Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.11.1995, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 01.11.1995, Blaðsíða 7
Snjóflóðiö á Flateyri Þau létustísnjóflóðinu á Flateyri TUTTUGU manns létust í snjóflóðinu mikla sem skall á Flateyri aðfaranótt fimmtudagsins 26. október síðastliðinn, tíu karlar, sex konur og fjögur börn. Fjórir voru grafnir lifandi úr flóðinu, en auk þeirra bjargaðist 21 íbúi úr húsum, sem flóðið lenti á. Pau sem létust eru: Þórður Júlíusson. 58 ára, til heimilis að Hjallavegi 6. Hann Iætur eftir sig eiginkonu og sex uppkomin stjúpbörn. Sigurður Þorsteinsson. 39 ára, og sonur hans, Þorsteinn Sigurðsson, 18 ára. Þeir voru til heimilis að Hjallavegi 8. Eftir lifa eiginkona Sigurðar og þrjú börn þeirra, þar á meðal yngri sonurinn, Atli Már Sigurðsson, 14 ára, sem bjargaðist úr snjóflóðinu. Kristinn Jónsson, 42 ára. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjá syni. Kristinn var gestkomandi að Hjallavegi 8. Honum hafði verið gert að yfirgefa heimili sitt að Olafstúni 9 kvöldið áður en snjóflóðið féll, vegna þess að þar var þá talin hætta á snjóflóði. Húsið að Ólafstúni 9 stendur óskemmt. Haraldur F.ggertsson, 30 ára, kona hans Svanhildur Hlöðversdóttir, 30 ára, og böm þeirra þrjú, Haraldur Jón Haraldsson, 4 ára, Ástrós Birna Haraldsdóttir, 3 ára og Rebekka Rut Haraldsdóttir, 1 árs. Fjölskyldan var til heimilis að Hjallavegi 10. Benjann'n Oddsson, 59 ára, til heimilis að Hjallavegi 12. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjórar uppkomnar dætur. Kona Benjamíns gisti annars staðar í bænum. Gunnlaugur P. Kristjánsson, 72 ára, og eiginkona hans Geirþrúður Friðriksdóttir, 69 ára, til heimilis að Tjamargötu 3. Þau hjón láta eftir sig sex uppkomnar dætur. Svana Eiríksdóttir, 19 ára, Unnarstíg 2. Hún var búsett í Kópavogi en dvaldi á heimili foreldra sinna. Systir Svönu, Sóley, 11 ára, var grafin lifandi úr flóðinu. Eftir lifa einnig foreldrar þeirra, Eiríkur Guðmundsson og Ragna Ólafsdóttir, sem stödd voru í Reykjavík, og bræður þeirra tveir. Halldór Ólafsson, 24 ára, til heimilis að Fitjateig 4, Hnífsdal. Hann var gestkomandi að Unnarstíg 2. Halldór lætur eftir sig fimm ára gamla dóttur. Rebekka dóttir. Rut Haraids- Benjamín Oddsson. Gunnlaugur P. jánsson. Krist- Geirþrúður dóttir. Friðriks- Sólrún Ása Gunnarsdóttir, 14 ára, til heimilis að Unnarstíg 4. Hún lætur eftir sig foreldra, sem björguðust af eigin rammleik úr flóðinu, og tvær eldri systur, senr búsettar eru á höfðuborgarsvæðinu. Þorleifur Yngvason, 38 ára, og sambýliskona hans Lilja Ásgeirsdóttir, 34 ára, til heimilis að Hafnarstræti 41. Þau áttu ekki börn saman en Lilja lætur eftir sig tvær dætur. Magnús E. Karlsson, 53 ára, kona hans Fjóla Aðalsteins- dóttir, 50 ára, og dóttir þeirra Linda Björk Magnúsdóttir, 24 ára. Þau voru til heimilis að Hafnarstræti 45. Þrjú uppkomin böm lifa foreldra sína og systur. Þeim var bjargað úr snjófíóðinu Svana Eiríksdóttir. Haiidór Óiafsson. Sóirún Ása Gunnars- Þorieifur Yngvason. dóttir. Atli Már Sigurðsson, 14 ára, var grafinn úr rústum heimilis sfns að Hjallavegi 8. Faðir hans og bróðir fórust í slysinu. Sóley Eiríksdóttir, 11 ára, til heimilis að Unnarstíg 2, bjargaðist. Systir hennar, Svana, fórst í flóðinu. Anton Smári Rúnarsson, 11 ára, var gestkomandi að Hjallavegi 4, en hann er til heimilis að Drafnargötu 11. Honum var bjargað úr snjónum. Guðný Margrét Kristjánsdóttir, 27 ára, bjargaðist úr rústum Tjamargötu 7, en þar hafði hún verið gestkomandi. Hún er til heimilis að Drafnargötu 9. Bæjarins besta flytur þeim sem eiga um sárt að binda, innilegar samúðarkveðjur. Linda Björk Magnús dóttir. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 7

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.