Bæjarins besta - 01.11.1995, Qupperneq 7
Snjóflóðiö á Flateyri
Þau létustísnjóflóðinu á Flateyri
TUTTUGU manns létust í snjóflóðinu mikla
sem skall á Flateyri aðfaranótt fimmtudagsins
26. október síðastliðinn, tíu karlar, sex konur og
fjögur börn. Fjórir voru grafnir lifandi úr
flóðinu, en auk þeirra bjargaðist 21 íbúi úr
húsum, sem flóðið lenti á. Pau sem létust eru:
Þórður Júlíusson. 58 ára, til heimilis að Hjallavegi 6. Hann
Iætur eftir sig eiginkonu og sex uppkomin stjúpbörn.
Sigurður Þorsteinsson. 39 ára, og sonur hans, Þorsteinn
Sigurðsson, 18 ára. Þeir voru til heimilis að Hjallavegi 8. Eftir
lifa eiginkona Sigurðar og þrjú börn þeirra, þar á meðal yngri
sonurinn, Atli Már Sigurðsson, 14 ára, sem bjargaðist úr
snjóflóðinu.
Kristinn Jónsson, 42 ára. Hann lætur eftir sig eiginkonu og
þrjá syni. Kristinn var gestkomandi að Hjallavegi 8. Honum
hafði verið gert að yfirgefa heimili sitt að Olafstúni 9 kvöldið
áður en snjóflóðið féll, vegna þess að þar var þá talin hætta á
snjóflóði. Húsið að Ólafstúni 9 stendur óskemmt.
Haraldur F.ggertsson, 30 ára, kona hans Svanhildur
Hlöðversdóttir, 30 ára, og böm þeirra þrjú, Haraldur Jón
Haraldsson, 4 ára, Ástrós Birna Haraldsdóttir, 3 ára og
Rebekka Rut Haraldsdóttir, 1 árs. Fjölskyldan var til heimilis
að Hjallavegi 10.
Benjann'n Oddsson, 59 ára, til heimilis að Hjallavegi 12.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjórar uppkomnar dætur. Kona
Benjamíns gisti annars staðar í bænum.
Gunnlaugur P. Kristjánsson, 72 ára, og eiginkona hans
Geirþrúður Friðriksdóttir, 69 ára, til heimilis að Tjamargötu
3. Þau hjón láta eftir sig sex uppkomnar dætur.
Svana Eiríksdóttir, 19 ára, Unnarstíg 2. Hún var búsett í
Kópavogi en dvaldi á heimili foreldra sinna. Systir Svönu,
Sóley, 11 ára, var grafin lifandi úr flóðinu. Eftir lifa einnig
foreldrar þeirra, Eiríkur Guðmundsson og Ragna Ólafsdóttir,
sem stödd voru í Reykjavík, og bræður þeirra tveir.
Halldór Ólafsson, 24 ára, til heimilis að Fitjateig 4, Hnífsdal.
Hann var gestkomandi að Unnarstíg 2. Halldór lætur eftir sig
fimm ára gamla dóttur.
Rebekka
dóttir.
Rut Haraids- Benjamín Oddsson.
Gunnlaugur P.
jánsson.
Krist-
Geirþrúður
dóttir.
Friðriks-
Sólrún Ása Gunnarsdóttir, 14 ára, til heimilis að Unnarstíg
4. Hún lætur eftir sig foreldra, sem björguðust af eigin rammleik
úr flóðinu, og tvær eldri systur, senr búsettar eru á
höfðuborgarsvæðinu.
Þorleifur Yngvason, 38 ára, og sambýliskona hans Lilja
Ásgeirsdóttir, 34 ára, til heimilis að Hafnarstræti 41. Þau áttu
ekki börn saman en Lilja lætur eftir sig tvær dætur.
Magnús E. Karlsson, 53 ára, kona hans Fjóla Aðalsteins-
dóttir, 50 ára, og dóttir þeirra Linda Björk Magnúsdóttir, 24
ára. Þau voru til heimilis að Hafnarstræti 45. Þrjú uppkomin
böm lifa foreldra sína og systur.
Þeim var bjargað úr snjófíóðinu
Svana Eiríksdóttir. Haiidór Óiafsson.
Sóirún Ása Gunnars- Þorieifur Yngvason.
dóttir.
Atli Már Sigurðsson, 14 ára, var grafinn úr rústum heimilis
sfns að Hjallavegi 8. Faðir hans og bróðir fórust í slysinu.
Sóley Eiríksdóttir, 11 ára, til heimilis að Unnarstíg 2,
bjargaðist. Systir hennar, Svana, fórst í flóðinu.
Anton Smári Rúnarsson, 11 ára, var gestkomandi að
Hjallavegi 4, en hann er til heimilis að Drafnargötu 11. Honum
var bjargað úr snjónum.
Guðný Margrét Kristjánsdóttir, 27 ára, bjargaðist úr rústum
Tjamargötu 7, en þar hafði hún verið gestkomandi. Hún er til
heimilis að Drafnargötu 9.
Bæjarins besta flytur þeim sem eiga um sárt að binda, innilegar
samúðarkveðjur.
Linda Björk Magnús
dóttir.
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 7