slyssins, að það væri ekki rétt
að miða eingöngu við snjó-
flóðasögu hvers staðar fyrir sig,
heldur þyrftu menn að geta fært
upplýsingar um flóð á milli
byggðarlaga. í kjölfar snjó-
flóðsins á Flateyri í síðustu
viku, ákvað starfshópurinn að
leggja kapp á að koma stigaút-
reikningum í það horf að hægt
yrði að reikna út nýjar hættu-
línur fyrir einstök byggðarlög,
þannig að unnt yrði að nýta
niðurstöðurnar strax á þessum
vetri.
Annar hluti verkefnis starfs-
hópsins er að reikna út endur-
komutíma snjóflóða þ.e.a.s.
þann tíma sem líður á milli
flóða, en lengra mun vera í
land þar til þær niðurstöður
liggi fyrir.
Stórt srtjóf/óð féll á mi/li Norðureyrar og Selárdals í Súgandafirði
SNJÓFLÓÐ, féll úr hlíðinni
milli Norðureyrar og Selárdals
í Súgandafirði á ellefta tíman-
um á fimmtudagsmorgun í
síðustu viku. Snjóflóðið mynd-
aði flóðbylgju sem talin er hafa
verið 6-7 metra há, og olli hún
talsverðum skemmdum á bát-
um og hafnargarðinum á Suð-
ureyri auk þess sem hún drap
fjölda fjár sem höfðu leitað
skjóls fyrir óveðrinu í gömlu
sundlauginni, sem stendur
neðan við þjóðveginn fyrir
miðjum firðinum.
Flóðbylgjan fór þvert yfir
fjörðinn og upp á land þar sem
hún flæddi inn í gömlu sund-
laug þeirra Súgfirðinga og
þaðan upp á veg sem er í um 15
metra hæð frá sjávarborði. Inni
í sundlauginni var tjöldi fjár
sem leitað hafði skjóls fyrir
óveðrinu, og drapst það allt.
Fannst féð, sem var í eigu þeirra
bænda að Botni í Súgandafirði,
á víð og dreif um fjöruna. Flóð-
aldan hélt síðan áfram út með
firðinum og stöðvaðist ekki
fyrr en á hafnargarðinum á
Suðureyri, þar sem hún olli
talsverðum skemmdum. Tveir
bátar slitnuðu frá bryggju og
sökk annar þeirra í höfninni.
Hann náðist á þurrt eftir há-
degi sama dag og er mikið
skemmdur. Engin slasaðist í
þessum hamförum.
Flóðbylgjan skall einnig á
18 tonna jarðýtu sem stóð við
hús Orkubús Vestfjarða og
færði hana um 10-15 metra. Þá
fletti flóðbylgjan klæðingu af
hluta þjóðvegarins til Suður-
eyrar. I kjölfar þessarar ham-
fara ákvað almannavarnanefnd
Suðureyrar að rýma tíu íbúðir
sem stóðu næst sjónum, auk
Flóðbylgjan sem snjóflóðió olli fórþvertyfir fjörðinn, og skaiiá hafnarsvæóinu
sem og á stórum hiuta vegarins frá Suðureyri og inn eftirmiðjum Súgandafirði.
þess sem öll umferð unt neðstu að falla úr Norðureyrargili sem snjóflóðið féll og sást ekki yfir
götur kauptúnsins var bönnuð síðan myndaði flóðbylgju sem fjörðinn og var því ekki hægt
og börnunt var bannað að vera færi beint á kauptúnið. Sá ótti að staðsetja snjóflóðið ná-
úti fyrir. Var það gert af ótta varð ekki að veruleika. Von- kvæmlega.
við annað snjóflóð, sem kynni skuveður vará Suðureyri þegar
Kr. 790,- M2 Siðustu forvöð
ný veggfóðursbók
Ægifögur -
Stærð 120x200
Stærð 170x230
GOTT VERÐ
KR. 9.316,-
kr . 12.586,-
METRÓ
- ÁRAL HF. -
MJALLARGÖTU 1
Sími 456 4644
Krístján
syngur
fyrír Flat-
eyrínga
Kristján Jóhannsson,
óperusöngvari, hefur
ákveóió að halda
tvenna einsöngstón-
leika með Sinfóníu-
hljómsveit íslands í
maí á næsta ári og
mun ágóði af öðrum
tónleikunum renna til
þeirra sem eiga um
sárt að binda vegna
snjóflóðsins á Flateyri.
Með þessu vill Kristján
taka þátt í að leggja
fólkinu á Flateyri
hjálparhönd, eins og
hann sagði í samtali
við Morgunblaðið.
Látinna
minnst
á Aiþingi
Alþingismenn minnt-
ust þeirra sem létust í
snjóflóðinu á Flateyri
og vottuóu syrgjendum
samúð, er Alþingi kom
saman til fundar á
mánudag. Ragnar
Arnalds, varaforseti
Alþingis, flutti minning-
arorð og sagði m.a. að
vonandi væri syrgjend-
um einhver huggun í
samúð þeirra sem fjær
standa og vitneskjunni
um það að bæói hér á
landi og erlendis,
beindust hugir manna
til þeirra í löngun til að
styrkja þá í orði og
verki.
183 miiij-
ónir höfðu
safnast í
gær
Á hádegi í gær höfðu
rúmlega 183 milljónir
króna safnast í söfn-
uninni „Samhugur í
verki” sem fjölmiðlar
landsins hafa staðið
fyrir undanfarna daga.
Er sú upphæð langt
fram úr björtustu
vonum, ekki síst miðað
vió skamman undir-
búningstíma söfnun-
arinnar. Formlegri
söfnun á vegum fjöl-
miðla er lokið en tekið
verður við framlögum á
söfnunarreikningi nr.
1183-26-800 í Spari-
sjóði Önundarfjarðar út
allan nóvembermánuð,
auk þess sem hægt
verður að leggja fram-
lög inn á símanúmer
söfnunarinnar 800-
5050, jafn lengi.
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 3