Víðförli - 15.03.1994, Side 10

Víðförli - 15.03.1994, Side 10
Jakob Ágúst Hjálmarsson UM LÍKNAR- ÞJÓNUSTU SAFNAÐA Líknarþjónusta er frá öndverðu ein frumskylda kristins safnaðar. A sama hátt og útbreiðsla kærleikans er skylda hins kristna í daglegum sam- skiptum er það skylda samfélags þeirra að skipuleggja viðleitni sína í því efni. I okkar samhengi þekkjum við best Hjálparstofnun kirkjunnar sem dæmi slíks. Skyldu kærleiksþjónustunnar höfum við einnig gegnt með þátttöku okkar í stjómmálastarfi þar sem við höfum lagt á ráðin um tryggingar, lækningar og umönnun og fjölmargt þess háttar. Við erum ekki á þeim vettvangi sammála um aðferðir, for- gangsröðun eða jafnvel hugmynda- fræði en erum þó flestöll knúin áfram af þeirri skyldu sem við fmnum á okk- ur hvíla gagnvart samfélagi okkar mannanna, náunga okkar í víðtækum skilningi.En sú tíð er liðin að hægt sé að setja jafnaðarmerki á milli þjóðfé- lags og kirkju í þessu landi og grann- löndum okkar. í stjórnmálasamstarfi verðum við að finna samleið með öðr- um ólíkum skoðanahópum og lendum í því að ganga undir „ósamkynja ok“ jafnvel með vantrúuðum. A vettvangi kirkjunnar er hugmyndafræðilegur grundvöllur okkar hins vegar öllu skírari og við í ótvíræðari færum við að uppfylla skyldur okkar gagnvart náunganum. Skyldur safnaða Sérhver söfnuður verður þá á grundvelli sjálfstæðis síns að taka ákvarðanir í þessu efni. Reikningar þeirra gefa tilefni til að íhuga hvort ráðstöfun teknanna sé meir í ætt við háttalag miskunnsama Samverjans en levítans og prestsins. Helsta verkefni safnaðar hefur verið skilgreint vera það að halda kirkju og sjá til að guðsdýrkunin megi fram fara verðuglega. Því eru bygg- ingar- og viðhaldskostnaður, kirkju- varsla og tónlistarstarf háir póstar á útgjaldalið kirkjureikninganna. En sorgleg staðreynd er að það er hægt að fletta mörgum kirkjureikningum án þess að rekast á nokkurn póst sem kalla má vera til líknarþjónustu og þar sem þeir eru eru þeir smánarlega lág- ir og bera vitni sjálfhverfri hugsun safnaðanna. Það er ekki víst að allir geti verið sammála um leiðimar en grundvöllur- inn ætti að vera ótvíræður og mark- miðið hið sama: Að létta böl hins þjáða. Vel getur hugsast að fólk geti sammælst um það á safnaðarvett- vangi að skora á þá sem ráða fyrir málefnum hins opinbera að beita sér í tilteknum málum og sannast mál er að ef einhver verður til þess að sýna fordæmi þá er líklegt að aðrir fylgi á eftir. Mér er ekki grunlaust um að óburðugar tilraunir nokkurra safnaða í Reykjavík til að reka kirkjuskjól hafi orðið til þess a.m.k. að flýta því að sett voru upp fleiri skóladagheimili og boðið var upp á heilsdagsvistun í skól- um. Hjálparsjóðir sem fjármagnaðir væru úr safnaðarsjóði sem og af frjálsum fjárframlögum ættu að vera í öllum sóknum eða prestaköllum. Þeir gera það að verkum að við göngumst í beina ábyrgð fyrir vanda fólks en vís- um ekki einlægt á aðra. Ásamt þessu þurfum við að hugsa víðar og lengra og beina framlögum til Hjálparstofn- unarinnar. Hennar hlutverk er að koma þar að verki sem okkur reynist um megn á safnaðarvettvanginum ýmist vegna skorts á sértækum úr- ræðum ellegar að ná til þeirra syst- kina okkar sem lengra er til en sókn- 10

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.