Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.03.1996, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 13.03.1996, Qupperneq 8
Einar Hreinsson hefur unnið um árabil hjá því gamalgróna fyrirtæki, Netagerð Vestfjarða. Hann er þó ekki netagerð- armaður, eins og ætla mætti, heldur er hann sjávarútvegsfræðingur að mennt, en Einar lærði þau fræði í Tromsö í Noregi. Hann segist þó geta gripið í netanál ef mikið liggur við. Reyndar er hann á heimavelli í netagerðinni, því hans sérsvið innan sjávar- útvegsfræðinnar er veiðitæknin. BB sótti Einar heim á vinnustað hans til að for- vitnast um menntun hans, reynslu af neð- ansjávarmyndatökum við Island og þróun- arvinnu fyrir fjarlægar þjóðir. Einar segist hafa valið sér veiðitækni að sérsviði því þar hafi verið pláss fyrir menn, og svo sé enn- þá. „Sjávarútvegsfræði er þverfaglegt nám, þar sem blandast saman hagfræði, félags- fræði, tæknifræði og líffræði. Þegar ég fór í þetta nám fyrir rúmum tuttugu árum síðan, var þetta mjög nýtt og maður vissi ekki hvað kæmi út úr þessu. Framan af var svolítið erfitt að hnýta þetta saman, en námið reyndist hinn besti pakki þegar upp var staðið. Það var samt erfitt að setja sjávarútvegsfræði á ákveðinn bás, og annað fólk átti erfitt með að átta sig á hvað við vorum fyrir nokkuð. Þessi menntun á að nýtast vítt og breitt í sjávarútveginum, markmiðið var að mennta fólk til stjórn- unarstarfa í sjávarútveginum, frá stjóm- sýslunni og niður úr. A síðari hluta náms- ins sérhæfa menn sig, og þá kvíslast þetta í allar áttir. Fólk á kannski enn erfiðara með að átta sig á náminu vegna þessa, einn sjávarútvegsfræðingur er í veiðarfærum á meðan annar er í gerlarannsóknum, þriðji í fiskeldi og sá fjórði er kannski í banka,” segir Einar og segir aðspurður um viðhorf fólks gagnvart þessum titli að fólk hafi verið eitt spurningamerki. Vorum í skjúli af fiskifræðingunum „Þetta var nú kannski djöful- legur titill að bera að vera sjávarútvegsfræðingur, en við áttuni því láni að fagna að fyrir voru fiskifræðingar, sem „per definition” voru taldir asnar, svo er enn og við höfum alltaf verið í skjóli af þeim. Þeir hafa tekið stuðið af okkur og verið í hitamálunum. En mest var við- horfið nú þannig að fólk vissi ekki hvað þetta var, og við vorum ofmetnir og vanmetnir á víxl. Við höfum samt allir fengið vinnu og bransinn tekur enn við,” segir Einar og telur sú krafa að nemendur í þessum fræðum hafi verið í fiskvinnslu eða til sjós í átján mánuði hafi hjálpað mikið. „Það sem er verst í þessu, að minnsta kosti hvað mig varðar, er að þegar maður fer að sinna því að ná fiski úr sjónum, stendur maður á bláa þreifandi gati. Það eru ekki til nein svör við mörgum brennandi spurningum, þó maður sækti alla skóla heims- ins. Við höfum ekki sinnt því nóg að komast að því hvað er í sjónum og hvernig á að ná því uppúr honum. Þar erum við á villimannastigi,” segir Einar sem spáir því að gríðarlegar breytingar verði á fiskveiðum í framtíðinni. Það sé ekki víst að hann lifi þá tíma, tækni- legur grundvöllur sé til staðar en krafan um breytingar hafi ekki enn verið sett frant. Veitti ekki af háskólaprófi til fiskveiða Einar hefur ákveðnar skoð- anir á þeirri menntun sem fólki í sjávarútvegi stendur til boða og segir hana að mörgu leyti góða. „Það sem mér finnst þó vanta í hana, er að veiði- nrennirnir fá ekki nóga mennt- un, og það er slæmt. Ef ég segi þetta á venjulegri íslensku, þá erum við með menn sem fá þjálfum í að fara hér fram á fiskimiðin. Þeir þurfa að fara í skóla til að fá réttindi til að stunda sjó, en þeir fá ekki staf um fiskinn eða veiðarfærin, í þessum skóla. Mönnununr er kennt að rata, á stöðugleika skipsins, kennd önnur tungu- mál og almenn fræði, og gott og vel með það. En þetta að veiða, að glíma við fiskinn og um meðferðina á hráefninu verða þeir að læra hver af