Víðförli - 15.01.1983, Page 12

Víðförli - 15.01.1983, Page 12
A /‘ kristnilífí í Búdudalsprestakalli: „Að gera gagn, þótt ekki sé iiGina tyrir einn“ — Það er mikil heppni ef fólk kemst til og frá Vestfjörðum að vetrarlagi án þess að verða veðurteppt svo dögum skipti. Það þarf að sitja tímunum saman við símann, hringja til flugfélagsins á nokk- urra tíma fresti og kannski getur flug- vélin svo ekki lent þegar hún kemst loks yfir flugvöllinn. En þegar ekkert þarf að fara er lífið í föstum og góðum skorðum. Það er notalegt að búa í litlum bæ á Vestfjörðum, þekkja alla, sem ganga um götur og hittast í búðunum. Ég er ný- komin frá jólahaldi á Bíldudal hjá systur minni Döllu Þórðardóttur sóknarpresti þar, Agnari Gunnarssyni manni hennar og Trostani syni þeirra. Ég komst vestur með vélinni, sem ég átti far með ,en varð veðurteppt eftir jólin. En það var allt í lagi, það var nóg við að vera á Bíldudal. Ég sótti tvær jólamessur,, sem haldn- ar voru meðan ég var þar. A aðfanga- dagskvöld var aftansöngur klukkan sex og á annan jóladag var hátíða- guðsþjónusta. Guðsþjónustan, sem átti að vera í Selárdal á jóladag varð að falla niður vegna ófærðar. Það voru margir í kirkju og jólalegt í Bíldudalskirkju. Á að- fangadagskvöld voru 160 manns í kirkju og 60 á annan jóladag og þá voru tvö börn skírð, Auður og Signý. Kirkjukórinn var búinn að æfa tvö ný jólalög. Ég fór á eina kirkjukórsæfingu, hún stóð til eitt um nóttina og var skemmtileg og mikill hugur í fólki. Ritstjóri Viðförla bað mig að segja frá safnaðarlífi á Bíldudal og ég sé þann kostinn vænstan að setjast hjá sóknar- prestinum og rekja úr henni garnirnar. - Segðu mér af kirkjukórnum, Dalla? - Kirkjukórinn leggur mikið fram til safnaðarstarfsins. Hann æfir í hverri viku. Helga Gísladóttir kennari er organisti hjá okkur núna og hún æfir kórinn. Um jólin var organisti úr Reykja- vík því Helga var sjálf fyrir sunnan. Undanfarin ár hafa verið mjög tíð organ- istaskipti eins og verður oft í litlum sam- félögum, þar sem fólk býr sumt um stuttan tíma. — Notið þið nýja messuformið? - Já, við notum það í Bíldudalskirkju en gamla messuformið er enn notað í Selárdalskirkju. - Hvernig undirbjugguð þið jólin í söfnuðinum? Við héldum aðventukvöld. Tvær kon- ur úr söfnuðinum hjálpuðu mér við að æfa börnin. Við hittumst í kirkjunni og Séra Dalla í stól. æfðum þar, mæður barnanna saumuðu föt á þau, kyrtla á Maríu og Jósef, skrúða á vitringa og hirða, engla og stjörnu. Önnur þessara kvenna æfði barnakór, sem söng við gítarundirleik. Ferming- arbörnin fluttu samtalsþátt og lásu jóla- sögu og kirkjukórinn söng tvö lög fyrir söfnuðinn og tók þátt í safnaðarsöngn- um. Þennan dag gerði aftakaveður svo margir vildu láta fresta aðventukvöld- inu. Það hefði valdið börnunum svo miklum vonbrigðum að við ákváðum að halda aðventukvöldið þrátt fyrir allt og 150 manns komu. Við héldum aðventu- kvöldið við kertaljós og komumst í jóla- skap, sem vonandi hefur haldist alla að- ventuna. Já, svo héldum við líka biblíu- lestur með jólasvip á aðventunni. — Það leynir sér ekki að séra Döllu þykir mikið til um sóknarbörnin og að- ventuhaldið hjá þeim. Ég seilist í kaffi- könnuna og spyr hana frekar af biblíu- lestrunum. — Ég hóf þá í haust eftir að ég kom úr kirkjuferð um þýskaland. — Bíddu aðeins, varstu uppörvuð til biblíulestrarhalds í Þýskalandi? - Já, það má segja það, Ég sá nefni- lega í Þýskalandi að það gekk ekkert óskaplega vel að ná fólki saman til biblíulestra. Ég þyrfti þá ekki að veðra fyrir þungum vonbrigðum þótt það gengi treglega hjá mér líka. En auðvitað vonaði ég það besta. Ég vann biblíu- lestrana eftir efni í Kirkjuritinu um fjöl- skylduna og vinnuna. Ég fann svo sjálf ritningarstaði, sem við lásum saman og ræddum um þetta allt. - Varðstu svo fyrir vonbrigðum? - Á fyrsta biblíulestrinum komu all- margir en síðan fór aðsóknin dvínandi. Fjórir mæta að jafnaði en stundum bara einn. Það tekur sinn tíma fyrir safnaðar- fólkið að venjast nýjungum. Það voru mér viss vonbrigði að fólk skyldi ekki geta notað sér biblíulestrana betur. Margir hafa sagt vð mig að þeim hafi þótt forvitnilegt að lesa auglýsingarnar um biblíulestrana og langi til að læra að lesa Biblíuna. Ég ætla að halda þeim áfram og ég er sannfærð um að þeir gera gagn þótt ekki sé nema fyrir einn. - Ætlarðu að halda áfram að nota Kirkjuritið við Biblíulestrana? - Það reyndist ágætlega. En nú er Skálholt búið að láta þýða og gefa út biblíulestra sem Alkirkjuráðið sendi til 12- VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.