Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1996, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 30.04.1996, Blaðsíða 9
með Dómkórnum,” segir Guðrún og upp úr kafinu kemur að hún er haldin ódrepandi áhuga á kórstarfi, og hún reynir eftir megni að starfa með kirkjukórnum við Isafjarðarkirkju, þótt fáar stundir gefist til þess vegna vinnunnar. „Ég hef verið kóráhugamanneskja frá því í barnaskóla, ég var í Melaskólakómum, í M.R.kórnum, Háskólakórnum og fór í Dómkórinn fyrir sjö árum. Við fórum til Prag og þar voru hljóðfæri fáránlega ódýr, hægt að kaupa eðalhljóðfæri fyrir fjögur eða fimm þúsundkall. Þetta var eins og að lenda í öðrum heimi, og ég held að Dómkórinn hafi keypt upp heila hljóðfæra- búð.” I eitt ár Iærði Guðrún söng hjá Guðmundu Elíasdóttur. „Það var alveg frábær tími og Guðmunda er alveg yndisleg kona. Það var ekki síðra að kynnast henni en að læra að syngja. Ég var búin að syngja í kórum í fjölda mörg ár og var farin að læra á nótur, ætli ég hafi ekki bara viljað bæta mig,” segir Guðrún. En af hverju hefur hún svo mikinn áhuga á kórsöng? „Það er sam- hljómurinn sem heillar, að vera hluti af heild sem öll stefnir að sama marki. Að mínu mati er kirkjumúsík fyrir kóra einhver fallegasta tónlist sem hefur verið skrifuð, og að syngja stærri verk eftir Mendelsohn, Mozart, Brahms og fleiri er alveg ofboðs- lega gaman. Kórfélagi minn, sem ekki er mjög trúaður, sagði eitt sinn við mig „Ef Guð er til, er það þegar við syngjum Brahms eða Bach”.” Hljomsveit Jarþrúðar og þægindapoppið Guðrún segist vera alæta á tónlist, en undanskilur þó þunga- rokkið. Kórarnir eru ekki eini vettvangurinn þar sem Guðrún hefur fengið útrás fyrir tónlistaráhugann, því hún stofnaði ásamt vinkonum sínum hljómsveit, sem gerði garðinn frægan á Nordisk Forurn í Finnlandi. Hljómsveitin var upphaflega sett á fót í þeim eina tilgangi að skemmta hljómsveitarmeðlimunum sjálfum og flytur það sem Guðrún kallar þægindapopp. „Við erum nokkrar vinkonur sem höfum mikið spilað saman í gegnum tíðina, Lilja Steingrímsdóttir, Olafía Hrönn Jónsdóttir og ég. Sú hugmynd spratt upp að gera eitthvað í málunum og af því að við vorum heima hjá mér þegar það gerðist, heitir hljómsveitin Hljómsveit Jarþrúðar, eða hét, því hún hefur legið í dvala. Lilja og Olafía byrjuðu og til að byrja með vildi ég ekki vera með, fannst þetta vera hálfgerðir húsmæðradraumórar, en svo vatt þetta upp á sig.” Hljómsveitina skipuðu þær Guðrún og Olafía Hrönn Jóns- dóttir, sem báðar spiluðu á gítar og sungu, Lilja Steingrímsdóttir sem lék á hljómborð, Lana Kolbrún Eddudóttir sem lék á bassa og Þórdís Claessen trymbill, sem heyrði til vinkvennanna á æfingu í Hlaðvarpanum og fékk að slást í hópinn. Guðrún fullyrðir að hljómsveitin hafi ekki haft nokkurn metnað. „Okkur langaði svo sem ekkert til að spila fyrir aðra en okkur, og við höfum aldrei spilað öðru vísi en að vera beðnar um það. Fyrsta almennilega „giggið” okkar var á tíu ára afmæli Kvennaat- hvarfsins, og við byrjuðum ekki smátt, í beinni útsendingu í Ríkisútvarpinu og sungum þar nokkur lög. Rafn Jónsson trommu- leikari hafði séð okkur og heyrt, hann bað okkur um að vera með á plötu sem var liður í átaki gegn vímuefnum. Við fórum í stúdíó til hans og tókum upp eitt lag á plötuna. Margar hljómsveitir áttu lag á plötunni, Uestar lítið þekktar. Næsta „gigg” hjá okkur var á lokatónleikunum hjá Rafni í Borgarleikhúsinu, svo þetta voru stór skref hjá okkur,” segir Guðrún og hlær dátt. Hljómsveit Jarþrúðar var síðan boðið á