Víðförli - 15.01.1983, Síða 9

Víðförli - 15.01.1983, Síða 9
Fóstureyðmg eða réttur tíl lífs Ég vil hefja þessi orð á því að lýsa yfir gleði minni yfir frumvarpi Þorvalds Kristjánssonar sem fram hefur komið á Alþingi og miðar að því að þrengja ákvæði núgildandi löggjafar um fóstur- eyðingar. Það er skref í rétta átt, í þá átt að vernda líf sem byrjað er í móðurlífi. Það er ekki talað fyrir ofan skilning nokkurs heilvita manns þegar minnst er á boðorðið: Þú skalt ekki mann deyða. Ekki heldur þegar rifjuð eru upp orð Davíðssálms 139, vers 13-16: (Sálma- skáldið ávarpar Drottin sinn og skap- ara). Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi. Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel. Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaðurí djúpum jarðar. Augu þin sáu mig, er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir íhók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn. " Hér eru á ferð tilvitnanir í þá bók sem ég og fleiri karlar og konur vilja byggja á líf sitt og skilning sinn á lífinu. í Biblí- unni er það Guð og hans vilji sem er í for- sæti, í öðru sæti kemur vilji mannanna. Þeirra böl er það að brjóta sífellt í bága við þann vilja sem Guð birtir. Þegar því rætt er um fóstureyðingar verður að taka tillit til þeirra sem hafa þessa lífs- skoðun. Stærra mál Fóstureyðingar og öll umræða um þær eru fyrir mér aðeins hluti stærra máls og meira. Þær eru aðeins brot af þeirri yfir- troðslu og óhlýðni sem boðorðum Drott- ins er sýnd. Aldrei hafa boðorðin 10 fall- ið úr gildi heldur kom Kristur Jesús til að uppfylla þau. Þess vegna fæ ég ekki skil- ið hvers vegna svo lítið er rætt um synd og sekt þegar fóstureyðingar ber á góma. En sú er stærsta gjöf Guðs til okk- ar brotlegra manna, að í Jesú Kristi eig- um við fyrirgefningu synda og sektar. Ef það er af tillitssemi við þá sem hafa sektarvitund þá er það misskilin tillits- semi því iðrun fylgir alltaf sektarvitund og mjög oft vanlíðan. En iðrun er alltaf undanfari játningar frammi fyrir Guði og játningu fylgir fyrirgefning og lausn samkvæmt óhagganlegu orði Guðs. í umræðunum um fóstureyðingar hefur mjög oft borið á góma sjálfs- ákvörðunarréttur kvenna til fóstureyð- ingar. Sérstaklega hefur það verið hin svokallaða kvennahreyfing sem haldið hefur þessu hugtaki á lofti. Blanda þær því saman við frelsi og er baráttan fyrir „rétti til fóstureyðinga" tjáning á vilja þeirra til frelsis. (Helgarbl. Þjóðvilj. 20.- 21. nóv. 1982, bls. 12). Segja verður að kvennahreyfingin hefur valið rangt mál til að tjá vilja sinn í. Rök hníga fremur í þá átt að fóstur sé sjálfstæður einstaklingur, heldur en hið gagnstæða. Það má benda á að fóstur hefur alltaf erfðaeiginleika beggja for- eldra, ekki aðeins annars foreldris. Eigin fruma fóstursins er eins og fruma í líkama móðurinnar. Sérhver fruma þess hefur nýja erfiðaeiginleika frábrugðna erfðaeiginleikum móðurinn- ar. Hér er því um algjörlega sjálfstæðan einstakling að ræða. Það ýtir því þeirri skoðun til hliðar að fóstrið sé hluti af lík- ama móður. Kona hefur því ekki rétt til að Iáta fjarlægja fóstur úr lífi sínu á þeim forsendum. í annan stað má ætla að konur í kvennahreyfingunni vilji að gildi lífs