Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1996, Síða 16

Bæjarins besta - 30.04.1996, Síða 16
Litríkir púðar og dúkar í mörgum stærðum! Slml: 4S6 S18» Opið i hádeginu og frá kl. 11 til kl. 16 laugardaga Slml: 456 5168 Steiniðjan hf., á ísafirði. Nýr rekstraraðiH tekur við Steiniðjunni á ísafirói Viðræður sflanda yfir um kaup á hlut Kaupfélagsins í fyrirtækinu Viðræður standa yfir á milli Kaupfélags Isfirðinga annars vegar og Sævars Ola Hjörv- arssonar og Sigurðar Oskars- sonar hins vegar, um kaup á Steiniðjunni, sem hefur verið í eigu KI um langt skeið. Sævar og Sigurður tóku við rekstri stöðvarinnar fyrr í þessum mánuði og munu reka hana í sumar. Pétur Sigurðsson, formaður stjómar Kaupfélagsins sagði í samtali við blaðið að félagið hefði lengi reynt að reka stöðina, en ekki gengið. „Það hefur ekki gengið hjá okkur, og ég held að þetta sé mjög erfiður rekstur, sérstaklega þegar opinber fyrirtæki hér á Isafirði sniðganga stöðina. Síðan er steypustöð á Þingeyri og önnur úti í Bolungarvík, þannig að samkeppnin er töluverð á markaði sem ber varla eina stöð. Það er hugs- anlegt að menn sem vilja leggja á sig mikla og ómælda vinnu í eigin þágu, geti látið enda ná saman, en fyrirtæki eins og Kaupfélagið getur það ekki,” sagði Pétur. Viðræður Súöavíkurhrepps og eigenda Frosta Fyrirtækiö verði gert að almenningstilutafélagi Súðavíkurhreppur og eig- endur útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækisins Frosta hf., og dótturfyrirtækja þess, Alft- firðings hf., og Þorgríms hf., eiga í viðræðum um að sameina fyrirtækin í eitt almennings- hlutafélag. Breytingin mun hafa í för með sér að eignar- hlutureigendanna mun minnka um sem nemur þeim hluta kaupverðs fyrirtækisins sem ekki hefur verið staðið skil á til Súðavíkurhrepps. Sveitarfél- agið á 42 % í Frosta hf., Tog hf., um 50% og aðrir smáir hluthafar um 8%, og munu einhverjir þeirra einnig eiga eftir að greiða hluta af kaup- verðinu. Sigríður Hrönn Elíasdóttir, oddviti Súðavíkurhrepps, sagði að viðræður hefðu staðið yfir frá því fyrir síðasta aðalfund Frosta hf., en kaupverðið átti að vera að fullu greitt á síðasta ári. „Hugntyndin er sú að þeir minnki hlutafjáreign sína og unnið verði að því að samræma samþykktirnar fyrir öll félögin. til þess að gera þau að almenn- ingshlutafélagi. En það er ekki búið að samþykkja þetta, þó eigendur Togs og Súðavíkur- hreppur séu sammála um þessa leið,” sagði Sigríður. Unnið er að því að reikna út virði hluta- bréfa í fyrirtækjunum þremur til að koma þeim öllum á sama grunn fyrir aðalfund Frosta hf., sem verður haldinn í maí. Væntanlegir kaupendur hluta- bréfa í nýju almenningshluta- félagi hafa ekki gefið sig fram að sögn Sigríðar Hrannar, en að gera má ráð fyrir að margir telji það vænlegan kost að fjárfesta í hlutafélaginu. Skilafrestur efnis Að gefnu tilefni skal það áréttað að skilafrestur efnis í næsta tölublað Bæjarins besta, sem er það síðasta fyrir kosningar í sameinuðu sveitarfélagi á norðanverðum Vestfjörðum, er næstkomandi föstudag, 3. maí. Æskileg stærð greinar er A4 síða. Mynd af greinarhöfundi verður að fylgja greinum. Héraðsnefnd ísa- fjarðarsýsiu Lögð niður í núver- andi mynd í mai Vegna sameiningar sveit- arfélaga í Vestur-Isafjarðar- sýslu og Isafjarðarkaupstaðar hefur verið ákveðið að leggja niður Héraðsnefnd Isafjarð- arsýslu í núverandi mynd. I tilkynningu frá nefndinni segir að í þeim miklu og öru breytingum sem átt hafa sér stað með stækkun sveitar- félaga á norðanverðum Vest- fjörðum að undanförnu, hafi þörfin fyrir þennan sam- starfsvettvang minnkað. Það er því álit Héraðsráðs að ekki sé lengur sá grundvöllur fyrir starfi Héraðsnefndar, sem var þegar til hennar var stofnað og beri því að leggja nefndina niður. Tillögur Héraðsráðs þar um voru sendar til sveit- arfélaganna 22. janúar sl„ og hafa flest sveitarfélögin sam- þykkt þá tillögu Héraðsráðs, eða ekki gert athugasemdir við hana. I upphafí áttu ellefu sveit- arfélög aðild að héraðs- nefndinni, þeim fækkaði síðan niður í átta en verða aðeins þrjú eftir santeiningu sveitarfélaga. Kaupstöðum ber ekki skylda skv. lögum að vera í héraðsnefnd og er þá Súðavíkurhreppur einn eftir að sameiningu lokinni. Það var árið 1988 sem héraðsnefndir tóku við af tveimur sýslunefndum í Isa- fjarðarsýslum, en ári síðar sameinuðust þessar tvær héraðsnefndir í eina. Héraðs- nefnd Isafjarðarsýslu hefur verið samstarfsvettvangur sveitarfélaganna (hrepp- anna) í Norður og Vestur- ísafjarðarsýslum frá árinu 1989. Það var síðan í árs- byrjun 1991 sem kaupstað- irnir Bolungarvík og Isa- fjörður gerðust aðilar að nefndinni og hefur hún verið óbreytt síðan. A fundi héraðsnefndar sem haldinn var 18. apríl sl„ var staðfest ákveðin vinnu- tilhögun við verklok nefnd- arinnar, en samkvæmt henni á öllum sjóðum nefndarinn- ar að hafa verið lokað og reikningsskil hafa verið lögð fram þann 12. maí nk. Ágæt þátttaka var í skátamessu og skrúð- göngu sem Skátaféiagið Einherjar - Vaikyrjan á ísafirði stóð fyrirá sumardaginn fyrsta. Nokkuð kalt var í veðri og skýjað er gangan fórfram og þurftu göngumenn því að kiæða sig vei við að fagna sumrinu. Meðfyigjandi mynd var tekin er gengið var frá kirkju og upp Hafnarstræti.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.