Nordisk Forum í Finnlandi, og þá fór hljómsveitin að spila á öldurhúsum bæjarins til að venja með- Iimina við að troða upp fyrir áheyrendur, og ágóðinn af spila- mennskunni var nýttur til að kaupa tæki fyrir sveitina. Guðrún segir að hljómsveitin hafi í sjálfu sér ekki mikinn boðskap að flytja, textarnir fjalli nteðal annars um ástina og óréttlæti Guðrún Jarþrúður tekur hér á móti einum af þeim heiminn. heimsins, „Textarnir eru ekki pólitískir, við erum bara vinkonur að skemmta, fyrst og fremst okkur sjálfum og þama fáum við útrás fyrir sköpunargáfuna. Lögin semjum við sjálfar, suma textana líka og aðrir eru fengnir að láni,” segir Guðrún, en hvað með útgáfu? „Við eigum örugglega hátt í þrjátíu lög sem eru hvergi til nema á upptökum sem ég hef gert með tveimur míkrófónum í æfingarhúsnæði. Eftir margra ára samæfingar og vinnu finnst mér fáránlegt að láta efnið fara til spillis, og við höfum lengi talað um að taka upp í stúdíói, þó ekki væri nema fyrir okkur sjálfar. Ætli við gerum það ekki einhvem tímann, en það kostar allt svo mikla peninga, sjáðu til.” Þegar Guðrún er spurð um hvaða viðtökur H Ijómsveit J arþrúðar hefur fengið, svarar hún því til að þær hafi verið ágætar og það sé bara gaman að vera poppari. „Toppurinn var að fara á Nordisk Forum. Við vorum með tónleika á íþróttaleikvangi og mig rninnir að fólk hafi skemmt sér bærilega. Við vorum hluti af dagskrá þar sem kvennahljómsveitir frá Færeyjum, Danmörku, Finnlandi, íslandi og Svíþjóð léku. Dagskráin var góð, verstir voru Danirnir því þær léku kántrýtónlist.” Múmínálfarnir eru yndislegar persónur 1 stofunni hjá Guðrúnu eru litlir múmínálfar í heiðurssæti með stóra höfuðið sitt og flauelsmjúka feldinn, búnir til af Hildi Heimisdóttur, sambýliskonu Guðrúnar. Guðrún segist vera ein- lægur aðdáandi barnabóka, og þá að sjálfsögðu múmínálfanna. A síðastliðnum vetri las hún nokkrar smásögur um lífið í Múmíndalnum í Ríkisútvarpið, en sögumar hafði hún sjálf þýtt. „Ég hef alla tíð verið aðdáandi J’ove Jansson og þegar ég rakst á bók eftir hana með smásögum, ákvað ég að gefa systkina- börnum mínum hverju sína söguna í jólagjöf. Þá þýddi ég fjórar sögur, eina handa hverju þeirra og eina jólasögu. Múmínálfarnir eiga marga aðdáendur, og líka í Ríkisútvarpinu. Ég lét því vita af sögunum og las þær svo fyrir barnatíma útvarpsins. Mér fannst svo gaman að þýða sögurnar að núorðið þýði ég gjarnan þegar ég fjöimörgu ísiendingum sem hún hefur aðstoðað í kent heim af vöktunum í stað þess að setjast fyrir framan sjónvarpið. Múmínálfarnir eru yndislegar persónur og svo er mikil heimspeki í sögunum, Tove er með boðskap í hverri einustu sögu, gerir létt grín að efnishyggjunni og öllu mögu- legu.” Guðrún segist vera ákveðin í að halda áfram þýðingunum, það sé eins og að ráða krossgátu, nema mun skemmtilegra. „Þegar ég kom hingað til Isafjarðar, kunni ég ekki að vinna bakvaktavinnu og framan af var mér ekki vel við að byrja á einhverju verki sem ég þurfti að klára, ef ég yrði nú kölluð út. Þar af leiðandi hélt ég áfram að þýða, því þá hafði ég eitthvað við að vera, en gat alltaf slökkt á tölvunni ef á þurfti að halda.” Sögurnar um íbúa Múmíndalsins eru ekki frumraun Guðrúnar í þýðingum, á menntaskólaárum sínum þýddi hún bæði úr frönsku og ensku, því alltaf skorti áhugaverð leikrit á íslensku. En lætur hún þýðingamar sínar liggja ofan í skúffu, þar sem fáir geta notið þeirra? „Það er eins með þýðingarnar og hljóm- sveitina, ég geri þetta fyrst og fremst fyrir mig. Ég þarf ekkert endilega að