Víðförli - 15.03.1994, Qupperneq 5

Víðförli - 15.03.1994, Qupperneq 5
Sr. Kristján Valur Ingólfsson Pistlarum helgisiii ALTARISGANGA í síðasta hefti Víðförla birtist fyrri hluti pistils um kirkju- klukkur. Síðari hlutinn verður að bíða um sinn, vegna þess að ég hefi verið beðinn að svara spumingum sem snerta altaris- gönguna. Eg met það svo að meira liggi á að svara þeim , ekki síst vegna þess að nú nálg- ast sá tími ársins þegar flestir ganga til Guðs borðs. Ljóst er þó að ekki er í þessu blaði rými til að svara öllum spurningum eins ítarlega og þörf er á. Rétt er að taka fram að þó að jöfnum höndum séu notuð orðin altarisganga og kvöldmáltíð, er eðlilegt að gera þann greinar- mun að það er kvöldmáltíð sem borin er fram við altarið, en þátt- taka safnaðarins í kvöldmáltíð- inni er altarisganga. Spurningarnar sem hér verður reynt að svara eru þessar: Lýsing guðspjallanna á hinni fyrstu kvöldmáltíð sýnir aðþað var einföld og fábrotin athöfn. Hversvegna eru allar þessar „serimoníur“ í kringum altar- isgönguna í kirkjunni?. Stundum er klæðiyfir kaleiknum á altarinu en stundum er ekkert. Hvaða dúkar eru nauðsynlegir við altarisgöngu? Hvert er hlutverk meðhjálþara við altarisgöngu? Getur meðhjálþari að- stoðað við útdeilingu ? 1. Stofnun heilagrar kvöldmáltíðar Það er alveg rétt að frásögnin um stofnun heilagrar kvöldmáltíðar lýsir fábrotinni máltíð. Hitt er alveg víst að Jesús hefur þrátt fyrir það farið að siðum þjóðar sinnar við þessa máltíð, og því hefur hún ekki heldur verið laus við „seremoníur". Þegar Jesús Kristur stofnsetti heil- aga kvöldmáltíð tók hann brauð og gaf lærisveinunum og sagði: — Þetta er líkami minn sem fyrir yður er gefinn. Og hann tók kaleik með víni, bauð þeim að drekka af honum og sagði: — Þetta er kaleikur hins nýja sátt- mála í mínu blóði til fyrirgefningar syndanna. Og hann sagði: — Gjörið þetta í mína minningu. 2. Upphaf atferlis og umbúnaðar Allt atferli og allur umbúnaður alt- arisgöngunnar á upphaf sitt í því að heilög kvöldmáltíð er helgasti leynd- ardómur kristinnar trúar. Kirkjan hefur frá upphafi reynt að varðveita þessa athöfn og forða henni frá öllu því sem gæti spillt henni eða skrum- skælt hana. Atferli við kvöldmáltíð (altaris- göngu) og umbúnaður hennar túlka virðingu, lotningu og tilbeiðslu, en í öðru lagi er það áminning um að gæta þess leyndardóms sem Guð hefur trúað kirkju sinni fyrir. Altarið, helgasti staður kirkjunnar, stendur í kór kirkjunnar. Kórinn (eða altarið eitt) er víða skilinn frá kirkju- skipinu með grindverki. Þetta grind- verk er áminning um að standa vörð um helgi altarisins og kvöldmáltíðar- innar. 3. Atferli altarisgesta Form kvöldmáltíðarinnar og atferl- ið við hana getur verið fábrotið og einfalt eða fjölskrúðugt, en form og atferli taka ávallt fyrst og fremst mið af hlutverki hennar og innihaldi. Spurt hefur verið bæði um atferli prests og 5

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.