þeirra sé metið að verðleikum. Þær tala um frelsi og umráðarétt til að ráða yfir eigin líkama, þá væntanlega gagn- vart þeim sem reynir að ráða yfir þeim og kúga þær. en er hér ekki höggvið í eigin knérunn þegar þær í sömu andrá velja það að troða á gildi annars ein- staklings? Sá fær sig ekki varið. Tvær hliðar Eg fæ ekki undan því komist að minn- ast á það að á þessu máli eru tvær hliðar sem krefjast þess að þær séu skoðaðar sitt í hvoru lagi. Þær eru: Siðfræðileg og lagaleg. Hin siðfræðilega knýr mig til þess að spyrja hvernig ég dæmi fóstureyðingar siðfræðilega. Einnig um hvaða mann- legt gildi sé að ræða og til hvers það skyldar mig. Hin lagalega hhð leiðir mig til að spyrja hver afstaða mín eigi að vera til þeirra laga sem fjalla um þessi mál í þjóðfélagi mínu. Þegar ég, sem kristinn maður, reyni að leggja grundvöll að skoðun minni á fóstureyðingum þá er ég miklu fremur að leggja grundvöll að skoðun minni á lífi. Ég hef þegið líf mitt úr hendi Guðs. Hann hefur skapað mig í sinni mynd og einnig alla menn aðra: Þess vegna hef- ur sérhver maður, kona og barn ómetan- Séra Magnús Björn Björnsson, Seyðisfirði. legt gildi. Vegna þess að ég hef þegið líf- ið úr hendi Guðs og einnig vegna þess að hann hefur endurleyst mig fyrir blóð síns elskaða sonar, þá gefur það lífi mínu enn dýpri merkingu. Hann hefur leyst mig úr fjötrum dauðans. Guð ræður yfir lífi mínu og dauða. Þannig gildir þetta einnig fyrir alla aðra. Hans vilji er að allir menn haldi lífi. Það er ekki á okkar valdi að ráða yfir lífi eða dauða. Þess vegna er ég á móti fóstureyðing- um. En vegna þess að í hverjum manni sé ég bróður minn og systur, þá knýr það mig til ábyrgðar gagnvart þeim. Ekki aðeins í því að styðja félagslegar umbætur og bæta félagslega stöðu mæðra heldur einnig í því að vinna að kristnum áhrifum meðal allra þeirra sem þetta mál snertir. Þetta er nefnilega ekki einkamál konunnar, heldur föðursins einnig, svo og lækna, presta, félagsráð- gjafa, hjúkrunarfólks, foreldra, ættingja og vina. í hinu tilvikinu sem að lagalegu hlið- inni snýr, þá hlýt ég að spyrja mig hvort sú löggjöf sem í landi okkar er um fóst- ureyðingar, verndi mannlífið. Svarið hlýtur afdráttarlaust að vera neitandi. Það liggur þung skylda á herðum lög- gjafans að vernda mannslífið, þó sér- staklega það líf sem ekki getur varið sig sjálft. Innan þess ramma fellur líf aldr- aðs fólks, öryrkja, vangefinna, sjúklinga og fátæklinga, og líf þess barns sem enn er ekki fætt í þennan heim. Þó ég hafi kosið að fjalla um siðfræði og löggjöf sem aðskilda þætti, þá eru þeir ná- tengdir. Þjóðfélag okkar hefur það að hornsteini að vernda mannréttindi og að byggja á grundvallarhugsun kristi- legrar siðfræði. Því ber að taka fullt tillit til þeirrar siðfræði sem á að styðjast við þegar lög eru samin. Það tel ég að ekki hafi verið gert í lögunum um fóstureyð- ingar árið 1975. Afstaða mín til þessara laga er því sú að ég tel þau brjóta gegn því sem ég tel réttast út frá skilningi mínu á lífinu og helgi þess. Þess vegna er ég knúinn til að vinna gegn fóstur- eyðingum en fyrir rétti allra til lífs. Sr. Magnús Björnsson Seyðisfirði. XZÍÐFÖKLI — 9

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.