Víðförli - 15.01.1983, Blaðsíða 7

Víðförli - 15.01.1983, Blaðsíða 7
Þórarinn með kistuna góðu. af minnisstæðustu hamingjudögum lífs míns, þótt sumum finnist það furðulegt, þegar ég gat hjálparlaust staulast fram á klósettið eftir langa legu á Landspítal- anum. Það skilja heldur ekki allir þegar ég segi að bruninn mikli á Eiðum hafi orðið okkur til góðs. Við erum sammála um það hjónin. Við misstum þar allt okkar, m.a. stórt og vandað bókasafn þar í talið bókasafn föður míns, flestar ófáanlegar bækur, mörg málverk og margvíslegt silfurdót, allt þetta sem hafði verið stór hluti í sálinni. En þá helltist yfir okkur ástúð og vinsemd ótölulegs fjölda fólks sem maður vissi ekki að maður ætti að. Og við urðum miklu frjálslegri en áður, losnuðum undan þessari eignartilfinn- ingu sem við fundum nú fyrst hversu þvingandi hafði verið. Nú kaupir maður t.d. bók til að lesa en ekki til að eiga. Heyndar skildi ég það best er ég eign- aðist fyrsta barnið hvað það er að vera raunverulegur öreigi, þrátt fyrir all mikl- ar eignir. Þarna horfði maður á skæl- andi, hjálparvana vesaling, sem maður vissi að hafði með sér ómælda fyrirhöfn, útbíun og andvökunætur. Um leið vissi maður hversu fáránleg hún væri spurn- ingin ef um það væri spurt hvort maður kysi heldur að halda öllum eignum sín- um eða barnið missti einn köggul af minnsta fingrinum. Með fyrsta barninu kemur allt annað verðmætamat. Nú skynjaði ég að ég átti ekkert meðan ég átti bara eigur. Barnið var hinn raun- verulegi auður. Ég hef spurt marga unga feður um þetta nýja verðmætamat og voru þeir allir, undantekningalaust, mér sammála. Það er geysisterk upplifun ábyrgðar- tilfinningar og lífstilgangs þegar maður öðlast þá gæfu að verða foreldri. Barn- laus maður er þannig hinn raunverulegi öreigi og því illt til þess að vita hversu örðugt það er fyrir fólk að taka fóstur- börn. Aftur slær mann ósamræmið að granda fóstrum þegar svo margir vildu gefa þeim gott heimili og mikinn kær- leika. Samanburður við „gömlu góðu dagana" Þú varst hér syðra veturna 1921-1928 og fluttist svo aftur til Reykjavíkur 1965. Hvaða breytingar voru mest áberandi í mannlífinu? — Það var miklu meiri efnishyggja hér á árum áður. Kirkjulíf er miklu meira Uf- andi nú en þá. Maður sér þetta best á hinni almennu þátttöku í altarisgöngum nú. Það var eins og menn fyriryrðu sig fyrir að það sæist að þeir hugsuðu um andleg mál. Efnishyggjan t.d. meðal svokallaðra menntamanna hefur minnkað afskaplega og minnkar við hvert nýtt tækniundur. Þá skynja menn enn betur smæð sína og auðmýktin vex að sama skapi. Ég hef sannarlega breyst líka. í guð- fræðideildinni var ég það sem kaliað var frjálslyndur, jaðraði við að vera únitari, eins og við fleiri á þessum árum, því oUi aldamótaguðfræðin svonefnda. Viðhorf mitt varð allt annað með aldri og þroska og ekki kannski síst af kynnum mínum af Sigurbirni biskupi. Ég held að ég hafi grætt meira á vináttu hans en nokkurs annars. Ég sat í Kirkjuráði þegar hann varð biskup og við unnum þar saman í átján ár. Satt að segja kveið ég þessu samstarfi, ég hélt að við værum á svo ólíkum línum, en sá ótti var sannarlega ástæðulaus. Hvaða mál barst þú helst fyrir brjósti í Kirkjuráði? - Ég sat þar í 18 ár, eins og ég sagði áðan, og það gerðist mjög mikið í kirkj- unni þessi ár, eins og raunar síðar. Hjálparstofnun kirkjunnar og æskulýðs- málin voru mín óskamál og svo auðvitað Skálholt og uppbyggingin þar. Skálholt og skógræktin standa mér nærri hjarta. Ég lét smíða mér líkkistu árið 1976 til þess að sanna að nytjaviður gæti vaxið á íslandi. Kistan er smíðuð úr lerkitré sem óx upp á Hallormsstað, minni heima- byggð. Það var gróðursett 1922 og höggið 46 árum síðar, eða 1968. Ég vorkenni ekki þeim presti sem tal- ar yfir kistu minni þegar þar að kemur. ÆtU ég hafi ekki lagt honum upp í hend- ur gott efni til að leggja útaf með svo fal- lega kistu fyrir framan sig. VÍÐFÖKLI— 7

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.