Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 1

Víðförli - 01.10.2001, Blaðsíða 1
FRÉTTABRÉF BISKUPSSTOFU 20. ÁRG. 7.TBL. OKTÓBER 2001 Regnbogamessa -> Regnbogi yfir Hólskirkju í Bolungarvík. Mynd- in var tekin á sjöunda tímanum að morgni 7. september sl. af Ijósmyndara Bæjarins besta á ísafirði, Hlyni Þór Magnússyni, til að birta með fréttatilkynningu um „Regnbogamessu" í Hólskirkju. Sjá bls. 10. Að deyja vel Ráðstefna á vegum Nordisk Ekumeniska Raadet um „Den goda döden“ verður haldin í Stokkhólmi 8.-10. febrúar 2002. Stefnan er einkum ætluð prestum, sálusorgurum, kenn- urum og starfsfólki sjúkrahúsa. Æ fleiri krefj- ast þess að starfsfólk heilbrigðisstétta leggi lið við lífsstyttingu.Vegna mikillar umræðu á Norðurlöndum um siðfræði lífsloka verður einn fyrirlesara siðfræðingur frá Hollandi þar sem lögum um líknardráp var breytt í árs- byrjun 2000. Þá verður rætt um líknandi meðferð og sálgæslu. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá hinu skilvirka starfsfólki NER. Sendið fyrirspurn til info@nordiskaeku- meniskaradet.org. Meðal efnis: I þágu lífsins...................... Kirkjuþing 2001 .................... Leikmannaskólinn ................... Kirkjuþing að sænskum sið........... Velkomin til Skálholts ............. Upphaf vetrarstarfs ................ Ný dögun - fyrirlestrar um sorg . . . Af erlendum vettvangi............... Hjálparstarf kirkna í Afganistan . . . . Segðu þína sögu..................... Kirkjumiðstöð Austurlands á Eiðum Dagur virðingar..................... Tómasarguðspjall.................... Kristur yfir kakóbolla og kökusneið 2 3 4 5 7 7 8 9 9 10 I I I I 12 Útgefandi: Skálholtsútgáfan, útgáfufélag þjóðkirkjunnar, Laugavegi 31, 101 Reykjavík Ritstjóri og ábm.: Edda Möller, sími 552-1090, netfang frettir@kirkjan.is Umbrot og prófarkalestur: Skerpla ehf. Prentun: Gutenberg ehf. í þágu lífsins Þegar kirkjuþing kemur saman að þessu sinni þá bíða þess fjölmörg verk- efni til úrlausnar og afgreiðslu. Kirkjuþing hefur á því kjörtímabili sem nú er að ljúka unnið þrekvirki við að setja þjóðkirkjunni starfsreglur á grund- velli kirkjulaganna. Er því starfi að miklu leyti lokið þótt starfsreglur verði jafnan í endurskoðun. En jafnframt lifum við nú tíma hinnar innri upp- byggingar kirkjunnar, eflingar þeirra starfsþátta sem styrkja samstöðu kirkju og þjóðar og leiða sókn kirkjunnar fram í boðun fagnaðarerindisins, fræðslu í trú og sið og helga athöfn og iðkun í þágu lífsins. Við erum ekki ein hér yst á ránarslóð. Sóknir og söfnuðir þjóðkirkjunnar eru þættir í sam- félagi almennrar kirkju Krists um víða veröld. Inn til okkar berast hróp og áköll utan úr heimi, bænir heims í skugga haturs og hermdarverka. I þess- um heimi á kirkjan okkar, sérhver söfnuður, sérhver kristin kona og karl, að vera súrdeig, salt og ljós í heiminum, verkfæri friðar og sáttargjörðar. Mér er hugstæð sú sýn sem heimsþing alkirkjuráðsins brá upp á þingi sínu í Harare 1998: Við þráum sýnilega einingu líkama Krists, er við viðurkennum náðargjafir allra, ungra sem gamalla, kvenna og karla, leikmanna og vígðra. Við væntum lækningar mannkyns og heilbrigði allrar sköpunar Guðs. Við reiðum okkur á frelsandi kraft fyrirgefningarinnar til að ummynda fjandskap til vináttu og brjóta vítahring ofbeldisins. Við uppörvumst afþeirri sýn að kirkjan nái til allra, miðli gæðum, hlúi að særðum, boði gleðitíðindin um endurlausnina, kirkja sem er tákn guðsríkis og þjónn heimsins. Við uppörvumst af þeirri sýn að kirkjan sé býð- ur Guðs á samleið er samhuga gegn öllu misrétti kynþátta, kynferðis, aldurs eða menningar berstfyrir réttlæti, friði og heilbrigði sköpunarinnar. Við eigum samleið í upprisutrú, mitt í örvæntingu og einsemd fögnum við í von fyrirheitunum um líf í fullri gnægð. Við eigum samleið sem fyrirbiðjendur, mitt í villu og firringu sjáum við tákn þess að markmiðum Guðs verði náð, og væntum komu Guðs ríkis. Karl Sigurbjörnsson

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.