Víðförli - 15.01.1983, Page 6

Víðförli - 15.01.1983, Page 6
111 LÞaðþarfaðkenna ////// IIIfólkiaðlifa elliárin“l IIIII, I I I I I I I I I I I I I Þórnrinn Pórarinnsson frá I I I I I I I I I I I I Eiðum tekinn tatí - Ég er nú heldur óheppilegur viðmæl- andi um vandamál aldraðra, segir Þórar- inn Þórarinsson, fyrrum skólastjóri á Eiðum, og glettnin leiftrar af honum. — Ég tel mig alsælan, sæmilega skynugur enn, umvafinn ástúð fjölskyldunnar, bý við öryggi og sé ekki út úr því sem ég hef að gera. Það er ekki sambærilegt hvað þetta er þægilegra líf en forðum í Eiða- skóla. En auðvitað sé ég lífið í kringum mig og árin 78 ættu nú að hafa kennt mér eitthvað. Mér líkar vel þetta frumvarp um heimilisfræði í grunnskólum sem Sal- ome Þorkelsdóttir er með. Þarna er upp- lagður vettvangur til að undirbúa sig undir elhna, strax í grunnskóla. Hvað á að kenna? Ég gleymi ekki viðtcilinu við forstöðukonu eins elliheimilis sem sagði: „Gömlumönnunumsemkunnuað prjóna líður miklu betur." Þeir mega bók- staflega ekki vera að því að deyja, þeir hafa lofað svo mörgum plöggum. Hinir sitja bara, sumir hverjir, og bíða dauð- ans. Sjónleysi fylgir oft háum aldri, þá er gott að kunna eitthvað til handanna. Þá ætti líka að þjálfa börn og unglinga að nota vinstri hendina. Vinur minn, Guðni Jónsson, prófessor, fékk slag og lamað- ist hægra megin. Ef hann hefði getað skrifað með vinstri hendinni hefði hann og þjóðin haft af því mikið gagn. Eins þarf að gera fólk handgengið kassettutækjum áður en það verður of gamalt svo það geti notfært sér hljóð- bækur þegar það getur ekki lengur lesið. Með heyrnartækjum þarf hlustun- in ekki að trufla neinn. Sá sem hlustar á góðar bækur heldur skýrari hugsun lengur en ella. Finnst þér viðhorf fólks til aldraðra hafa breyst á ári aldraðra? - Þessi nýju lög eru vinsamleg í garð eldra fólks og fyrri störf þess hafa aldrei verið metin sem nú. Og óg er viss um að miðaldra fólk á góða elli i vstndum. Það hefur lifað við betri aðstæður og er betur undirbúið. Harðræði í æsku gerir sumt gamalt fólk biturt og skapstyggt og slíkt fólk eignast sjaldnast góðan elli. Það verður að viðurkennast að sumt af okkur, gamla fólkinu, er dálítið tiltektar- samt og þarf þá lítið til að því finnist sér misboðið. En mér finnst áberandi meiri nærgætni og tillitssemi gagnvart eldra fólki nú en fyrir t.d. 15 árum. Stræt- isvagnabílstjórarnir eru þar prýðis dæmi og svo unglingarnir. Það er allt annað hvernig unga fólkið kemur fram og þá ekki síst börn. Það er hárrétt stefna í lögunum að styðja fólk til sjálfshjálpar, gefa því kost á að vera heima sem lengst, þar sem það ræður ríkjum, en er ekki þegnar eða þiggjendur. Það er illt að vera sviptur því að bjarga sér sjálfur, það verkar ein- hvern veginn smækkandi og lítillækk- andi, en það er vandi að hafa með fólk að gera sem hefur ráðið sér um langa ævi og því gætt sterkri einstaklingstilfinn- ingu. Það þarf að fara með skapstygga fólkið eins og stygg hross, fara að því með varúð og gætni. Eitt er það sem þeir sem yngri eru hafa gott af að skilja, að það skiptir okk- ur gamla fólkið ákaflega litlu hvort við lifum einhverjum árum lengur eða skemur. Aðalatriðið er að fá að lifa lífinu lifandi. Ég kom eitt sinn í vinnustofuna á Hrafnistu og læknirinn sem ég var í fylgt með sagði við karl einn sem var í óða önn að ríða net: „Ertu kominn hingað aftur. Ég var búinn að banna þér það, vegna hjartans." Þá sagði karlinn: „Ja, læknir minn, mér finnst ég vera ómög- legur nema ég sé að dudda eitthvað." Það er mikið ósamræmi hjá heilsugæsl- unni. Sömu menn fara in í konur og eyða varnarlausum fóstrum í kviði þeirra og halda lífi í gamlingjum sem eru löngu saddir lífdaga og heiladauðir, sumir hverjir. Að lifa ekki allt sitt líf Hvað fer verst með eldra fólkið? - Það var stelpa sem fór á þjóðhátíð- ina 1874 og sagði þegar hún kom heim: „Iss, það var svo leiðinlegt að mér dett- ur ekki í hug að fara á næstu þúsund ára hátíð." Þá var hlegið að henni og sagði stelpan þá flaumósa: „Það getur svo sem vel verið að maður lifi ekki allt sitt lif.“ Enginn veit hversu lengi lifir, segir máltækið, en gamla fólkinu finnst það stundum einum of seint þegar aðstand- endurnir koma ekki með blómin fyrr en á kistuna. Þetta kom frábærlega vel fram í leikriti Kjartans Ragnarssonar, Blessað barnalán. En kostir ellinnar, hverjir eru þeir? - Ætli ég finni ekki mest fyrir þeim létti að vera laus við ábyrgðina sem fylg- ir t.d. starfi skólastjóra f heimavistar- skóla. Nú get ég fengist við það sem ég vil og maður verður sjálfstæðari sem einstakhngur. Ég treysti mér ekki til að verða prestur, nema allra fyrst eftir að ég út- skrifaðist úr guðfræðideildinni. Við vor- um fjórir, nýútskrifaðir kandidatar, sem sóttum um sama prestakallið. Undir lok kosninga„slagsins“ dró ég umsókn mína til baka segjandi í votta viðurvist að þó ég yrði kosinn, treysti ég mér ekki til að verða söfnuðinum svo góður prest- ur að hann kæmist aftur í samt lag, sið- ferðislega, og hann var í fyrir prests- kosninguna. Framhaldsnám erlendis olli því að ég treysti mér ekki til þess trúboðs sem í prestsstarfinu felst. Skólastjórinn full- nægði mér líka sem guðfræðingi, ég gat komið því að sem mér lá á hjarta, í krist- infræðslukennslunni og vikulegum er- indaflutningi í áheyrn alls skólans. Hinsvegar hafa viðhorf mín breyst með aldri og víðari yfirsýn. Nú treysti ég mér betur til að gerast prestur en forðum var. Lífslánið Hvað hefur verið þitt lán í lífinu? - Afbragðskona og indælisfjölskylda á alla lund og starf sem ég kunni vel við og bar jákvæðan árangur ef trúa má vitnisburði nemenda minna, margvís- leg lífsreynsla sem getur verið eins og krydd í tilverunni þótt erfið hafi verið á stundum, eins og þjáningafull veikindi sem að lokum knúðu mig til að láta af erfiðu skólastjórastarfi. Það var t.d. einn 6 — VÍÐFÖRU

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.