öðrum úti á sjó. Þeir læra líka unt veiðarfærin sem notuð eru, á sama hátt, og það er svo sem gott og blessað og nauðsyn- legt. En það er heilmikið nesti sem þeir ættu að hafa og þurfa að hafa í viðbót, sem hægt er að láta þeim í té. Það er í raun rnesta furða hvað menn vinna þetta verk vel af hendi, þrátt fyrir þennan skort. Hættan er hins vegar sú að þegar farið er að auka bóklegu menntunina, komi það niður á þeirri þjálfun sem þeir fá til sjós. Eg hef heyrt landsfræga veiðimenn halda því fram að það veiti orðið ekkert af því að hafa há- skólapróf til að vera skipstjóri um borð í frystitogara. Það hefur aldrei mátt nefna það upphátt að í skóla sé hægt að læra að veiða fisk. Trúin er sú að þú verður ekki fiskimaður upp á bókina,” segir Einar. Vandamálin ekki í danskri dnllu Netagerð Vestfjarða er eini veiðarfæraframleiðandi lands- ins sem á tækjabúnað til að mynda dregin veiðarfæri neð- ansjávar. Búnaðurinn var keyptur 1983, og fyrirtækið lenti í verulegu stappi við yfir- völd, þar sem niðurfelling á aðflutningsgjöldum og sölu- skatti á tækjabúnað til sjávar- útvegs, átti ekki að ná til neðan- sjávarnryndavéla en Neta- gerðin hafði samt sigur að lokunt. Einar segir mörg önnur fyrirtæki notast við tilrauna- tanka, sem geti aldrei komið í stað athugana á veiðarfærum við raunverulegar aðstæður. En hvers vegna var lagt út í kaup á svo dýrum tækjabúnaði? „Það var mjög einfalt, við þurftum að vita meira. Við könnuðum hvort þetta væri hægt og hvort tækjabúnaðurinn væri til, og svo reyndist vera. Skotar höfðu náð mestum tökum á þessari tækni, og þar kynntum við okkur tæknina og keyptum búnaðinn. Við höfum þá heimspeki að það eigi að ráðast á vandamálin þar sem þau eru, þau eru neðansjávar en ekki í danskri dollu, eins og við segjum, ekki í gerfi- umhverfi,” segir Einar. Starfs- menn Netagerðarinnar endur- bættu síðan myndatökubún- aðinn, og gerðu hann m.a. hreyfanlegri svo hægara væri að flytja hann á milli skipa. Einar segir að tilkoma neðan- sjávarmyndavélanna hafi skil- að verulegum árangri í veiðar- færaþróun hjá fyrirtækinu. „Það er búið að skoða allar gerðir af botnvörpum sem við höfum notað við Island. Mestar breytingar hafa orðið í fiski- trollum sem notuð eru við bol- fiskveiðar, og gagnið sem neðansjávarmyndatakan gerir er það að við sjáum loksins hvað við erum að gera. Við sjáum veiðarfærin í fullri stærð við eðlilegar aðstæður og getum treyst á það. Síðan hefur þessi tækni skilað okkum miklum upplýsingum um at- ferli fiska gagnvart veiðar- færunum og við getum séð hvað raunverulega á sér stað á veiði- ferlinu. Það eru komin ýmis púsl í púsluspilið og þetta hefur aukið allt öryggi í hönnun veiðarfæra. Það var ekki margt sem kom okkur á óvart, en þetta eyddi fjölmörgum óvissu- þáttum, hlutum sem við vissum ekki en höfðum ákveðnar hug- myndir um, ýmsum „trúar- atriðum" og allt í bransanum hefur orðið markvissara fyrir vikið.” Einar segir að samt ríki ennþá mikil óvissa í veiðar- færagerð, enda viti menn ennþá allt of lítið um hvað gerist neðansjávar. Veiðarfæraþróun skilar sér helst í veiðarfæra- sparnaði og betri endingu veiðarfæranna, en ekki endi- lega í meiri afla eða hærra verði. Nokkrum sinnum hefur verið óskað eftir aðstoð neðan- sjávarmyndavéla Netagerð- arinnar við leit að skipsflökum og björgun þeirra, og jafnvel hefur verið falast eftir tækj- unurn til að mynda borholur á landi, þó það verkefni hafi verið afþakkað enda var aldrei mein- ingin með tækjakaupunum að fara í kvikmyndagerð í stórum stíl. í bransa par sem hver stelur frá öðrum Þegar Einar er spurður um stöðu Netagerðarinnar á meðal veiðarfæraframleiðanda segir hann að það sé erfitt að meta hana. ,,Við þykjumst vera þokkalega settir og höfum lagt 8 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1996

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.