flagga því fyrir hvem sem er, en þegar ég er búin að þýða heila bók, finnst mér auðvitað blóðugt ef aðrir fá ekki að njóta þess. Það var ekki fyrr en eftir áramót, sem mér datt yfirleitt í hug að gefa sögumar út, og nú er ég búin að senda bókina til útgefanda.” Guðrún segist ekki skrifa sjálf, það sé nægur barningur að koma saman textum fyrir Hljómsveit Jarþrúðar. Guðrún er á förum frá Isafirði eins og áður sagði, en hvernig fannst henni að búa á Isafirði? „Mér hefur fundist alveg rosalega gott að vera héma, og ákaflega gaman. Hér er yndislegt fólk og ég er í starfi sem er bæði yndislegt og skemmtilegt. Starfið er erfitt og krefjandi en gefur þess meira,” segir Guðrún en þegar hún er innt eftir því hvort hún geti hugsað sér að flytja á ný til Isafjarðar, segir hún að sér liggi ekki á að skipuleggja slíkt. „Eftir að hafa verið hér, sérstaklega á þessum erfiðu tímum slysanna í Súðavík og á Flat, þá skilur maður miklu betur hvað er að vera Vestfirðingur, og að einhverju leyti er ég að verða Vestfirðingur lfka.” Svavar Bragi Jónsson, framhaldsskólakennari skrifar Er ég undirritaður las við- tal við Kolbrúnu Halldórs- dóttur, frambjóðanda á lista Sjálfstæðisflokksins, brá mér illilega í brún. Ég trúði varla mínum eigin augum. Enn ein árásin á FVÍ af hálfu fram- bjóðenda Sjálfstæðisflokks- ins. Tvennt einkennir mál- flutning Kolbrúnar. Annars vegar þekkingarleysi á því starfi sem fer fram innan skólans og hins vegar for- dómar gagnvart skólanum. Frambjóðandinn talar um að stjómendur skólans hafi sofið á verðinum og ekki staðið sig sem skyldi. Þetta er einfaldlega ekki rétt. Ég veit fyrir víst, að þeir hafa lagt sig mjög fram um að kynna skól- ann; gefið út sérblöð um skólann, sent út bréf og farið sjálfir um alla Vestfirði. Margt fleira væri hægt að tína til. En af einhverjum ástæðum, sem ég geri mér ekki grein fyrir, virðist viðhorf fólks á Vest- fjörðum frekar neikvætt í garð skólans. Þessar eilífu árásir hljóta að skila sér til nemenda á endanum. Væri ekki nær lagi að taka höndum saman um að styrkja skólastarfið í stað þess að rífa það niður? í áliti nefndar á vegum menntamálaráðuneytisins vegna kæru tveggja einstakl- inga í fyrra kemur einmitt fram sú skoðun „að um Framhalds- skóla Vestfjarða hefur skapast andrúmsloft sem nauðsynlegt er að breyta. Þess vegna er brýnt að unnið sé að breyttri afstöðu samfélagsins til skól- ans.” Það er ekki gert með því að ráðast að skólanum með ofangreindunt hætti. Kennarar skólans eru vel menntaðir og bera sannarlega hag nemenda fyrir brjósti. Þeir leggja sig alla fram um aðkoma nemendum til þroska ásamt því að kenna þeim. Ég hef ekki orðið var við annað en að sam- skipti nemenda og kennara séu góð, þó að auðvitað séu ekki alltaf allir sammála. Fátt vinnst með málflutningi frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins, annað en að fæla nemendur og kennara í burt, því hver getur unnið við þessar kringumstæður til lengdar? Ég hvet því frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins til þess að kynna sér af einlægni og án fordóma það starf sem unnið er í Framhaldsskólanum. Ég fullyrði að FVI er góður skóli; ég hef kennt á Akranesi og stenst FVÍ fyllilega þann samanburð. Ég vona að fram- bjóðendur Sjálfstæðis- flokksins sjái að sér og hætti árásum á FVI og kynni sér málefni hans betur. -Svavar Bragi Jónsson, framhaldsskólakennari. tr frambjóðendum annt um Framhalds ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 9

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.